Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Page 19

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Page 19
gott verk og einkar góða samvinnu. Þá las Davíð Art Sig- urðsson tvö ljóð úr ljóða- bók sinni: Þegar ljóð eru og eru önnur ljóð Davíðs Arts kynnt annars staðar í blaðinu. Gunnar Páll Ingólfsson laðaði fram ljúfa hljóma hljóðfæris síns og raddar við athöfnina og gladdi þannig geð gesta vel. Fengu margir fiðring í fætur við fallega dillandi músík Gunnars Páls. Veg- legar veitingar voru á boð- stólum og mjög margir fengu þeirra notið, enda opið hús að athöfninni sjálfri lokinni. Geðhjálp er hjartanlega óskað til hamingju með þennan dýrmæta áfanga og eitt er víst, betri afmælis- gjöf á afmælisári er erfitt að hugsa sér. Megi starf Geð- hjálpar hér eftir sem hingað til veita mörgum góðan gæfuauka. Formaður Geðhjálpar er eins og áður segir Pétur Hauksson og fram- kvæmdastjóri Ingólfur H. Ingólfsson. H.S. Hlerað í hornum Jónas var ráðinn til vinnu á grundvelli auglýsingar, en ekki var hann búinn að starfa lengi á staðnum, þegar mönnum þótti hann kunna lítt til verka. Verk- stjórinn kallaði hann til sín og sagðist undrandi á því að hann hefði svarað auglýs- ingunni svo að hann hefði fimm ára starfsreynslu og út á það hefði hann verið ráðinn. Núhefðihannhins vegar komist að því að þetta væri fyrsta starfið hans. Þá svaraði Jónas: “Ekki geturðu ásakað mig fyrir þetta, því þið báðuð alveg sérstaklega um mann með fjörugt ímyndunarafl”. Guðrún K. Þórsdóttir djákni: Bréf til félagsmanna í aðildarfélögum Öryrkj abandalagsins Kæru félagsmenn! X lok febrúar samþykkti fram- kvæmdastjórn Öryrkjabanda- lagsins málaleitan mína um að veita tímabundna djáknaþjónustu skjólstæðingum ÖBI að Hátúni 10 með haustinu. Eg lauk háskólaprófi í djáknafræð- um á haustdögum 1998 og vígðist í byrjun febrúar 1999. Köllun mín til starfa er við Áskirkju og hjá FAAS (Félagi aðstandenda Alzheimersjúkl- inga), en félagið mun flytja í húsnæði sitt í Ássókn á næstu mánuðum. Fyrir er ég með B.A. próf í sálarfræði, við- skipta- og hagfræðimenntun frá Endur- menntunarstofnun H.I. og sjúkraliða- próf. Ég hafði í byrjun árs viðrað hug- myndir mínar við forsvarsmenn ÖBI og prest Laugarneskirkju, sr. Bjarna Karlsson, um kristilega þjónustu á félagslegum grunni við íbúa Hátúns og félagsmenn Öryrkjabandalagsins almennt. Mínum hugmyndum var vel tekið og viðurkenning á að kanna þörfina fyrir slíka þjónustu var síðan samþykkt af framkvæmdastjórn Öry rkj abandalagsins. Djáknaþjónustafelurísér: aðveita fræðslu og leiðsögn, að standa vörð um réttindi fólks og vera við hlið þeirra sem í erfiðleikum eru og leitast við að hughreysta sjúka og sorgbitna og vera til hjálpar. Djákna er skylt að rækja þjónustu sína af trúnaði við kenningu kristinnar kirkju. Tilgangur starfa minna hjá banda- laginu er: að kanna þörfina á líkn- ar- og fræðsluþjónustu innan ÖBI, að sinna sálgæslu með viðtölum og heim- sóknum og að rjúfa einangrun þeirra sem skortir frumkvæði til að leita Guðrún K. Þórsdóttir samveru með öðrunt. Jafnframt væri möguleiki á að mynda sjálfshjálpar- hópa þegar líður á haustið. Viðvera mín verður einu sinni í viku, fjóra tíma í senn og er það einlæg von mín og ósk að ég, sem djákni, verði sýnileg íbúum Hátúns sem öðr- um félagsmönnum Öryrkjabanda- lagsins. Það var mikill kjarkur og áræðni hjá frjálsum félagasamtökum eins og FAAS þegar stjórnin ákvað að kalla mig til starfa fyrir félagið. Það er í fyrsta sinn sem slík félagasamtök ráða djákna til starfa, en vonandi ekki það síðasta. Ég hef trú á að djáknamennt- unin sem slík, ásamt annarri sérhæfðri menntun og reynslu á hinum ýmsu sviðum, nýtist vel frjálsum félagasam- tökum. Ég er þakklát fyrir það frumkvæði sem framkvæmdastjórn Öryrkja- bandalagsins sýnir með að ráða mig til starfa og þakka það traust sem mér er sýnt. Ég hlakka til að taka til starfa með haustinu. Með virðingu og þakklæti Guðrún Kristín Þórsdóttir, djákni. fréttabréf öryrkjabandalagsins 19

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.