Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Side 24
INNLITIÐ
s
alltof köldum aprílmorgni
leit hér inn nýkjörinn for-
maður Blindrafélagsins,
Halldór Sævar Guðbergsson sem
starfað hefur í fullu starfi frá árinu
1995 hjá Blindrafélaginu sem mark-
aðsfulltrúi og aðalviðfangsefni hans
þar hafa verið fjáraflanir fyrir félagið.
Halldór var að forvitnast um þann
ágæta sjóð, Framkvæmdasjóð fatl-
aðra, en úthlutun þar nýlega lokið og
þótti báðum, honum sem og viðmæl-
anda að hlutur félagasamtaka með
fjölþætta starfsemi í þágu fatlaðra
væri ógnarsmár í þeirri úthlutun.
Ekki skal frekar út í þá sálma farið
hér, svo oft sem þessi mikla mis-
munun eftir fötlunum hefur hér verið
gjörð að umtalsefni, en vissulega er
það ekki vansalaust af opinberum
sjóði að láta slíkt viðgangast ár eftir
ár.
En um leið nýtti ritstjóri tækifærið
og spurði formanninn spjörunum úr,
ekki síst varðandi afmælishald
Blindrafélagsins, en félagið er 60 ára
á þessu ári, nánar tiltekið fimmtu-
daginn 19. ágúst nk. svo það stendur
ýmislegt til sem ég kem síðar að.
Eg inni Halldór Sævar fyrst eftir
því hversu hin nýja stjórn sé skipuð
og hann svarar því greiðlega.
Formaðurinn hefur þegar verið til
sögu kynntur, varaformaður er Olafur
Þór Jónsson, féhirðir er Jón Heiðar
Daðason, ritari er Ágústa Eir Gunn-
arsdóttir og Gunnar Valur Gunnars-
son er meðstjórnandi.
ar sem við hófum nú að ræða um
Framkvæmdasjóð fatlaðra fýsti
mig líka að vita hversu fram héldi um
Hamrahlíð 17, viðhald og endurbætur
svo og breytingar, þegar búnar, í
gangi eða fyrirhugaðar, því þar kemur
að hlut Framkvæmdasjóðs fatlaðra.
Fyrsta hæðin hefur þegar verið
tekin alveg í gegn, en þar fer meg-
inhluti rýmis undir starfsemi Blindra-
vinnustofunnar e.hf. en sú ágæta
stofnun var fyrir nokkru gerð að einka-
hlutafélagi. Framkvæmdastjóri þar er
Omar Stefánsson lögfræðingur og
Halldór kvað gaman og gott að geta
þess að hjá Blindravinnustofunni
væru greidd lágmarkslaun, en því
næðu fæstir ef nokkrir vinnustaðir af
þessari gerð. Þama eru um 20 starfs-
menn. Á fyrstu hæðinni starfa einnig
tveir sjúkranuddarar, sem leigja þar
aðstöðu, en báðir starfa sjálfstætt.
Lyfta ný var sett upp og var býsna
kostnaðarsöm framkvæmd en tókst
vel. Sem liður í afmælishaldi ársins
Halldór Sævar Guðbergsson
er að fara af fullum krafti í félags-
aðstöðuna á annarri hæð, þar sem á
að breyta og bæta svo unnt sé að hafa
þar rými fyrir allt að 120 manns eða
tvöföldun þess sem nú er.
Áður hefur fram komið hér í blað-
inu að á þriðju og fjórðu hæð eru
íbúðir og svo er fimmta hæðin leigð
undir starfsemi Sjónstöðvar Islands.
Við víkjum örstutt að starfs-
mönnum Blindrafélagsins en
sem formaður er Halldór Sævar í 20%
starfi, en að öðru leyti í fullu starfi
við fjáraflanir, Gísli Þór Gíslason er
rekstrarstjóri félagsins í fullu starfi og
Björk Vilhelmsdóttir gegnir starfi
félagsráðgjafa í 60% starfi. Þá er
Ásgerður Sveinsdóttir í fullu starfi
sem félags- og upplýsingafulltrúi.
Gjaldkeri og bókari er nú Bryndís
Hannesdóttir í 80% starfi en 1. apríl
sl. hætti Dóra Hannesdóttir sem gjald-
keri en hún vann hjá félaginu í meira
en 20 ár.
Sólbjartur Óli Utley er í 100%
starfi við almenn skrifstofustörf en
aðstoðar m.a. mikið við fjáraflanir.
Karen Friðriksdóttir er í 100% starfi
sem ritari, við almenn skrifstofustörf.
Og svo er Harpa Völundardóttir í
50% starfi í afgreiðslu og á móti henni
nú Hjördís Óskarsdóttir í 50%, ráðin
með sérstökum öryrkjavinnusamn-
ingi.
Nú þá er það starfsemi ritstjóra vel
kunnug en það er Hljóðbókagerðin
með Gísla Helgason sem forstöðu-
mann og Grétu Haraldsdóttur í 60%
starfi við fjölföldun.
En svo snúið sé að afmælishaldinu
þá greinir Halldór Sævar fyrst
frá því að starfandi sé sérstök afmæl-
isnefnd, en í henni sitja allir núlifandi
formenn Blindrafélagsins eða Halldór
S. Rafnar, Ragnar R. Magnússon,
Helgi Hjörvar og Halldór Sævar, frá
Norðurlandsdeild kemur í nefndina
Kristján Tryggvason og frá æskulýðs-
nefnd er svo Sólveig Bessadóttir.
Halldór Sævar rifjar svo upp það
helsta sem framundan er. 11.-13.
júní nk. verður farið norður til að
heimsækja fólkið þar og gist verður í
Hrafnagilsskóla. 18. og 19. ágúst
verður svo ráðstefna í Blindrafélaginu
um stöðu blindra og sjónskertra í lok
aldar.
21. ágúst verður opið hús í Hamra-
hlíð 17 þar sem starfsemi félagsins
og annarra þeirra aðila sem þjónusta
blinda og sjónskerta verður kynnt.
Um kvöldið þann sama dag verður
svo vegleg afmælishátíð. Svona rétt
til viðbótar gat Halldór Sævar þess
að Blindrafélagið yrði með norrænar
sumarbúðir að Sólheimum í Gríms-
nesi dagana 21. - 29. júní nk. fyrir
blind og sjónskert ungmenni. Norð-
urlöndin skiptast hér á og nú er komið
að Islandi, síðast var 1994 verið með
slíkar sumarbúðir að Varmalandi í
Borgarfirði.
Hvert land á rétt á að senda 6 ung-
menni, svo þarna verða a.m.k. 30
manns. Halldóri Sævari er kærlega
þakkað innlitið sem og allur fróð-
leikur.
Honum og félagi hans er alls góðs
árnað á afmælisári.
H.S.
24