Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Page 12

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Page 12
Þjónustusetrið að Tryggvagötu 26 sótt heim s mildum maídegi lögðum við Guðríður Ólafsdóttir félags- málafulltrúi leið okkar niður í Tryggvagötu 26 hér í borg til að sjá með eigin augum aðsetur nýtt, þjón- ustusetur, hús- næði sem sex okkar ágætu að- ildarfélaga hafa fengið á leigu. í anddyri blasti við á vegg mynd- arleg kynning: Þjónustusetrið Tryggvagötu 26 og þar undir að sjálfsögðu nöfn þeirra félaga sem þarna eiga nú hið ágætasta aðsetur. Við héldum í lyftunni upp á fjórðu hæð og komum þá beint að þjónustu- setrinu en þar frammi hin snotrasta snyrtiaðstaða. Þegar inn var komið þótti okkur setursnafnið sannarlega réttnefni (sambr. óðalssetur, herra- garðssetur o.s.frv.) og var þó margt enn ógjört í miðrýminu opna og rúmgóða sem beint er gengið inn í og á fjölþættu hlutverki að gegna. Svo nýlega hafði verið flutt inn að ekki hafði enn gefist tóm til skipulagningar og umbúnaðar alls sem skyldi og verða mun, m.a. beðið eftir ljósum í loftið en maíbirtan látin duga. Fremst er fundarherbergi sem ágætt er til smærri funda s.s. stjórnarfunda. Svo koma herbergi eða skrifstofur félag- anna ein af annarri til beggja handa og ekki má gleyma eldhúskróknum góða en auðvitað hafði verið hellt upp á könnuna og við fengum ilmandi kaffi og þessa líka fínu brúntertu með. Og svo var sest og spjallað og fram kom í máli manna að fullsnemmt væri að kynna staðinn, en á það treyst að aftur liggi leið okkar í þjónustusetrið þegar allt er fullbúið og tilbúið til framtíðarnota. Við vorum sérlega heppin því þarna voru fulltrúar allra félaga utan Félags nýmasjúkra. Það var Jón S. Guðnason framkvæmdastjóri hjá LAUF sem fyrstur kom á vettvang og bauð okkur velkomin, en Margrét Njálsdóttir fulltrúi á skrifstofu og Astrid Kofoed Hansen formaður LAUFS voru þarna einnig á vettvangi og kynntu starfið ásamt þá Jóni Snævarri. Hjá Samtökum sykursjúkra var Þóra Jónsdóttir framkvæmdastjóri þeirra samtaka mætt og Jón Jóhanns- son sem sér um síma og einnig með öðrum um skrifstofu Parkissonsam- takanna, (Jón er með farsíma sem tek- ur við samtölum við félagið utan skrif- stofutíma). Þá var Rakel Garðars- dóttir á skrifstofu Umsjónarfélags einhverfra, í stjórn þar og leysir af á skrifstofunni þar í maí og júní, síðan var svo íris Ámadóttir hjá Tourette samtökunum, er þarna einu sinni í viku þegar skrifstofan er opin sem sjálfboðaliði. Það var ekki amalegt að hitta þetta fólk allt á sama staðnum eina morgun- stund og látið bíða seinni heimsóknar að fara yfir það sem á döfinni er hjá einstökum félögum, enda greinilega nægileg verkefni að undanförnu að koma sér hreinlega fyrir og margt þó ógertenn. Enafhverjuhérogþátek- ur Jón S. Guðnason að sér fróðleikinn en þau hin kveða hann hafa unnið frábærlega hér að, við útvegun hús- næðis, við alla skipulagsvinnu o.fl. o.fl. Jón lætur lítið yfir en segir að þau hafi stofnað húsfélag um þennan íverustað sinn sem félögin leigja og væri Jón Jóhannsson þar formaður, en öll félögin þar með jafnan rétt til áhrifa allra. egar fór að þrengja að á Lauga- vegi 26 með eigendaskiptum þar þá kom upp þessi ágæta hugmynd um sameiginlegt húsnæði og Jón Snævarr fór þegar á stúfana. Fór hann fyrst til heilbrigðisráðherra sem tók honum mjög vel og síðan til fjármálaráðherra sem einnig tók honum hið besta og síðan fóru hjólin að snúast með dyggri hjálp þessara ráðherra sem báðum leist vel á sameiginlega aðstöðu og ekki síður skynsamlega nýtingu fjármuna, sem þetta leiddi af sér. Þau gátu þess í leiðinni að þarna hefðu áður átt aðsetur Goéthe-samtökin, Germanía og þýska bókasafnið. Hús- næðið mun með góðri geymslu- aðstöðu vera um 270 ferm., staðsetn- ing góð og aðgengi gott þegar upp hefur verið sett sliskja að þessari einu tröppu sem á leið inn í húsið er, en það gjört alveg á næstunni. Saman bentu þau á það hvað fram- undan væri þ.e. frekari innrétting og afhólfun að hluta hins opna rýmis, þar sem yrði sameiginleg símaaðstaða fyrir öll félögin, þar yrði einnig útbúin 12

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.