Bændablaðið - 10.10.2019, Page 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2019 31
Ístex hf. hefur verið að þróa sig
áfram í nýjum vörum undanfarið,
með það fyrir stafni að nýta
íslensku ullina sem best. Þetta
hafa verið mörg skemmtileg
verkefni sem margir hafa komið
að, að sögn Sunnu Jökulsdóttur,
þróunar- og gæðastjóra Ístex.
Meðal verkefna er mýkra
lambs ullarband sem unnið er
í samstarfi með Glófa. Annað
verkefni er ullar einangrun í fatnað,
þar sem sérstök áhersla er lögð á
þvott heldni og slitþol. Þá er eitt
af stærstu þróunarverkefnum
um liti og umhverfis mál.
Viðskiptavinir hafa verið að kalla
eftir umhverfisvænni litum. Ístex
hefur lagt í talsverða fjárfestingu
að ýta því áfram. Meðal annars er
unnið að OEKO TEX 100 vottun
fyrir ullina.
Að sögn Sigurðar Sævars
Gunnars sonar framkvæmda
stjóra þá hefur Sigríður Jóna
Hannesdóttir verið ráðin til starfa
sem verkefnastjóri til þess að ýta
þessum tækifærum úr vör bæði
hérlendis og erlendis.
Sigríður Jóna segist vera að
leggja lokahönd á að setja á markað
íslenska ullarsæng. Sængin er fyllt
með 100% mislitri íslenskri ull
sem búið er að þvo sérstaklega,
kemba í fín lög og hólka niður.
Þannig að hún er þvottheldin á
40° ullarprógrammi. Sængin andar
mjög vel og er einstaklega létt.
Það sem er svo skemmtilegt við
íslensku ullina er að hún er bæði
góð fyrir heit sumur og kalda vetur.
Til að byrja með er búið að hanna
tvenns konar gerðir af sængum,
annars vegar heilsárssæng, og hins
vegar vetrarsæng. Heilsárssængin
er góð allan ársins hring en
vetrarsæng er hins vegar með
meiri ull, og því hlýrri og hentar
vel fyrir einstaklinga sem eru
kuldaskræfur.
Að sögn Sigríðar er hún sjálf
með vetrarsæng og er hæst ánægð
með hana. Sængurnar hjá Ístex er
tilvaldar fyrir einstaklinga sem kjósa
að nota vörur með náttúrulegum
efnum eða eru viðkvæmir fyrir
kemískum efnum.
Sigríður Jóna segir að mörgu að
huga og þau séu stolt að þróa þessa
nýju vörulínu. Eitt sem þau eru núna
að þróa eru koddar með íslenskri
ull. Stefnan er að koddarnir verði
í boði fyrir jólin, þannig að það
verður auðvelt fyrir Íslendinga að
kaupa jólagjafir í ár, hvort sem það
er sæng eða koddi.
Hægt er að kaupa sængina á
heimasíðunni www.lopidraumur.
is og stefnt er að því að bjóða upp
á fría heimsendingu um allt land.
Hvít og
blámygluostar
Fastir
og hálffastir ostar
NÁMSKEIÐ FYRIR MATREIÐSLUMENN OG BAKARA
Á námskeiðinu er fjallað um grunnatriði ostagerðar og kenndar aðferðir við vinnslu á hvít- og
blámyglu ostum. Veitt er innsýn í smásæjan heim gerla og hvata, nýtingu þeirra í framleiðslu, hvað
ber að forðast og hvað skal kalla fram. Rætt er um tæki, tól og aðstöðu sem þarf til ostagerðar.
Þátttakendur framleiða ost sem þeir taka með heim og fóstra þar til hann er tilbúinn til neyslu.
Staðsetning: Hótel- og matvælaskólinn.
Tími: Laugardaginn 26. október frá kl. 09:00 - 14:00
og sunnudaginn 27. október frá kl. 09:00 - 12:00.
Fullt verð: 18.900 kr.
Verð til aðila IÐUNNAR: 7.000 kr.
Á námskeiðinu eru að kynntir fastir- og hálffastir ostar og kenndar aðferðir við vinnslu þeirra.
Veitt er innsýn í smásæjan heim gerla og hvata, samspil þeirra og nýtingu í ostagerðinni.
Rætt er um tæki, tól og aðstöðu sem þarf til ostagerðar. Þátttakendur framleiða ost sem þeir
taka með heim og fóstra þar til hann er tilbúinn til neyslu.
Staðsetning: Hótel- og matvælaskólinn.
Tími: Föstudaginn 22. nóvember frá kl. 13:00 - 18:00
og laugardaginn 23. nóvember frá kl. 09:00 - 12:00.
Fullt verð: 18.900 kr.
Verð til aðila IÐUNNAR: 7.000 kr.
www.idan.is
Nánari upplýsingar og skráning á idan.is
og í síma 590 6400.
Aflvélar ehf. • Vesturhrauni 3 • 210 Garðabær • Sími: 480 0000 • aflvelar.is • sala@aflvelar.is
Tokvam fjölplógar
VT280, VT320, VT380
Vinnslubreiddir frá:
232 til 380 cm. Sterkir
plógar fáanlegir með
flotgrind fyrir mikinn
hraða.
Tokvam U-plógar
UT400, UT430, UT460, UT 490.
Hægt að skekkja til hliðar, fram
sem safntönn og aftur.
Vinnslubreiddir: 232 til 490 cm,
Tokvam snjóblásarar
F130-F220 og 220-260 THS
Vinnslubreiddir frá 130—
275cm
Sterkir snjóblásarar fyrir
dráttarvélar frá 25 til 300
hestöfl!
Styrkur og gæði frá
Tokvam í Noregi
Ullarvinnslan Ístex í Mosfellsbæ:
Þróar mýkra ullarband,
ullareinangrun og litun
Á myndinni eru, talið frá vinstri, Sigríður Jóna Hannesdóttir verkefnastjóri,
Sigurður Sævar Gunnarsson framkvæmdastjóri og Sunna Jökulsdóttir,
þróunar- og gæðastjóri Ístex.