Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands


Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Síða 22

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Síða 22
Frá Bréfaskólanum Aðalfundur Bréfaskólans var haldinn 28.júní sl. en eins og lesendum ætti að vera kunnugt þá er skólinn sjálfseignarstofnun. Eftirtalin samtök eiga aðild að Bréfaskólanum: Bandalag starfs- manna rfkis og bæja, Bændasamtök Islands, Farmanna- og fiskimanna- samband Islands, Kvenfélagasam- band Islands, Menningar- og fræðslusamband alþýðu, Ungmenna- félag Islands og Öryrkjabandalag íslands. Samband íslenzkra samvinnufé- laga sem stofnaði og starfrækti Bréfa- skólann í áratugi er nú hætt aðild að Bréfaskólanum. Aðalfundurinn hófst á ávarpi Guðnýjar Helgadóttur deildarstjóra í menntamálaráðuneytinu, sem árnaði starfseminni allra heilla. Guðný kvað hlutverk Bréfaskólans vera afar mikilvægt fyrir þá sem nýta vildu og ættu þennan kost vænstan til að afla sér viðbótarmenntunar. Hún minnti á hina öru þróun tækninnar, sem ekki sízt kæmi til góða öllu því sem snerti fjarkennslu. Stjórnarformaður Bréfaskólans, Hörður S. Óskarsson, flutti skýrslu stjómar. Meginviðfangsefni hennar hefði verið að ráða nýjan skólastjóra í stað Guðrúnar Friðgeirsdóttur sem lengi hafði gegnt störfum af stakri prýði. Guðríður Adda Ragnarsdóttir hefði einróma verið valin úr hópi ellefu umsækjenda og vissa manna væri sú að vel hefði til tekizt um valið. Hörður vék að styrk hins opinbera, sem vafi hefði um tíma leikið á að fengist, en úr því hefði blessunarlega rætzt. Hann kvað skólanum þá nauð- syn bráðbrýnasta að hafa afl til að fylgja þróun og kalli tímans hverju sinni, en til þess þyrfti vissulega meira fjármagn en skólinn hefði yfir að ráða. Guðríður Adda Ragnarsdóttir skólastjóri flutti hugvekju þarfa um leið og hún lagði fram ýmsar helztu upplýsingar um starfsemi skól- ans á liðnu ári. Þar kemur m.a. fram að Bréfa- skólinn hefur verið tengdur hinu alþjóðlega tölvuneti Intemet í gegnum Islenzka menntanetið um eins árs skeið. Sjálfsnámsefni er boðið upp á í 17 tungumálum frá dönsku og ensku yfir í arabisku og hebresku. Nýtt námsefni er í vélfræði- fimmta og síðasta bréf og viðbótarbréf í bókfærslu. Kennslugreinar eru alls 25 talsins. Sl. vor voru 416 nemendur skráðir í námi við Bréfaskólann þar af 362 í virku námi. Ritstjóri bað skólastjóra þess að mega birta hugleiðingu þá sem hér er vísað til að framan og gaf hún til þess góðfúslegt leyfi og verður hún birt síðar. Gjaldkeri stjórnar, Ólafur H. Sig- urjónsson, útskýrði og fór glögglega yfir reikninga síðasta árs svo og uppgjör fjögurra mánaða á árinu 1995, en sú samþykkt var nú gerð að reikningsár skólans verður frá 1 .apríl til og með 31 .mars ár hvert. I reikningum kom ljóslega fram, að til þess að skólinn geti fylgt fram- þróun eftir með eðlilegum og virkum hætti þarf að treysta og bæta fjár- hagsgrundvöll skólans. Ný skipulagsskrá fyrir Bréfaskól- ann var einróma samþykkt. Þar er skipulagsskráin samræmd daglegum veruleika í rekstri og tekið á ýmsu sem nauðsynlegt er að taka til áréttingar því að Bréfaskólinn er sjálfseignar- stofnun, þar sem aðildarfélögin eru opinberir stuðningsaðilar en eiga hann ekki eða tiltekinn hlut í honum. I lokin var svo tilkynnt um tilnefn- ingar í stjórn og fulltrúaráð næsta starfsárs, þar sem fulltrúi í stjórn er af hálfu ÖBÍ Ólafur H.Sigurjónsson og til vara Guðrún Hannesdóttir. I fulltrúaráði eru Ólafur H., Guðrún og Asgerður Ingimarsdóttir. Ritstjóri beinir því eindregið til þeirra lesenda sem hyggja á frekara nám eða vilja afla sér viðbótarþekk- ingar á ýmsan veg að kynna sér rækilega þá kosti mikillar fjölbreytni í námsframboði sem skólinn stendur fyrir. Sími Bréfaskólans er 562-9750 og heimilisfangið er Hlemmi 5 Hlemm- torgi, 105 Reykjavík. Eftirmáli: Þegar þetta blað var á lokastigi bárust þau tíðindi að tvenn aðildarsamtök Bréfaskólans hefðu hætt aðild sinni að skólanum þ.e.: Farmanna- og fiskimannasamband Islands og Menningar- og fræðslu- samband alþýðu. Þetta eru alvarlegar fréttir, en von ritstjóra er sú að þeir aðilar sem eftir standa sjái málefnum Bréfaskólans borgið. H.S. Máske nýta þau Bréfaskólann eða hafa nýtt. Vestlendingar vonglaðir vel. 22

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.