Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands


Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Side 11

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Side 11
Ný-ung, ungliðahreyfing Sjálfsbjargar, alltaf á ferðinni ann 16. október 1993 komu æskulýðsnefndir Sjálfsbjargar í Reykjavík og Sjálfsbjargar, landsam- bands fatlaðra saman í fyrsta skipti. A þeim fundi kom fram sameiginleg- ur áhugi á því að rífa upp starfsemina hjá ungu fólki á aldrinum 16-35 ára og þess vegna byrjaði samstarf nefnd- anna. Ekki var ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur, heldur töluvert ofar og var fyrsta verkefni vort stórdans- leikur, nefndur Vor-gleði og var hann haldinn íHlégarði, Mosfellsbæ 9.apríl 1994. Þar voru ráðnir landsfrægir skemmtikraftar, má þar nefna Radíus, Raddbandið og hina útvarpsþekktu hljómsveit, Sniglabandið. Aðsókn var þokkaleg, og stemningin var hreint út sagt frábær og allir höguðu sér vel (annað var ekki hægt, því að Andrés Guðmundsson “kraftakall” var dyra- vörður!). Til þess að auglýsa þennan atburð, sem mest, þá tókum við á það ráð að hringja í alla félaga okkar og koma fram á útvarpsstöðvum. Næsta verkefni okkar var svokallaður “Átaksdagur”, sem var haldinn fyrir utan umhverfisráðu- neytið þann 10. júní 1994. Ástæðan: Lélegt aðgengi á fyrrnefndum stað, eða eins og Jóhann Pétur Sveinsson heitinn komst að orði í ræðu sinni fyrir utan ráðuneytið: “Nú viljum við fara að sjá eitthvað raunhæft gerast í breyt- ingum á óaðgengilegu húsnæði sem ætlað er öllum þegnum þessa lands!”. Þarna afhentum við “Sjálfsbjargar- ádrepuna” svokölluðu. Hér var um að ræða grjót, með táknmynd af tröpp- um og hjóli úr silfri. Svanur Ingv- arsson “Ólympíukappi” sýndi þar mikið hugrekki, skreið upp tröppurnar og afhenti ádrepuna. Á svipuðum tíma var Suðurbæjarlauginni í Hafnar- firði veitt viðurkenning fyrir gott aðgengi. s Asambandsstjórnarfundi sem haldinn var 10.-12. júní sama ár fengum við afhentan lykil að vinnuaðstöðu í Sjálfsbjargarhúsinu og tókum upp nafnið “Ný-ung, ungliða- hreyfing Sjálfsbjargar”. Vinnuaðstaðan var okkur mjög mikilvæg, vegna þess að þá þurftum við ekki að “nöldra” í skrifstofu- fólkinu ef við þurftum að hringja í félaga okkar eða reka önnur erindi. Þar á eftir héldum við ræðunám- skeið í samvinnu við Iþróttasamband fatlaðra og í lokin héldum við auð- vitað ræðukeppni. Umræðuefnið var það, hvort það ætti að taka örorku- bætur af öryrkjum yngri en 30 ára. Umræður urðu auðvitað mjög heitar og voru það hinir róttæku skerð- ingarhönnuðir sem unnu sigur á hin- um göfugu málsvörum réttlátra bóta. Eftir að hafa opnað jólapakkana í jólafríinu, fórum við að vinna að því að afhenda Þránd í götu nr. 2. Við ákváðum að leita að “fórnarlambi” fyrir utan borgarmörkin. Ekki var lengra haldið en til Hafnarfjarðar. Þar fundum við fjóra opinbera staði: bæjarskrifstofurnar, félagsmálastofn- un, félagsmiðstöðina og húsnæði íþrótta- og tómstundaráðs sem voru (og eru enn) óaðgengilegir. Við bjuggumst við miklum átökum svo að ekki þurfti minna til en sterkustu konu íslands, Sigrúnu Hreiðarsdóttur, og raddsterkan aðila, söngvarann KK. Einnig var veitt viðurkenning fyrir gott aðgengi í verslunarmiðstöðinni Miðbæ. Ekki tókum við okkur sumarfrí lengi heldur fórum í smávegis Ijáröflun og tókum að okkur 17. júní tjald í miðbæ Reykjavíkur. Sex dögum síðar (eftir að við skil- uðum tjaldinu) héldum við fræðandi, spennandi og rómantískt, erótískt kvöld í gömlu dagvistinni (The typi- cal old daycare). Aðsókn var góð, og í skoðanakönnun sem við höfðum, kom fram að allir vildu endurtaka kvöldið?? Að lokum má geta þess að Kolbrún D. Kristjánsdóttir er fulltrúi okkar í DNHFU, sem útleggst á íslensku: Æskulýðsdeild Bandalags fatlaðra á Norðurlöndum. Haldnir eru tveir fundir á ári og skipst á skoðunum, hugmyndum og mörgu fleiru. Og Anna G. Sigurðardóttir er fulltrúi okkar í Æskulýðsráði ríkisins. Ungi nr. 69, “Morgan”, Elvis, ungi nr. 66, Keflavíkurunginn, Laununginn og fyrrverandi félagsmálaunginn. Fyrir þeirra hönd og annarra vandamanna Árni Salómonsson. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 11

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.