Bændablaðið - 10.10.2019, Qupperneq 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 201946
Ég á 16 ára gamlan afturhjóla
drifinn Benz Sprinter sem ég nota
sem húsbíl, sendibíl og dótakassa,
hann er orðinn gamall og lúinn. Í
vor sá ég að Askja var að kynna
nýjan Benz Sprinter sem er fram
hjóladrifinn.
Allt frá því að ég sá þennan bíl
fyrst hafði ég hugsað mér að prófa
bílinn og bera hann að hluta saman
við aðra Benz Sprinter bíla sem ég
hef keyrt og nú gafst mér tími til
þess.
Hljóðlátur, vinnur vel
þrátt fyrir lítinn mótor
Ég prófaði bílinn um síðustu helgi,
fyrri daginn var rok og rigning,
vægast sagt ekkert veður til að vera
úti í bíltúr, en það kom mér á óvart
hvað nýi bíllinn tekur mikið minna á
sig vindhviður í samanburði við þann
gamla. Bíllinn er lipur og þægilegur
í innanbæjarakstri, gott útsýni úr
ökumannssætinu og speglar góðir.
Þegar maður þarf að bakka eru tveir
möguleikar á bakkmyndavélinni,
þröng og víð mynd er valið (mætti
vera í fleiri bílum svona búnaður),
en ég er allavega hrifinn af þessum
valmöguleikum. Inni í bílnum
heyrist nánast ekkert í mótornum
þegar maður er í akstri nema þegar
maður ekur á malarvegi, þá heyrist
aðeins steinahljóð undir bílnum.
Aldrei fundist ökumannssætið
í Sprinter gott fyrr en nú
Ég keyrði bílinn næstum 300 km
og á meðan ég keyrði fylgdist ég
með eyðslunni, þessi 114 hestafla
vél er í raun nóg fyrir þessa stærð
af bíl. Uppgefin eyðsla í blönduðum
akstri er 7,8–7,9 lítrar á hundraðið,
en ég var í 8,9 í lok prufuakstursins
með meðalhraða upp á 72 km. Fyrri
daginn innanbæjar í roki og rigningu
og seinni daginn í langkeyrslu
upp að Sultartanga og til baka.
Þokkalega sáttur miðað við mitt
aksturslag.
Ég hef keyrt marga Benz Sprinter
bíla í gegnum árin og alltaf fundist
ökumannssætin hafa verið frekar
lýjandi og óþægileg til setu í lengri
tíma (á meðan öðrum hefur fundist
hið gagnstæða), en nú fannst mér
gott að sitja í ökumannssætinu á
þessum bíl.
Burðargeta mikil
Bíllinn rétt losar tvö tonn og því má
hlaða hann rúmum 1400 kg. Fannst
eins og að ég væri með tóman bíl
þó að mótorhjólin tvö sem í bílnum
voru upp í Þjórsárdal vigtuðu nálægt
400 kg. Heildarlengd hleðslurýmis
er 3.272 mm, breidd hleðslurýmis
er 1.787 mm, og á milli hjólaskála
1.412 mm. Dráttargeta (með bremsu
búnaði) er 2.000 kg. Á þak má hlaða
150 kg.
Hleðslurýmið er klætt með
kross viði, krókum fyrir festingar í
gólfi og í hliðum líka. Mikið er af
smáum hólfum sem henta vel og til
dæmis taldist mér að í bíl sem er
fyrir þrjá þá voru sex geymslu vasar
fyrir kaffibolla og gosflöskur. Ég sá
ekkert varadekk, en í sölubæklingi er
minnst á varadekk, en eini virkilegi
mínusinn sem ég sá við bílinn er að
bekkurinn sem ætlaður er fyrir tvo
er ekki ásættanlegur fyrir venjulega
Íslendinga Hann er allt of mjór,
hentar kannski fyrir tvo krakka undir
10 ára aldri.
Vantar upplýsingar
um verð á bílnum
Það er venja mín að gefa upp verð á
bílum sem ég prófa, en í þessu tilfelli
láðist mér að spyrja um verðið á
bílnum (vona að mér verði fyrirgefið
það). Almennt þegar einhver er að
kaupa sendibíl þá fer verðið eftir
hversu mikið af aukabúnaði er sett í
bílinn og því er verð oftast í einhvers
konar tilboðspakka sem hver og einn
viðskiptavinur semur um. Allavega
líkaði mér vel við bílinn, en það eina
sem ég saknaði úr mínum gamla gula
2003 Sprinter var segulbandstækið.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Nýr framhjóladrifinn Benz Sprinter
Millilangur framhjóladrifinn Sprinter. Myndir / HLJ
Benz Sprinter lítur vel út í íslenskri haustblíðu.
Bíllinn er með vatnsheldri krossviðarplötu í gólfi og þunnum krossvið í hliðum.
Bakkmyndavélin býður upp á bæði víða og þrönga mynd.
Það sést vel í hliðarspegla.
Get ekki annað en verið sáttur við þessa eyðslu.
Nóg af hólfum fyrir pappír og kaffiglös.
Lengd 5.932 mm
Hæð 2.638 mm
Breidd 2.715 mm
Helstu mál og upplýsingar