Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Page 16

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Page 16
Hann gerði að sérstöku umtalsefni samstarf samtaka eldri borgara og öryrkja sem stóðu fyrir mikilli kröfu- göngu og glæsilegum útifundi sam- eiginlega nú í apríl. Haukur minnti á hve hagsmunir samtakannna færu víða saman og samstarfið því dýrmætt og þyrfti framhald að verða á. Hann minnti einnig á miklar um- ræður um kjör öryrkja í aðdraganda nýliðinna kosninga og ákveðin fyr- irheit framboðanna um úrbætur, eftir því yrði gengið af hálfu bandalagsins. Haukur gat þessu næst um heim- sókn Johans Wesemans hingað til lands, en Johan þessi er forystumaður í Evrópusamtökum heyrnarlausra svo og sl. 6 ár í Evrópusamtökum fatlaðra einnig. Johan kom hingað til lands að frumkvæði Félags heyrnarlausra, en Öryrkjabandalagið sá um heim- sóknina ásamt félaginu. Gat um vel- heppnaðan morgunverðarfund þar sem m.a. fullltrúar framboðanna mættu og tóku þátt. s Iframhaldi af þessu sagði Haukur frá því að hinn 25. apríl sl. hefði aðild Islands að Evrópusamtökum fatlaðra verið fullgilt, en aðildin ÖBÍ mjög mikilvæg. Sjá annars grein Helga Hróðmarssonar. Minnti svo á úthlutun úr Sjóði Odds Ólafssonar þar sem 18 styrk- þegar fengu samtals 1.5 millj. kr. í styrki. Þessu næst fór Haukur mjög ítar- lega yfir reglugerðarbreytingu um bifreiðakaupastyrki, sögu þessa máls til langs tíma og helstu breytingar nú. Haukur er formaður afgreiðslunefnd- ar þessara styrkja og því öllum hnút- um gjörkunnugur. í þessu sambandi minnti Haukur á nefndarstarf á vegum ráðuneytis með aðild Sjálfsbjargar og ÖBÍ sem lauk með vönduðu nefndaráliti sem þessar breytingar nú voru að hluta byggðar á, en gengu aðeins mikið skemmra. Haukur sagði svo í lokin frá því að gerður hefði verið hátíðarfáni fyrir bandalagið svo og útifánar, en Guð- ríður Ólafsdóttir séð þar um. Var hátíðarfáninn til sýnis fundarmönnum svo og útifáninn. f framhaldi af yfirliti formanns sagði Hafliði Hjartarson frá undirbúningi að iðnaðardögum sem vel gengi og áætlað að þeir yrðu í Kringlunni næstsíðustu helgi í október nk. og þá í tengslum við ráðstefnu bandalagsins um atvinnu- mál sem unnið væri að. Vilmundur Gíslason sagði frá undirbúningi að hjálpartækjasýningu sem áætluð væri 14. febr. á næsta ári. Mikið var rætt um atvinnumál fatl- aðra og m.a. um ónóga vinnumiðlun í þeirra þágu. í þessu sambandi sagði Ingólfur H. Ingólfsson frá klúbbnum Geysi sem færi á fullt í haust til atvinnumiðlunar fyrir geðfatlaða og Hafdís Gísladóttir sagði frá góðum árangri hjá atvinnuleitarfulltrúa Félags heymarlausra. Bent var sér í lagi á að Öryrkjabandalagið ætti að komast inn í fræðslu fyrir trúnaðar- menn stéttarfélaganna á vinnustöðum til að tryggja fatlaða betur úti í atvinnulífinu. Gísli Helgason vildi að ÖBÍ skor- aði á ríki og sveitarfélög að stórefla vinnumiðlun í þágu fatlaðra. 2. Styrkveitingar Haukur og Hafliði gerðu grein fyrir tillögum framkvæmdastjórnar um styrki til félaga svo og annarra, en alls var 26 af 27 félögum úthlutað styrkj- um, öllum sem sóttu og er listi yfir úthlutun birtur hér í blaðinu. Gísli Helgason vildi fá greinargerð um verkefni umsækjenda með úthlutun framkvæmdastjórnar eða a.m.k. rök- stuðning með styrkupphæð. Lagði til að undirnefnd yrði falið að gjöra til- lögur. Vel var tekið í það að fyllri upp- lýsingar yrðu sendar með næsta ár svo menn ættu auðveldara með að Hlerað í hornum Maður einn gekk til sálfræðings og einn daginn byrjaði hann svona: “Ég sagði þér á dögunum að ég væri lygari af guðs náð. En auðvitað laug ég þvf’. * * * í afskekktu fjallahéraði erlendis segir sagan að fjórir aldraðirbyggju og ættu óvenjumörg æviár að baki. Fór svo að ferðamenn gerðu sér þangað ferð til þess að líta á gamlingjana, sem ekki voru par hrifnir af athyglinni. Einu sinni kom ferðamannahópur í heimsókn og hitti einn gamlingjann útiáhlaði, afardapraníbragði. Hann var fyrst spurður um aldur sinn og sagðist hann vera 93ja ára. Þá var hann spurður að því hvers vegna hann væri svo dapur. “Pabbi sló mig utan glöggva sig á réttmæti úthlutana. Haukur benti á hve verðug þau verkefni væru sem um hefði verið sótt. Að umræðum loknum var tillaga framkvæmdastjórnar samþykkt sam- hljóða. 3. Staðan í kjaramálum Garðar Sverrisson og Helgi Seljan fóru yfir réttarbætur sem þó höfðu fengist að undanförnu, en nú væri stund milli stríða og nýrrar ríkis- stjómar beðið. Allra þessara leiðréttinga er getið sérstaklega í blaðinu nú: vasapen- ingahækkun, leiðréttingar á bifreiða- kaupastyrkjum og þá einkum leið- rétting fyrir einstæða foreldra hvað heimilisuppbót og sérstaka heimilis- uppbót snertir. Miklar umræður urðu um kjaramál og m.a. benti Sigurrós M. Sigurjóns- dóttir á hina ranglátu og stífu tekju- tengingu vasapeninga, sem verðugt væri að fá leiðrétt. 4. Önnur mál Guðríður Ólafsdóttir vakti athygli á félagsstarfi Gerðubergs sem opið væri öllum án tillits til aldurs. Astrós Sverrisdóttir minnti á skýrslu Greiningar- og ráðgjafar- stöðvar ríkisins um einhverfu. Haukur Þórðarson óskaði að lokum Geðhjálp hjartanlega til ham- ingju með ný og glæsileg húsakynni aðTúngötu7. Fundi slitið kl. 18.20. H.S. undir og ég var alsaklaus”, var svarið. “Og hvað var hann þá gamall?” “Hann er 112 ára og býr þarna hinum megin í dalnum hjá afa”. “Bíddu nú hægur og hvað er afi þinn þá gamall?” “Það man ég aldrei, en farðu til prestsins á næsta bæ, hann veit það vel af því að hann fermdi hann”. * * * Lögreglumaðurinn kom til manns eins sem grunaður var um heimabrugg og spurði hvasst: “Ert þú með eitthvert vín undir höndum?” “Nei, nei”, svaraði maðurinn, “ég er bara svona sveittur”. * * * Hvaða myndarfígúru varstu nú að kaupa?” spurði eiginmaðurinn og rýndi á vegginn. “Þessi myndarfígúra er nú spegill,” sagði konan þá. 16

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.