Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands


Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Síða 46

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1995, Síða 46
• í B RENNIDEPLI Núverandi ríkisstjórn hefur kynnt nokkuð þann staðfasta ásetning sinn að stefna megi sem fyrst að hallalausum fjárlögum og í því sambandi tæpt á nokkrum leiðum að því marki. Allt er þetta óljóst enn, en auðvitað munu fjárlög næsta árs gefa ákveðinn grunntón í þessum efnum. Frumvarp til þeirra fjárlaga mun fram komið þegar þetta tilskrif kemur fyrir sjónir lesenda og verður forvitnilegt að sjá hverju þar vindur fram og hver leið- arvísir það verður um áherzlur stjórn- valda á þessu kjörtímabili. Það þarf engan að undra þó bæði trygginga- og heilbrigðismál heyrist nefnd þegar að hallalausum fjárlögum skal stefnt, svo drjúgur hluti ríkis- útgjalda sem felst í þessum tveim málaflokkum. En vissulega setur um leið að manni nokkurn ugg um það, að eins og stundum áður, þá verði helzt horft til þessara málaflokka þegar marg- frægan spamað skal framkvæma eða þegar niður skal skera það sem út af stendur. Hitt vona ég að ráðamenn viti, að það stendur nákvæmlega ekkert út af hjá miklum fjölda lífeyrisþega, að þar er víða við sultarmörk lifað m.a.s. á hagfræðilegan mælikvarða. Því skal ekki trúað að nú verði enn höggvið í þann knérunn að horfa fyrst til fjárfrekra málaflokka án tillits til þýðingar þeirra fyrir fjöldann, án tillits til þeirra bráðbrýnu þarfa sem þar verður að sinna sem allra bezt. Svo vandmeðfarin og viðkvæm eru öll þessi mál að þar þarf með fyllstu gát að fara. Varðandi tryggingamálin þá verð- ur vart öðru trúað en stjórnvöld geri sér þess glögga grein hversu lágur tekjugrunnur alltof margra lífeyris- þega er og þar er einmitt þörfin mest að koma hinum margrómaða efna- hagsbata alla leið til skila og skipta. Flver skerðing á þeim bæ hefur skortinn að fylginaut. Stjórnvöld gera sér vonandi einnig góða grein fyrir því, hvert hlutverk bíður þeirra að fá jafnar skipt þeim mikla þjóðarauði sem sannarlega er til staðar. Vandaverk vissulega en nauð- synjaverk eitt hið mesta í samfélags- málum okkar. I ávarpi landlæknis annars staðar í þessu blaði segir hann að heilbrigðis- málin og þá um leið tryggingamálin að sjálfsögðu megi aldrei lúta lög- málum markaðshyggjunnar, slíkt sé einfaldlega eðli þeirra. Þessi sannindi er stjórnvöldum á hverjum tíma hollt að hafa í huga. Fyrr á þessu ári skilaði nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins frá sér ítarlegu áliti um atvinnumál fatlaðra. Nefndarálitið fjallar þannig um þessi mál allt frá möguleikum afþreyingar sem þeir höfundar þar nefna iðju og yfir til fullrar atvinnu- þátttöku. A vinnslustigi þessa álits fékk Öryrkjabandalag íslands það til umfjöllunar og ýmsar ábendingar og athugasemdir komu þar fram, sumar komust alla leið inn í álitið, aðrar náðu ekki náð höfunda eins og gengur. Um þetta álit hefur enda verið fjallað vel og rækilega af fulltrúa Öryrkjabanda- lagsins í nefndinni, Kristjáni Valdi- marssyni, sem hefur ítrekað gert þessum málum mjög góð skil hér í blaðinu. Flér gildir auðvitað eins og alltaf hvað gert verður með þetta vel unna álit sem á svo mörgu tekur. Verður það nýtt til framhaldsvinnu þann veg, að áformin í álitinu megi komast til fullrar framkvæmdar eða verða örlög þess að geymast í skúffum ráðuneytisins ásamt ótölulegum öðrum af ýmsu tagi? Eitt er víst að ef vilji er fyrir hendi má smíða væn vopn úr mörgu því sem álitið inniber til hagsbóta fyrir hin ýmsu stig atvinnumála fatlaðra. Félagsmálaráðherra er vissulega treyst hér til viturlegra verka í kjölfarið, því miklu skiptir að svo ágæt forvinna sé ekki látin forgörðum fara. En um leið leitar hugurinn til hins almenna ástands á vinnumarkaðnum og þess alltof mikla atvinnuleysis sem þar virðist vera komið til að vera. Þar er hlutverk stjórnvalda mikið og örðugt um leið að finna sem allra flest- um vinnufúsum höndum framtak gott til iðju og athafna. Hitt er morgunljóst að erfiðara - mun erfiðara verður að hrinda áformum í áliti nefndarinnar í fram- kvæmd ef almennt ríkjandi atvinnu- leysi er í landinu. Þess verður æ oftar vart að atvinnu- leysið nú bitni á öryrkjum, þó ekki sé enn unnt að fullyrða að atvinnuleysið bitni í ríkari mæli á öryrkjum en öðr- um. Sú er þó alltaf hættan á þegar til lengri tíma er litið og um langvinnt ástand verður að ræða. Eitt er vitað að án beinna og markvissra aðgerða í atvinnumálum verður ekki gegn rótum vandans ráð- izt - því fyrr - því betra. Við skulum því vona að allir legg- ist á eitt til aðgerða svo útrýma megi 46

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.