Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands


Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Side 25

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Side 25
ljós og samhengið virðist ennþá í ólagi. Eins og flestum er kunnugt bauðst ég til að færa mig niður eftir lista flokksins í síðustu kosningum og víkja fyrir mér yngri konu, þar sem engin von var til að j afnaldrar mínir af karlky ni í þingflokknum vikju fyrir sér yngri körlum. Þetta varð til þess að ég missti þingsætið, og hefur svo sem enginn héraðsbrestur orðið við það. En þess vegna segi ég frá þessu að viðbrögðin hafa orðið spaugileg. Ekki fer ég svo úr húsi að ég hitti ekki fólk sem harmar fjarveru mína af þingi. En aukasetningin fylgir gjaman: “Eg hef reyndar aldrei kosið ykkur, en ég vil hafaþig”. Tja, meningen er god nok, segir danskurinn. En hún dugar bara ekki. Ekki var ég heldur fyrr komin í tryggingaráð en ég fékk bréf frá fötl- uðum manni sem fagnaði því “að loks væri komin almennileg manneskja” í ráðið. Mér hefði þótt Iofið gott ef þessi sami maður hefði ekki boðið sig fram á listum ýmissa flokka á undan- förnum árum - en alls ekki á listum flokksins míns. Þessi góði vinur tók sér stöðu með þeim frambjóðanda sem sagt hafði hátt og hvellt “já” við allri þeirri niðurrifsstarfsemi sem gerð var í tíð síðustu ríkisstjómar í heil- brigðis- og félagsmálum. Skáldið Berthold Brecht segir í frægum söng að menn liggi eins og þeir hafa búið um sig, og þetta vita rey ndar allar hús- mæður líka. Þar er beint samhengi á milli athafna, sem eitthvað skortir á að menn hugsi um. Og það er þetta sem ég held að sé hálfur vandinn sem þjóðin okk- ar á við að glíma. Sinnuleysi og sof- andaháttur manna eru ekki aðeins leiðinleg fyrirbæri, heldur beinlínis stórhættuleg. í lýðræðisþjóðfélagi hefur enginn leyfi til að láta sig engu varða aðgerðir og afstöðu stjómmála- manna til manna og málefna. Og þar eru fatlaðir engin undantekning. Að sjálfsögðu ekki. Það er heldur ekki fötluðum til farsældar - né nokkrum öðrum - að enginn þori að gera athugasemdir við það sem aflaga kann að fara í meðferð fjármuna sem eiga að nýtast þeim sérstaklega. Sem fjárlaganefndar- maður sl. fjögur ár varð ég illilega vör við að það olli undrun ef ekki hneyksl- an, ef ég leyfði mér að biðja um upp- lýsingar um meðferð fjármuna sem merktir voru fötluðum. Sérstaklega hneyksluðust þeir sem engan áhuga hafa nokkru sinni sýnt þeim mála- flokki. Þeir eru nefnilega ákveðnir í að vera svo “góðir” við fatlaða, að þeir kjósa að láta allar dellur í þeim her- búðum afskiptalausar. Sá grunur læddist stundum að vondri stjórn- málakonu að þeir byggjust ekki við miklum vitsmunum þaðan. Eg hef hins vegar þá sérviskulegu afstöðu sem stjómmálamaður að vera ekkert betri við einn fremur en annan. Eg er engin góðgerðastofnun fremur en aðrir á Alþingi íslendinga. En ég vona að ég sé heldur ekki vond við neinn, hvorki fatlaða né aðra. ingmönnum er hins vegar sú skylda á herðar sett að tryggja rétt allra Islendinga í samfélaginu og skipta sameiginlegri eign þeirra rétt- látlega, hvernig svo sem við erum af guði gerð og hvað sem komið hefur fyrir okkur. Og það er ekkert smá- verkefni og kemur þeirra eigin hjarta- gæsku ekkert við. Það vill nefnilega svo skringilega til að við eigum ÖLL sameiginlega sjóði landsmanna. Væri þeim réttlátlega skipt þyrfti enginn að líða neyð í landinu okkar. En það er ömurlegt að hlusta á yfirborðslegt hjal um fatlaða úr munni þeirra sem vísvit- andi flytja í sífellu sameiginlega sjóði okkar á æ færri hendur. Og enn ömurlegra að nokkur fatlaður maður skuli kjósa þá. Kannski væri ráðið til að kynna þá sem við fötlun búa og þá sem málum þeirra ráða - stjórnmála- mennina - að skylda hina síðamefndu til að vinna í Tryggingastofnun í nokkra mánuði. Þásæjuþeireftil vill með eigin augum hvert víti fjölmargir landsmenn verða að búa við sakir sjúkdóma og fötlunar. Þá hættu fatlaðir kannski að vera einhver óskilgreindur hópur sem menn bulla eitthvað um þegar það á við og einkurn fyrir kosningar. Það víti sem hver og einn fatlaður einstaklingur verður að ráða við er óskiljanlegt þeim sem ekki þekkir til þess fólks. Við því getum við hin lítið gert nema að reyna að skilja með okkar takmarkaða ímyndunarafli að fatlaðir eiga bara eitt líf eins og við hin. En við getum sameiginlega létt þeirn lífið eins og unnt er með skynsamlegri skiptingu fjármagns ogþjónustu. Þausamskipti verða aldrei í lagi fyrr en þau fara fram á jafnréttisgrundvelli - í alvöru. Og gagnkvæmri virðingu. Og svona rétt til þess að lesendur þessa blaðs haldi ekki að grein- arhöfundur sé hjartalaus með öllu, skal það upplýst að fyrir kom að ég snökti í bílnum á leiðinni heim úr Tryggingastofnun. Lítið barn sem kom í þennan heim án augnanna sinna bleytti koddann það kvöld. Maður spurði sig: hvað get ég gert? Og gat ekki neitt. Og maður skammast sín þegar maður hittir svo ungan og glæsi- legan mann, þetta sama barn, fimmtán árum seinna og sér að hann hefur ráð- ist á vandann með aðstoð þess ótrú- lega fólks sem að slíkum málum vinn- ur. Það skal líka játað að sennilega hefði það orðið þjóðfélagsmein, ef greinarhöfundur. sem er óþolandi þá sjaldan hann fær kvef, hefði sjálfur þurft að glíma við fötlun af einhverju tagi. Það hefði enginn verið öfunds- verðurafkompaníi viðhann. Enþað er kannski í þeirri vissu sem skilningur á samhenginu byrjar. Guðrún Helgadóttir. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 25

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.