Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Qupperneq 18
Frá vígslunni.
Félagsmiðstöð
Geðhjálpar
Síðasta dag apríl-
mánaðar var hin
hátíðlegasta athöfn
að Túngötu 7 hér í borg,
enda ærið tilefni til. Geð-
hjálp var þá að taka form-
lega í notkun hina glæsi-
legu félagsmiðstöð sína í
nýuppgerðu stórhýsinu að
Túngötu 7.
Ríkisstjóm íslands hafði
fært Geðhjálp húseign
þessa að gjöf frá íslenska
ríkinu, en margt og mikið
þurfti að gjöra áður en hús-
ið varð slíkt sem það er í
dag.
Það var margt um mann-
inn að Túngötu 7 þennan
apríldag sem samfagnaði
Geðhjálp með glæstan
áfanga, en félagið er einmitt
20 ára á þessu ári.
Ritstjóra er minnisstæð
kvöldstund ein fyrir þess-
um 20 árum þegar hann að
beiðni vinar síns, Stefáns
Jónssonar frétta- og alþing-
ismanns, stýrði undirbún-
ingsfundi um stofnun Geð-
hjálpar.
Ekki óraði hann fyrir því
þá að Geðhjálp myndi efl-
ast svo og dafna sem raun
ber um vitni að öllu um-
fangi, hvað þá að félagið
yrði svo gildur húseigandi
sem líta mátti þennan síð-
asta apríldag.
að var formaður Geð-
hjálpar, Pétur Hauks-
son læknir, sem setti sam-
komuna og bauð fólk vel-
komið. Hann gat fyrst um
gjöfina og svo það mikla
endurbótaverk sem unnið
hefur verið með það megin-
markmið í huga að öllum
sem hússins nytu væri sýnd
hin sjálfsagða virðing, að
allt væri sem vandaðast og
best innanstokks sem utan.
Það ætti jafnt við um
skjólstæðinga, starfsfólk
sem gesti.
Hann sagði Fram-
kvæmdasjóð fatlaðra hafa
lagt húsinu til endurbóta 20
millj. kr. og svo hefði held-
ur betur munað um hið
veglega framlag Kiwanis-
manna, þar sem andvirði af
sölu K - lykilsins hefði
óskert runnið til Geðhjálpar
til hinna þörfu fram-
kvæmdar. Það urðu hvorki
meira né minna en rúmlega
15 1/2 milljónkróna. Þakk-
aði Pétur öllum þessum
aðilum og Kiwanismönn-
um sérstaklega fyrir þeirra
góða skerf.
Pétur vék að mannrétt-
indum sérstaklega, nauð-
syn þess að þeim væri
fylgt eftir svo sem sátt-
málar segðu til um, ekki
síst nauðsyn þeim geð-
fötluðu að við yrði staðið.
Hann minnti alveg sér í
lagi á vanda geðsjúkra
barna, en Foreldrafélag
geðsjúkra barna hafði
einmitt rétt áður fundað í
húsinu með frambjóð-
endum til að knýja á um
úrbætur. Þá greindi Pétur
frá hinni alvarlegu stöðu í
þjónustu- og búsetumál-
um geðfatlaðra, þó 30 geð-
fatlaðir væru þjónustaðir af
Geðhjálp og 21 í húsnæði
félagsins, tugir biðu úr-
lausnar engu að síður.
Pétur greindi síðan frá
helstu þáttum starf-
seminnar í húsinu, bæði
þeirri sem þegar er og eins
sem fyrirhuguð er alveg á
næstunni.
Þarna er í raun áætluð
miðstöð réttindabaráttu
Geðhjálparfólks, baráttu
þess fyrir betra lífi.
Á fyrstu hæðinni er
félagsmiðstöðin, þar er
mötuneytið og fræðslu-
herbergi, svo koma skrif-
stofur Geðhjálpar á annarri
hæð og í risinu eru íbúðir
fyrir tvo einstaklinga á leið
út í lífið, hugsaðar sem
skammtímalausn meðan
varanleg lausn er fundin. í
kjallaranum er svo aðstaða
fyrir tölvuver, listasmiðju,
smíðaverkstæði og iðju-
þjálfun. Öll er aðstaðan hin
vistlegasta en um endur-
bætur og endurnýjun sá
Þorgeir Jónsson arkitekt.
Formaður bygginganefndai'
var Sigríður Kristinsdóttir.
Pétur minnti á hina mikil-
vægu og góðu aðstöðu sem
þarna skapaðist og kvað
m.a. sjálfshjálparhópa eiga
þarna vísan samastað.
Hann kvað þetta ein-
staklega gleðilegan áfanga
í ljósi 20 ára afmælisins í
haust. Færði enn alúðar-
þakkir öllum þeim sem
þetta hefðu gjört kleift.
Heilbrigðisráðherra,
Ingibjörg Pálma-
dóttir, fagnaði vel þessum
áfanga og því hversu húsið
hefði stakkaskiptum tekið
frá því ráðherragengið
hefði tekið að sér hlutverk
skrapatóla, þegar húsið var
af þeim afhent sem gjöf til
Geðhjálpar, breytingin væri
stórkostlega til batnaðar.
Færði svo formanni
Geðhjálpar gjöf frá ráðu-
neyti heilbrigðismála.
Fulltrúi Kiwanishreyf-
ingarinnar, Georg Þór
Kristjánsson umdæmis-
stjóri Islands og Færeyja
flutti hamingjuóskir og
sagði það hafa verið þeim
Kiwanis-mönnum einstaka
gleði, hve söfnunin tókst
vel á sínum tíma og þakk-
aði þar landsmönnum öll-
um þeirra frábæra framlag.
Söfnunarstjórinn Sæ-
mundur Sæmundsson sem
um alla þræði hélt kom
einnig upp að beiðni
Georgs Þórs og þeir félagar
færðu Geðhjálp fagran
skjöldaðgjöf. Óskuðuþeir
Geðhjálp gæfu og gengis.
Margrét Margeirsdóttir
deildarstjóri flutti kveðjur
og hamingjuóskir félags-
málaráðherra, Páls Péturs-
sonar.
Húsnæðið nýja svo vel
búið sannkallað fagnaðar-
efni, minnti á þjónustu-
samning Geðhjálpar og
félagsmálaráðuneytis sem
tryggði mörgum mikla og
góða þjónustu.
Sigríður Kristinsdóttir,
formaður bygginga-
nefndar flutti heillaóskir og
gat sérstaklega um hinn
einstaklega góða hlut
starfsfólks Geðhjálpar sem
Grettistaki hefði lyft.
Þakkaði einnig arkitekt-
inum, Þorgeiri Jónssyni
18