Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Qupperneq 36

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Qupperneq 36
Hinn 13. maí sl., uppstigningardag, fór fram við ágæta athöfn útskrift frá Starfs- þjálfun fatlaðra. Fjölmenni var við útskriftina. Forstöðu- maður, Guðrún Flannesdóttir flutti athyglisverða ræðu og talaði mest til nemenda sinna, einkum þeirra er nú voru að hverfa á braut. Þetta var fimmtándi hópurinn sem útskrifaðist frá Starfsþjálfun fatlaðra og sá fimmti frá Hringsjá. Guðrún kvað 18 nemendur hafa innritast í ágúst á sl. ári. 26 nemendur þreyttu nú próf, þar af 12 lokapróf, þá hafa alls 153 nemendur útskrifast frá upp- hafi. Hún greindi frá venju- bundnu vetrarstarfi, en sem alltaf væri með nokkrum til- brigðum. Leikhúsferðir, sérstakir tyllidagar, tilraun til kórmyndunar og myndlist iðkuð af kappi. Mikið starf innt af hendi við rekstur Búllunnar sem nú bæri nafnið Bitabær en umsjón þar til fjáröflunar. Vegleg árshátíð var og haldin. Guðrún greindi svo frá námskeiðshaldi sem væri vaxandi þáttur, 3 námskeið þegar verið haldin og 3 hópar byrjuðu svo í kjölfar skólaslita. Sérstakt intemetsnámskeið haldið og námsráðgjafar vora svo á öðru námskeiði. Sagði frá starfi Sólveigar Bessadóttur í afgreiðslu Hringsjár og nú byrjaði önnur í starfi fljótlega. Gat um Fréttaþjálfann sem hér er vel kynntur. Hún sagði frá miðvikudagsfundum Heilagengisins, sem fyiTum nemendur hefðu komið af stað og hér verið greint frá áður. Þá gat Guðrún um væntanlegan þjónustusamning Hringsjár og Tryggingastofnunar ríkisins sem varðaði þjónustu við fólk á endurhæfingarlífeyri og seinna verður sagt frá hér. Umsvif myndu því aukast mjög. Tölvumið- stöð fatlaðra myndi þá flytjast yfir í Hátún 10 og færði hún þakkir góðar fyrir samveruna. Við nemendur sagði Guðrún m.a. að Hringsjá ætti að auka víðsýni og örva þekkingarleit nemenda. Markmiðið væri að ná því besta fram hjá öllum, gera fólk hæfara til að takast á við verkefni daganna, rækta sinn innri mann. Markmiðið og að virkja fólk til þátttöku, Hringsjá örvaði hreyfiaflið í hverjum og einum. Minnti í lokin á hina miklu innbyrðis samstöðu og gagnkvæman stuðning nemenda hver við annan. Afhenti síðan nemum annarrar annar sín skírteini, nú yrðu þau merkisberamir, tækju við nýgræðingunum á síðsumri. 14 nemar + 2 svokallaðar smugukonur fengu svo sín skírteini. Síðan afhenti Guðrún útskriftaraðlinum sín skírteini eftir að hafa ávarpað þau nokkrum velvöldum orðum. Kvaðst stolt af þeim, samhentur dugandi hópur, með mannrækt sem aðals- merki sitt. Von um að vega- nestið væri gott fylgdi þeim út í lífið og árnaði þeim góðrar Mallorca-farar. Alls útskrifuðust 12 s.s. fyrr er sagt. Margrét Margeirsdóttir stjórnarformaður Starfs- þjálfunar fatlaðra ávarpaði útskriftaraðal og kvað þau sem aðra áður útskrifaða bera hróður Hringsjár vítt um samfélagið. Minnti á hið einstaklega góða andrúmsloft og þann holla starfsanda sem þarna ríkti. Færði þeim öllum fagra bókargjöf frá Erni og Örlygi. Guðrún Hannes- dóttir afhenti þeim kennurum fjórum sem áttu 10 ár eða lengur að baki við- urkenningu en þau eru: Dóra Pálsdóttir, Haukur Hauksson, Magnús Ingi- mundarson og María Kristjánsdóttir. Óskaði þess að Hringsjá mætti a.m.k. eiga þau að næstu 10 árin. Einar Andrésson flutti ávarp gott fyrirútskriftaraðalinn. Frábært tækifæri til að takast á við lífið á nýjan hátt. Kvaðst hafa verið fullur vonleysis, sem á endastöð væri og biðin ein framundan. Færi út í lífið fullur bjartsýni og vona eftir framúrskarandi örvun og kennslu. Færði kennurum hjartans þakkir sem stunduðu starf sitt svo langt umfram það að vera bara í vinnunni sinni. Færði stjóm- völdum þakkir fyrir stuðninginn fjárhagslega og Öryrkjabandalaginu sem bakhjarli. Jón Freyr Finnsson las svo ljóð sem hér er birt. Kennurum voru svo ljómandi viðurkenningar færðar frá útskriftaraðli og bókasafnið fékk biblíuna frá þeim. Helga Aðalsteinsdóttir flutti svo skörulegt ávarp undir mottóinu: Ég skal - ég get. Margt og mikið hefði Starfs- þjálfun fatlaðra gefið sér og bað Sólveigu Pálsdóttur að lesa ljóð sem Helga hafði ort og er birt hér í lokin á þessari samantekt. Sverrir Daðason fulltrúi annarrar annar nemenda flutti svo ávarp gott, þakkaði fyrir sig og sína. Minnti á að sjálfsgagnrýni væri besta gagnrýnin og einnig á orðtakið: Ber er hver að baki nema sér bróður eigi og beindi þar máli sínu til útskriftaraðals. Framtíðin væri óskrifað blað en vonandi öllum sem allra best. Þau færðu svo útskrift- araðli fagra rós. Á eftir var að veisluborði góðu gengið og vel og rösklega tekið til matar síns af gestum. Aðeins það sagt í lokin að það er sérstakt fagnaðarefni mér sem öðrum að eiga stund hverju sinni með þeim sem útskrifast. Finna vondirfsku þeirra, þakklæti og hve horft er til framtíðar af bjartsýni góðri og ríkri reisn, enda er Hringsjá sérstökíþessorðsfyllstumerkingu. Stjómskipa: Margrét Útskriftaraðall ásamt lærimæðrum - og feðrum. UTSKRIFT UR HRINGSJÁ 36

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.