Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Síða 38
Heiðursfólkið er fékk viðurkenningu.
Parkinsonsamtökin
á Islandi 25 ára
ann 3ja des. sl. áttu Parkinson-
samtökin 25 ára afmæli. Stjórn
samtakanna ákvað á fundi sínum að
halda upp á afmælið laugardaginn 5.
des. Það hefur verið hefð fyrir
hátíðlegum fundi fyrsta laugardag í
desember, slegið saman jóla- og
afmælisfundi. Afmælishátíðin var
haldin í hinum veglegu húsakynnum
Kiwanis við Engjateig. Bárust sam-
tökunum fallegar blómaskreytingar
og kveðjur og vildu þau nota þetta
tækifæri til að þakka allar góðar gjafir
sem samtökunum hafa borist svo og
hlýjar kveðjur.
Formaður Nína Hjaltadóttir setti
fund og óskaði fundargestum til
hamingju með afmælið um leið og
hún bauð alla velkomna. A fundinn
var boðið nokkrum velunnurum sam-
takanna, fólki sem hefur stutt starfið
með ráðum og dáð. Sagt var frá upp-
hafinu, minnt á þætti í sögu félagsins
og hversu drögin voru lögð að félags-
stofnun.
Frú Aslaug Sigurbjörnsdóttir las
jólaguðspjallið yfir borðum, en veg-
legur hátíðarverður var fram borinn.
A meðan stóðu fundarmenn með
tendruð jólaljós. Guðbjörg Tryggva-
dóttir einsöngvari og arkitekt söng við
undirleik Jöglu.
Helga Dögg Helgadóttir og Guðni
Kristinsson sýndu samkvæmisdansa.
Steinunn Gísladóttir las smásögu.
Einnig var fjöldasöngur.
Ungur maður frá Oddfellow-
stúkunni Þorgeiri í Reykjavík
færði samtökunum góða gjöf, en stúk-
an Þorgeir virkasti stuðningsaðili, ef
frá er talið Öryrkjabandalagið.
Þá vom nokkrir félagsmenn heiðr-
aðir fyrir gott starf í þágu samtakanna.
Heiðursskjal og sérhannað gull-
merki fengu: Bryndís Tómasdóttir
fyrsti varaformaðurinn, séra Magnús
Guðmundsson, ritstjóri Fréttabréfsins,
Áslaug Sigurbjörnsdóttir (formaður í
10 ár), Ásgeir Ellertsson yfirlæknir og
Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir tauga-
sjúkdómalæknir.
Báðir þessir læknar verið boðnir
og búnir til að halda fyrirlestra og
flytja nýjungar um það sem er að
gerast.
Margir taugasjúkdómalæknar og
heilaskurðlæknar hafa einnig haldið
fyrirlestra svo og sjúkraþjálfarar, tal-
meinafræðingar og tölvuuppfinn-
ingamenn sem hannað hafa tæki fyrir
sjúklinga m.a. lamaða, sem einnig
mun notað í grunnskólum.
Félagsmenn hafa einnig haldið
fyrirlestra m.a. um ráðstefnur sem þeir
hafa sótt.
Einnig hefur fjöldi fólks skemmt
með söng og hljóðfæraleik og þeim
öllum þakkað. Fundinn sóttu um 80
manns og þótti hann einkar vel heppn-
aður.
Byggt á Fréttabréfi Parkinsonsam-
takanna og Bryndísi Tómasdóttur.
Markverður dómur
Hæstaréttar
Hin stöðuga barátta heymarlausra
fyrir fullri viðurkenningu á
táknmáli sem móðurmáli, fyrsta máli
heyrnarlausra er stöðugt að bera hinn
besta árangur.
I nýútkominni námsskrá mennta-
málaráðuneytis er gengið ótvírætt út
frá táknmálinu sem fyrsta máli heym-
arlausra og er þ.a.l. mikilvægt skref í
átt til fullrar viðurkenningar.
Nýlegur hæstaréttardómur vísar
hiklaust sömu leið.
Félag heyrnarlausra fékk ekki
áheyrn hjá Ríkissjónvarpinu okkar
allra um að mál forystumanna fram-
boðanna í nýafstöðnum kosningum
yrði túlkað yfir á táknmál. Ríkis-
útvarpið hafði boðið upp á túlkun
síðar, en eðlilega vildu heyrnarlausir
ekki una því, hófu því málarekstur
fyrir dómstólum, vísandi til bæði
almennra mannréttinda og jafnræðis-
reglu stjórnarskrárinnar.
Niðurstaða Héraðsdóms var sú að
sýkna bæri Ríkisútvarpið af kröfu
heyrnarlausra og því var að sjálfsögðu
vísað til Hæstaréttar sem kvað upp
sinn dóm tveim dögum fyrir kosning-
ar, heymarlausum í vil.
Ríkisútvarpið sem sagt skyldað
með dómi til að túlka kappræðurnar
beint enda var svo gjört. Sannarlega
mikill réttlætissigur og heyrnarlausum
og félagi þeirra árnað allra heilla í
áframhaldandi baráttu um leið og héð-
an fylgja hlýjar hamingjuóskir með
ágætan áfanga á sóknar- og sigurleið.
H.S.
Hlerað í hornum
Tveir menn tóku tal saman um það
hvers vegna sjónvarpsmaðurinn Logi
Bergmann Eiðsson hefði tvívegis
verið handtekinn á brunastað. Þá
sagði annar: “Það er nú auðskilið að
þeir vilji ekki hafa Loga á slíkum stað.
Sjónvarpið verður bara að kalla á
bróður hans og fá hann til að fara.
Hann heitir nefnilega Frosti.”
+++
Lögregluþjónninn stöðvaði gömlu
konuna sem ók öfugt inn í einstefnu-
götuna og spurði hvasst: “Sástu ekki
merkin og örvamar?” “Nei, ég sá ekki
einu sinni Indiánana.”
38