Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands


Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Síða 44

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Síða 44
Frá sögustund í Dagvist Sjálfsbjargar. löggjafans varðandi tryggingamál lífeyrisþega“. I samræmi við síðustu málsgrein samþykktarinnar mun Öryrkjabanda- lagið hafa kannað forsendur fyrir útreikningi hækkunarinnar og um það segir svo í grein þinni á bls. 27 í 2. tbl. 1995, (tilvitnanir innan gæsa- lappa): „Þessi tenging (tenging bóta- hækkana við hækkun almennra launa, (innskot mitt)) hefur verið óumdeild í túlkun og framkvæmd þegar um prósentuhækkanir launa hefur verið að ræða, en öðru máli gegnir nú þegar krónutöluhækkun gildir o.s.frv.“. essi túlkun er aldeilis óskilj- anleg og ég mótmæli henni harðlega. Fyrir slíkri túlkun er enginn fótur í 65. gr. almannatrygg- ingalaganna (sjá síðar) enda úti- lokað að ekki sé hægt að hækka lífeyrisgreiðslur um fasta krónutölu með sama hætti og aðra launataxta. Síðar segir í grein þinni: „Miðað við hinn lága tekjugrunn öryrkja ætti þessi krónutöluhækkun að skila sér til fulls en því er nú ekki aldeilis að heilsa“. Á þessa fullyrðingu, um fulla hækkun fellst ég, enda er hún í samræmi við mótmælaályktunina. En síðar segir: „Þar kemur til sú við- miðun lagaákvæðis að „vikukaup verkafólks“ að meðtöldum bónus og miðað við meðaltal í þokkabót skuli gilda. Og með þessari viðmiðun fæst prósentan 4,8 í stað þeirrar 7,4% sem t.d. sá láglaunahópur fengi hjá ríkinu með sama tekjustigi“. Þessari staðhæfingu mótmæli ég einnig harðlega, og tel að fyrir henni séu engar forsendur og færi ég fyrír því eftirfarandi rök: Samn- ingarnir sögðu svo um hækkun launa: „Frá undirskriftardegi samnings þessa skulu öll mánaðarlaun og mán- aðarlaunataxtar hækka um kr. 2.700“, og „til viðbótar almennri hækkun samkv. 1. mgr. hækka lægri launa- taxtar sérstaklega um kr. 100 fyrir hverjar 4.000 krónu sem taxtinn er lægri en kr. 84.000. Hér er hvergi talað um bónus eða álagsgreiðslur né minnst á nokkur meðaltöl, enda voru samningar þessir láglaunasamningar sem tryggja áttu hækkun lægstu kaup- taxta í þjóðfélaginu og þar á meðal samsvarandi hækkun lífeyrisgreiðslna almannatrygginga, enda hljóðar 65. grein þeirra laga nr. 117/1993 svo: „Nú verður breyting á viku- kaupi í almennri verkamannavinnu og skal ráðherra þá innan sex mánaða breyta upphæðum bóta samkvæmt lögum þessum og greiðslum samkvæmt 59. gr. í sam- ræmi við það“. Ef menn eru í einhverjum vafa um það hvað vikukaup er mikill hluti af mánaðarlaunum, þá ber að deila með meðaltalstölunni 173,33 í mánaðar- launin og fæst þá tímakaup í dag- vinnu, sem margfaldast með 40, þar sem löggilt dagvinnuvika er 40 stundir. Næst segir þú í nefndri grein: „Þetta (hækkunin) átti jafnvel að vera 4,3% skv. hinum beinhörðu undarlegu útreikningum, en þökk sé þeim ASÍ-mönnum þó fyrir hálfa prósentið“. Til að forðast allan misskilning, þá geri ég mér grein fyrir því að hér ert þú að túlka orð og útreikninga ASI- manna, sem segir þá í leiðinni að þeir beri á einhvern hátt ábyrgð á þessum 4,8% útreikningi á hækkun lífeyris samanber fyrmefnda reglugerð. Sé svo finnst mér það firra að þakka þeim, heldur tel ég að sam- tökin eigi að víta það harðlega að alþýðusamtökin skuli ekki halda betur á rétti lífeyrisþega og tryggja þeim sömu kjarabætur og öðrum, bætur í samræmi við gerða samn- inga og lagaákvæði. Öllum má vera ljóst að sam- kvæmt samningum og lagaákvæð- um bar að greiða lífeyrisþega sem hafði óskertan grunnlífeyri og tekjutryggingu, þá kr. 35.013, fulla launahækkun kr. 2.700 sem fasta grunnhækkun og kr. 1.000 í lág- launabætur. Samanber kauptaxta Verkalýðsfélagsins Einingar á Akur- eyri voru t.d. byrjunarlaun almenns kauptaxta verkafólks fyrir kjarasamn- ingana kr. 43.116 og hækkuðu í kr. 46.838, eða um kr. 3.722. Allt tal um bónusgreiðslur og meðaltöl er því eintóm firra og reikni- kúnst til að hafa af lífeyrisþegum samnings- og lögbundnarkjarabætur. Ekki er hægt að ljúka þessum tilskrifum án þess að minnast á þátt ráðherra heilbrigðis- og trygginga- mála í því að hlunnfara lífeyrisþega um lögbundna launahækkun. Fyrrnefnd mótmælaályktun fjall- aði aðeins um þá skerðingu sem sá yrði fyrir er nyti allra fjögurra bóta- flokka trygginganna, þ.e.a.s. grunnlíf- eyris, tekjutryggingar, heimilisupp- bótar og sérstakrar heimilisuppbótar, og byggði því á þeim forsendum sem útreikningur á kjarabótum til lífeyrisþega hefur farið eftir í Tryggingastofnun ríkisins, sem er rangur. Með útdeilingu hækkunar- innar á þessa fjóra bótaflokka er ekki verið að leita eftir réttlátari skiptingu, heldur að spara út- greiðslur og koma í veg fyrir að líf- eyrisþegar fái þann hlut sem þeim ber. Ef rétt væri skipt á hækkunin eingöngu að greiðast út á grunn- lífeyrinn og tekjutrygginguna vegna þess að það eru bótaflokkar sem allir lífeyrisþegar eiga rétt á. Hinir flokkarnir, heimilisuppbót og 44

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.