Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Qupperneq 23
Fréttir í fáum orðum
Eins og seinna mun koma fram hér
hafa Landssamtök áhugafólks um
flogaveiki - LAUF - nýlega leigt sér
húsnæði undir starfsemi sína og
hyggja gott til.
Húsnæðið er að Laugavegi 26, þar
sem Félag heymarlausra hefur aðsetur
sitt.
Eins og þeir vissu, sem til þekktu,
þá var aðstaðan í Armúla 5 óviðun-
andi með öllu og setti allri starfsemi
alltof þröngar skorður.
Fjölmargt er á döfinni í félagsstarfi
LAUF og þeim er samfagnað með
nýjar og betri vistarverur og til viðbót-
ar vonandi brátt í eigin eigu.
* *
Ferðaþjónusta fatlaðra sem frá
upphafi hefur verið í Sjálfsbjargar-
húsinu Hátúni 12 og átt þar sinn góða
griðastað, (að vísu ekki alltaf á sama
stað), hefur nú fært sig um set, að vísu
ekki mjög langt þó.
Nú er þessi mæta og þarfa starf-
semi komin í hús að Borgartúni 35,
þar sem eru aðalstöðvar Strætisvagna
Reykjavíkur.
Nýi síminn þarna er: 588-2340.
Að sjálfsögðu em það sömu traustu
mennimir sem sjá um afgreiðslu alla
og aka af öryggi um borg og bæ.
Megi þeim farnast vel sem farþeg-
um þeirra um framtíð alla.
* *
I myndarlegu riti Blindrafélagsins
-Blindrasýn - er skýrt frá því, að á
síðustu fjórum árum hafi Blindra-
vinnustofan tvöfaldað umsvif sín í
veltu - og geri aðrir betur.
Hlutdeild vinnustofunnar á stofn-
anamarkaði hefur aukist mjög og á
neytendamarkaði hefur líka náðst
mjög góður árangur.
Nú er mögulegt, að vörur frá
vinnustofunni verði seldar í Færeyjum
í gegnum verzlunina Bónus. Þessar
fregnir eru gott gleðiefni.
* *
Starfsnefnd Sjálfsbjargar um ferli-
mál hefur ákveðið að efna til sam-
keppni um stuttan leikþátt um ferlimál
í tengslum við þá ákvörðun nefndar-
innar að gera hinn alþjóðlega dag fatl-
aðra 3.des. að baráttudegi, hvað
varðar ferlimál fatlaðra.
Ætlunin er að gefa þjónustu- og
atvinnufyrirtækjum kost á að óska
eftir úttekt á húsnæði þeirra og fá við-
urkenningu fyrir, ef verðugt reynist.
Leikþættina sem verðlaun fengju
mætti svo sýna í tengslum við afhend-
ingu þessara viðurkenninga.
Hala-leikhópurinn mun að sjálf-
sögðu koma þar inn í myndina svo og
systurfélagið Júlía á Akureyri.
Framkvæmdasjóður fatlaðra hefur
veitt starfsnefndinni styrk að upphæð
150 þús. kr. til að verðlauna beztu
leikþættina, enda er hér vakin á
verðugan hátt og skemmtilega
nýstárlegan um leið athygli á þessu
mikla máli svo margra.
* *
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
hefur sent frá sér fréttabréf sitt, en það
er sérblað um Reykjadal og hina ein-
staklega ágætu starfsemi þar.
Blaðið hefur að geyma skemmti-
legar og fræðandi svipmyndir af starf-
inu í Reykjadal - sumardvölinni sem
helgardvöl á vetrum.
Fréttabréf ÖBÍ mun gera þessu
góða starfi sem gleggst skil síðar, því
víst er full þörf á að kynna sem llest-
um þetta farsæla framtak Styrktar-
félags lamaðra og fatlaðra.
* *
Aðalfundur Öryrkjabandalagsins
verður haldinn laugardaginn 14.okt.,
en daginn áður 13.okt. verður ráð-
stefna um hinar stöðluðu reglur SÞ.
um jafna þátttöku fatlaðra.
Svo sem venja væn er mun næsta
blað að miklu verða helgað aðalfund-
inum og ráðstefnunni.
Frá ráðstefnunni er glögglega
greint hér í blaðinu en aðalfundurinn
verður með sínu hefðbundna sniði.
* *
Framundan eru mikil og merk
tímamót hjá Starfsþjálfun fatlaðra.
Hér á Hátúnslóðinni er risin hin
myndarlegasta bygging yfir starf-
semina og nú bíða menn þess eins, að
öllum verkþáttum verði lokið, svo
unnt verði að flytja þar inn með pomp
og pragt, sem sennilega verður um
svipað leyti og þetta blað kemur fyrir
augu lesenda.
Allt um þá ágætu framkvæmd í
næsta blaði.
* *
í SÍBS fréttum kennir að venju
margra góðra grasa. M.a. er þar sagt
frá því að Samtök gegn astma og
ofnæmi hafi haldið aðalfund sinn og
þar hafi nafni félagsins verið breytt í
Astma og ofnæmisfélagið - styttra og
þjálla er það.
Formaður félagsins er Hannes B.
Kolbeins, en félagið er í SIBS og þar
með í ÖBÍ.
* *
I myndarlegu fréttabréfi Félags
heymarlausra er um margt merkilegt
fjallað en þó máske þau tíðindi stærst
fyrir heyrnarlausa að nú eru margir
þeirra í þann veginn að fá nýjan tölvu-
textasíma s.s. Anna Jóna getur um hér
í leiðaranum að framan.
118 tölvur voru keyptar samkvæmt
ákvörðun fyrrv. heilbrigðisráðherra
Sighvats Björgvinssonar og er það
góður áfangi en ljóst að þessi fjöldi
fullnægir hvergi nærri eftirspurn
heyrnarlausra.
* *
í greinargóðri skýrslu sem borizt
hefur frá Umsjónarfélagi einhverfra
er greint frá ýmsu í innra starfi fé-
lagsins þar sem víða er við komið.
Þá er getið um það að nefnd á veg-
um félagsmálaráðuneytis sé að störf-
um sem ætlað er að móta framtíðar-
stefnu í málefnum einhverfra með
ákveðið teymi í huga eins og þekkist
t.d. í Svíþjóð.
í nefndinni eiga m.a. sæti: Stefán
Hreiðarsson formaður og Jarþrúður
Þórhallsdóttir og Svanhildur Svav-
arsdóttir frá Umsjónarfélagi ein-
hverfra.
* *
Hingað inn á borð hefur borizt
skýrsla Sjónstöðvar Islands þar sem
margt fróðlegt kemur fram. M.a. eru
helztu niðurstöður úr rannsókn á
högum blindra og sjónskertra
athyglisverðar vel. Atvinnuþátttaka
þessa hóps (18-69 ára) er miklu minni
en hjá öðrum Islendingum eða aðeins
48%. Nánar verður greint frá merkri
starfsemi Sjónstöðvar í næsta blaði
og skýrslan þar krufin nokkuð til
mergjar.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
23