Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands


Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Blaðsíða 37

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Blaðsíða 37
Baráttutæki öryrkja Oryrkjar hér á landi búa við ákaflega léleg kjör og er í raun og veru haldið á botni samfélagsins með því að hafa bætur þeirra svo lágar að þeir geti aldrei um frjálst höfuð strokið, eða yfir höfuð leyft sér nokkum skapaðan hlut. Öryrkjar eru mjög misleitur hópur og vonlaust verk að reyna að setja þá alla undir sama hatt, eins og svo oft er gert. Það eru til öryrkjar sem búa alfarið á stofnunum þar sem frumþörfum þeirra er sinnt, og þeir fá eitthvað smáræði í vasapeninga. Það eru öryrkjar sem að hluta til eru tengdir stofnunum og fá hluta af bótum greiddar. Það eru öryrkjar sem búa einir og fá fullar bætur, öryrkjar sem búa með maka og börnum eða einungis með börnum sínum. Það eru öryrkjar í foreldrahúsum, í leiguhúsnæði og t eigin húsnæði. Svona getur þetta verið á alla lund og þarfimar jafn ólíkar og einstaklingarnir eru margir. Kannski er það það eina sem öryrkjar eiga sameiginlegt, að þeir hafa af ólíkum ástæðum skerta starfsorku. Á sumum má sjá að þeir eru af ein- hverjum ástæðum öryrkjar, en svo eru aðrir sem manni mundi aldrei detta í hug að nokkuð væri að. Það sem mér finnst einkenna þennan hóp hvað mest, er að það virðist vanta baráttutæki til að ná fram betri eða öllu heldur mannsæmandi lífskjörum. Kannski er það ekki til? Öryrkjar geta t.d. ekki lagt niður vinnu og farið í verkfall. Það hlýtur að felast mikið umkomuleysi í því að vera svona gersamlega upp á náð annarra komnir. Upp á náð stjórnmála- manna og embættismanna sem eiga miserfitt og kannski aðallega erfitt með að setja sig í spor annarra. Það þýðir ekki lengur að setja bara plástur á sárin. Margrét Guðmundsdóttir. allra heilla árnað og hamingju- og velfarnaðaróskir flytur ritstjóri öllu MS fólki og öðrum sem þarna eiga væna vist. Óskin allra bezt er sú að áfram skuli haldið í eining og af krafti svo enn megi árangur sjá sem alltaf áður. Af hégómagimi sinni lætur ritstjóri hér fylgja með sitt litla ljóð, sem segir máske meira en mörg orð í máli löngu. H.S. Mynd í örorkuskírteini? Þvf ekki? Eg hef leitt hugann að því hvers vegna örorkuskírteini séu ekki með mynd af korthafa, svona til að taka af öll tvímæli, og ekki komist að neinni sérstakri niðurstöðu. Ég veit dæmi þess að öryrkjar eru að lenda í stappi t.d. í apótekum og við að kaupa strætisvagnakort, þar sem þeir eru rengdir um að vera korthafar. Þar sem þessi kort skipta miklu máli fyrir viðkomandi korthafa, þegar um ýmis útgjöld er að ræða, er í raun og veru alveg undarlegt að ekki skuli vera mynd í þessum skilríkjum, eins og t.d. í ökuskírteinum fólks. Mér fyndist full ástæða til að taka þetta mál upp í tryggingaráði. Þetta er brýnt mál fyrir öryrkja. Það er heldur leiðinlegt að standa við afgreiðsluborð og þrasa við starfsfólkið um það hver maður er. Og jafnvel, eins og ég veit glöggt dæmi um, að þurfa að bíða á meðan hringt er niður í Tryggingastofnun til að kanna hvort viðkomandi sé sá sem hann segist vera. Þetta geta verið bæði vandræðalegar og niðurlægjandi uppákomur, svona svolítið eins og það eigi að sjást glöggt á viðkomandi að hann eða hún sé öryrki. Ég legg til við viðkomandi ráðamenn að reynt verði að breyta þessu, ég er viss um að það er hægt með frekar lítilli fyrirhöfn. Margrét Guðmundsdóttir. Hlerað í A: „Hvernig stóð á því, að þú hættir að syngja í kirkjunni?" B: „Jú, sjáðu til, mig vantaði einn sunnudag, en eftir messu lýsti fjöldi kirkjugesta ánægju sinni yfir því, að nú loksins væri þó búið að gera við orgelið“. * Aldraður klerkur messaði eitt sinn í kirkju, þar sem hann hafði á yngri árum þjónað sem aðstoðarprestur. Hann hóf ræðu sína með þessum orðum: „Kæru bræður, það hryggir mig að sjá hér fjarverandi mörg gömul andlit, sem ég var vanur heilsa með handabandi að lokinni messu“. * Frambjóðanda einum var borið á brýn á fundi, að hann neyddi konu sína til þess að hafa sömu stjórnmálaskoðun og hann. Þessu svaraði frambjóðand- inn þannig: „I fyrsta lagi hefi ég aldrei reynt að hafa áhrif á skoðanir konu minnar; í öðru lagi hefi ég aldrei talað um stjórnmál við hana; í þriðja lagi hefir hún ekkert vit á stjórnmálum og minnist aldrei á þau; og í fjórða lagi á ég alls enga konu“. * „Undarlegt er vatnið“, sagði karlinn. „Þegar gat kemur á vatnskönnuna streymir vatnið út úr henni, en þegar hornum gat kemur á skóna mína rennur vatnið inn í þá“. * Okkur öllum heima þótti dæmalaust leiðinlegt að þvo upp - mömmu líka. Þess vegna gátum við aldrei skilið að hún aftók alltaf með öllu að við efnuðum okkur í uppþvottavél. Hún var ófáanleg til að ræða það mál. Okkur fannst þetta óskiljanlegt og út í hött - þangað til við fórum í matar- boð til frænku. Eftir matinn hjálpaði mamma henni að bera fram og ekki leið á löngu áður en hávær hlátrasköll framan úr eldhúsi kölluðu okkur þangað líka. Þá lágu þær báðar á hnjánum fyrir framan uppþvotta- vélina, mamma og frænka, og horfðu í gegnum glerið í hurðinni. Frænka var að útskýra fyrir mömmu að í upp- þvottavélum væri það vatnið, sem veltist um, en ekki þvotturinn eins og í þvottavélinni fyrir fatnað. * Smásnáði teymdi asna fram hjá her- búðum. Hermennirnirætluðu að gant- ast við hann og einn þeirra hrópaði: „Hvers vegna heldur þú svona fast í bróður þinn, drengur?“ En snáðinn ansaði af bragði: „Svo hann gangi ekki í herinn“. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 37

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.