Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands


Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Side 31

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Side 31
til að þrek hafi aukist, stirðleiki og verkir hafi minnkað. Þá hafði starfs- þrek aukist hjá ríflega helmingi svar- enda. Þjálfunin fer fram í sal og sund- laug. Stærra húsnæði - nýir möguleikar igtlækningastöðin er á 3. hæð að Armúla 5. Aðstaða til fræðslu og félagsstarfsemi á hæðinni er mjög ófullkomin. Félagið réðist í það stórátak í desember 1993 að kaupa 2. hæð í samnefndu húsnæði með það að markmiði að bæta aðstöðu til félagsstarfs, fræðslu og hópþjálfunar. Endurbótum á hæðinni er nú að ljúka og hefst starfsemi þar nú í september. Þegar starfsemi hefur hafist að fullu má segja að gigtarfólk á Islandi hafi eignast miðstöð þar sem fagleg þekk- ing og sjónarmið sjúklinga eru leidd saman. Það má segja að með nýju aðstöðunni verði allt félagsstarf auð- veldara, svo og öll miðlun þekkingar hvort sem um er að ræða fræðilega þekkingu eða reynslu sjúklinganna sjálfra. Þróun hópþjálfunar og teng- ing við þá þekkingu sem fyrir er á gigtlækningastöðinni verður auðveld- ari. Framtíðarsýn Gigtarfélag Islands. æta þarf meðferðarmöguleika gigtarfólks, biðtími eftir bækl- unaraðgerðum er alltof langur og nauðsynlegt er að styrkja alla þjónustu á landsbyggðinni. Einkum á þetta við iðju- og sjúkraþjálfun sem og aðgengi að gigtarsérfræðingum. Margur heldur gigtina sjálfsagðan fylgifisk elli og jafnvel vosbúðar og fátt eitt við henni að gera og bitnar slfkt oft á fólki þar sem síst skyldi. Raunin er sú að þekking á meðferð gigtar fleygir fram og margt er hægt að gera til þess að bæta líðan og koma í veg fyrir skaða. Viðhorfi almennings til gigtar- sjúkdóma verður að breyta og verður það einungis gert með auknu upplýs- inga- og fræðslustarfi, áherslu á aukna og “rétta” þjálfun og öflugu skilvísu rannsóknarstarfi. Gigtarfélag íslands bindur miklar vonir við nýútkomna landsáætlun um gigtarvarnir sem unnin var af nefnd skipaðri af heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu. Nefndin lauk störf- um í júní sl. Áætlunin felur í sér stefnumörkun fyrir gigtarvarnir og þjónustu við gigtarfólk sem hafa mun áhrif nokkuð inn í 21. öldina. Það er trú stjórnar félagsins að markviss framkvæmd áætlunarinnar muni bæta verulega hag gigtarfólks og meðferðarmöguleika. Gigtarfélag Islands hyggst leggja sitt af mörkum til þess. Emil Thóroddsen Litið í landsáætlun um gigtarvarnir Arið 1993 varlögðframáAlþingi tillaga til þingsályktunar í tilefni norræns gigtarárs 1992. Fyrsti flutn- ingsmaður var núv. heilbrigðisráð- herra, Ingibjörg Pálmadóttir. Hinn 7.maí samþykkti Alþingi svo tillöguna og er þingsályktunin svo- hljóðandi: “Alþingi ályktar, í tilefni af norr- æna gigtarárinu 1992, að fela heil- brigðisráðherra að móta tillögur um eflingu rannsókna á gigtarsjúkdóm- um í samvinnu við Gigtarfélag Islands. Jafnframt beiti ráðherra sér fyrir stórauknu forvama- og fræðslu- starfi um gigtsjúkdóma í samráði við Gigtarfélagið. Alþingi ályktar enn fremur að fela heilbrigðisráðherra að gera raunhæfar tillögur um áframhaldandi eflingu lækninga, hjúkrunar og endurhæf- ingar fyrir gigtsjúka hér á landi og stuðla að aðgerðum er koma í veg fyrir vinnutap og langvarandi örorku vegna gigtsjúkdóma.” Þetta var ályktunin en Gigtarfélag Islands mun einmitt hafa haft nokkurt frumkvæði um flutning málsins á Alþingi. Nefnd til að fjalla hér um og gera tillögur var svo á laggir sett 21 .okt. ’ 93 undir formennsku Guðjóns Magnússonar skrifstofustjóra, en aðrir í nefndinni voru Frosti F. Jóhannsson framkv.stj. og síðarEmil Thóroddsen framkv.stj. frá Gigtarfélagi íslands, Júlíus Valsson læknir frá Trygginga- stofnun ríkisins, Kristján Erlendsson læknir frá Læknafélagi Islands og Kristján Steinsson læknir frá Land- læknisembættinu. Nefndin hefur nú skilað frá sér ítarlegu áliti sem innifelur fróð- leik mikinn sem ekki er á færi leik- manns að túlka nema að litlu leyti. I fyrsta kaflanum um skilgreiningu - tíðni og orsakir kemur fram að hinir einstöku gigtarsjúkdómar teljist hátt á annað hundrað og áætlað er að fimmti hver Norðurlandabúi fái ein- hvern tímann gigt á ævinni. Fjórir aðalflokkar gigtsjúkdóma eru: Bólgusjúkdómar, vefjagigt, slitgigt og beinþynning. Eðli þeirra, einkennum og afleiðingum er lýst hverjum fyrir sig. Kostnaður þjóðfélagsins vegna gigtarsjúkdóma er tíundaður s.s. unnt er, en hann er gífurlegur, auk ómældra þjáninga skapa þeir veruleg fjárhags- útlát fyrir þjóðfélagið sem og sjúkl- ingana sjálfa. Af skráðum öryrkjum 1990 á landinu öllu, 7489 talsins, voru 1395 öryrkjar vegna sjúkdóma í hreyfi- eða stoðkerfi, nálguðust sem sé 20% allra öryrkja. Einnig kemur fram, að kostnaður vegna sjúkraþjálfunar sem að lang- mestu leyti er veitt vegna stoðkerfis- vandamála hefur hækkað úr 201 millj.kr. 1991 í 424 millj.kr. 1994. Áherzla er lögð á það að eðlilega skilar hver króna til gigtarlækninga sér til baka og vitnað til bandarískra arðsemiútreikninga sem hafa leitt í ljós að næst því að fyrirbyggja slys með því að nota bílbelti og hjálma borgar sig að lækna gigt. Eftir þennan inngang koma tillög- Sjá næstu síðu FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 31

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.