Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Síða 6

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Síða 6
SJUKLINGUR, GRÆDDU SJÁLFAN ÞIG! - segir fyrrum endurhæfingarfulltrúinn Carl Brand sem mótaði að hluta endurhæfingu öryrkja og nýja reglugerð í ferlimálum Carl Brand er þriggja þjóða sonur. Fæddist í Regina í Kanada 1918, hálfdanskur faðir hans í Jensens-húsi á Eskifirði 1888, en vestur- íslensk móðir hans, sem fæddist í Winnipeg 1894, átti alíslenska foreldra. Líf hans er litríkt eins og upp- runinn. Sautján ára kom Carl til lslands til að læra íslensku, en á Islandi staðfesti hann ráð sitt. A eina Islendingadeg- inum sem hald- inn var hér árið 1939 hitti hann konuefnið sitt, vestur-íslensku stúlkuna Hlín Eiríksdóttur. “Það var mesta gæfuspor mitt í lífinu,” segir hann. Móðir hans vildi að hann yrði prestur, en örlagakeðjan undirbjó manninn fyrir starf endurhæfing- arfulltrúa, sem krafðist innsæis á andlegu, sálfræðilegu og læknis- fræðilegu sviði. “Öll mín fyrri störf sýnast undirbúningur fyrir starfið sem ég gegndi í 23 ár - til 77 ára aldurs.” A sólskinsdegi um páska var Hraunborgin við Alftanesveg heim- sótt. í þessari einstæðu náttúruparadís hafa Carl og Hlín búið frá 1954 - skapað fjölskyldugarð - tvær dætr- anna búa hér, sú þriðja ekki langt undan og uppeldissonurinn er að byrja að byggja. Grannur og skarpleitur maður tekur á móti mér og talar íslenskuna eilítið syngjandi. Líkami hans er stæltur eins og hjá ungum manni, þótt æviárin séu áttatíu, enda maðurinn góður íþróttamaður á yngri árum - og nú grænmetisæta sem ræktar sitt fæði sjálfur. I skjólsælum hraunbolla glittir í gróðurhús og kál- garð, og hér er vakað yfir hverjum gróðursprota. “Kartöflur haustsins eru nýbúnar, en ekki langt í gulrætumar,” segir Carl brosandi. I byrjun apríl eru brumin bústin hjá Carli, eldfjalla- moldin gróðursæl hér eins og í Afrrkulandinu Kenýa, þar þarf að tempra hita, hér kulda. - Af hverju skyldi ekki vera meira ræktað í íslensku hrauni? Carl og Hlín eru í nánari tengslum við gróður jarðar en íslendingar yfir- leitt, líkt og þau beri innra með sér uppruna sinn í skóglendinu vestan- hafs. Tignarleg grenitré umlykja hraun- bolla með notalegu húsi sem Carl byggði að mestu sjálfur. Stofan með bjálkabitum í lofti, hraunhellulögð verönd, sólskin og friðsælt umhverfi streyma inn um opnar dyr. Frá suður- verönd sér niður í fagra hraungjá og fornan eldgíg sem þjónar nú hlutverki eldstæðis. Norðan megin hússins girðir aflangur hraunveggur af djúpan grenilund. “Þetta er skipsþilið mitt,” segir Carl, sem nýtur þess að standa þarna og horfa yfir trjátoppana. Næmt auga hans fyrir tilbrigðum eldhrauns- ins sést vel á gönguferð um Hraun- borgina: Vel gerð vegghleðsla, til- búinn lækur svo að vatnsflötur geti endurspeglað fagrar hraunmyndir í morgunsól. Islenska hraunið hefur kallað fram hið listræna hjá mann- inum Carli. Sérstœð búseta tengist uppruna “Við Hlín byrjuðum að búa í Laugardal. Þar teiknaði ég og byggði fyrsta húsið okkar og þar eru dætur okkar þrjár fæddar. Eiríkur Hjartarson, faðir Hlínar plantaði fyrstu trjánum í Laugardal um 1929 til að skapa skjól fyrir konuna sína, eins og ég gerði hér. Móðir Hlínar var Vestur- Islendingur, Valgerður Armann, fædd og uppalin í skóglendi N-Dakota og þótti íslenska umhverfið berangurslegt. Eiríkur var frá Svarfaðardal og hafði yndi af skóg- rækt. Þau hjónin byggðu hús að Þvottalaugarmýrarbletti 14, en Eiríkur skírði blettinn Laugardal, þar sem konan hans átti ætt að rekja til Laug- ardals / Apavatns. Dalurinn var þá svo sökkvandi mýri, að uppsteyptur hús- kjallarinn sökk fljótlega þannig að steypa þurfti hann upp aftur. Fjölskylda Hlínar lagði grunn að trjáræktinni í Laugardalnum og Hlín rak gróðrarstöð þar á árunum 1938- '54. En Laugardalurinn var of mið- svæðis, borgin vildi fá þessar grónu lóðir, auka trjáræktina og skapa “bótanískan” garð. Fjölskyldan varð að selja - og það var erfitt að þurfa að segja skilið við trén og skjólið sem búið var að byggja upp. Við vorum svo sár, að við vildum helst segja skilið við Reykjavík. Eiríkur keypti jörðina Hánefsstaði í Svarfaðardal. Við fórum norður í maí 1945 til að planta þar 15-16 þúsund trjám, og ég man að það voru skaflar á leiðinni. Skjólsælir trjálundir eru sálfræði- legt atriði fyrir konuna mína og dætur. Eg varð líka að skapa skjól fyrir þær. Örlög eða undarleg tilviljun leiddi okkur Hlín í Hraunborgina. ✓ Eg hafði hannað gufu- og vatns- ketil, eins og gróðurhús voru hituð upp með og fór með teikningu í Stálsmiðjuna til að sýna hana. Þar hitti ég mann sem hafði hannað mjög svipaðan ketil, var áhugaljósmyndari eins og ég og vildi komast út í sveit eins og ég. A milli okkar myndaðist fljótlega kunningsskapur, síðar vinátta. Þetta var Hjálmar R. 6

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.