Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Síða 40
Þrjár sögur
úr daglega
lífinu
Formáli: Foreldrafélag geð-
sjúkra barna og unglinga hélt í
apríllok sl. fund um málefni bama
og unglinga er við geðsjúkdóma
stríða.
A fundinn mættu frambjóð-
endur þeirra flokka sem fram
buðu í alþingiskosningunum.
Fyrir þá voru lagðar allnokkrar
beinar spurningar um þau mál
sem Foreldrafélagið vildi helst fá
við svör. í fundarboði voru
kynntar þrjár sögur úr daglega
lífinu sem ritstjóra þóttu sann-
arlega þess verðar að birta hér
ásamt hugleiðingum frá félaginu
í framhaldi af sögunum.
En fyrst að sögunum þrem:
Ellefu ára gamalt barn, greint
geðsjúkt, kveikir í sér við
eldhúsborðið heima hjá sér, er
alvarlega veikt og ætti að komast
strax inn á sjúkrahús, en þarf að
bíða í 18 sólarhringa eftir plássi.
Ef bamið hefði verið fótbrotið,
þá hefði barnið aldrei þurft að
bíða í 18 sólarhringa.
Ellefu ára gamalt barn sem
greint er geðsjúkt og þunglynt,
gerir margar sjálfsmorðstilraunir
sama daginn. Algjört neyðar-
ástand ríkir, það verður að koma
barninu inn á spítala, en það er
sunnudagur og Barna- og ungl-
ingageðdeild Landspítalans:
B.U.G.L. erlokuð. (Börninokk-
ar geta ekki verið veik á rauðum
dögum!!)
Endirinn varð sá að bamið og
faðirinn voru lögð inn á fullorð-
insdeild Landspítalans í tæpan
sólarhring. A mánudagsmorgni
erútskrifaðafB.U.G.L. svohægt
sé að taka bráðatilfelli inn. Hefði
barnið verið með bráða botn-
langabólgu, þá hefði vart talist
eðlilegt að leggja inn á hjartadeild
og bíða eftir að skurðstofan
opnaði á mánudagsmorgni.
Tíu ára gamalt barn sem greint
er geðsjúkt, stendur utan skóla í
byijun desember, engin úmæði og
sjúkrakennsla stendur ekki til
boða.
Enginn skóli þar til í apríl að
barnið er lagt inn á B.U.G.L. til
frekari greiningar, þá fer barnið í
Dalbrautarskóla. Um síðustu
helgi var barnið útskrifað af
B.U.G.L. og úr skólanum og er
nú fyrir utan skóla.
Sorglegt er til þess að hugsa,
að ef barnið væri með viður-
kenndan sjúkdóm, stæði ekki á
sjúkrakennslu.
s
Iframhaldi af þessum sögum
birtir Foreldrafélagið óska-
lista enda ástandið ólíðandi:
Bráðamóttaka, fleiri innlagnar-
pláss, sérhæfður skóli, langtíma
meðferðarúrræði, hvfldarvistun,
að spítalinn sé opinn 365 daga á
ári, að fá að vera með í nýja
barnaspítalanum, trygginga-
löggjöfin verði skoðuð sérstak-
lega fyrir þennan hóp og stuðn-
ingur inn í almenna skóla verði
stórefldur.
M.a. er minnt á eftirfarandi:
Rétt er að hugsa lengra til fram-
tíðar, ótrúlega hátt hlutfall geð-
sjúkra ungmenna endar í neyslu
ávana- og fíkniefna, og síðan
sagt: Hvert pláss á Litla Hrauni
er dýrt. Ef þjónustan er aukin og
börnunum sinnt um leið og þau
veikjast, yrði mörgum efalítið
bjargað. Saman getum við byrgt
stóran brunn - eru svo lokaorðin
frá Foreldrafélaginu.
Nú er komið nýtt kjörtímabil
með ný fyrirheit, nýjar vonir og
miðað við andsvör stjórnmála-
manna á fyrrgreindum fundi er
tilefni til talsverðrar bjartsýni.
Vonandi lætur sú bjartsýni ekki
að sér hæða.
H.S.
Ur kveri
Mundu Pálínar
Hún Munda Pálín Enoksdóttir sem nú
dvelur austur á Sogni hefur verið að
sýsla við það að raða saman hending-
um og hefur gefið hugleiðingar sínar
út í nokkrum kverum.
Ritstjóri hefur eignast öll þessi kver
Mundu Pálínar og birtir hér sýnishom
úr einu þeirra sem hún kallar: Ljúfu
ómar.
Vísan telur!!
Telur réttvísinnar brugðna sverði
að það takast megi
að ég saklaus talin verði
á útkomunnar mikla degi.
Lögin
Löngum eru lögin sein
að læra margt og skilja.
Skilja þurfa manna mein.
En það þau eigi vilja.
Ó það tár
Brá er grátbólgin.
Bót ei fæst fólgin
falið er ævintýr.
Tár það fram, sem knýr.
Því er lokið.
-Leiðinni læst og lokið.
ÓGuð
Kalt er mér um hjartarætur.
Kveina sárt um daprar nætur.
Kvölin nístir mig í bein,
nöpur finnst mér dvöl í heim.
-Guð mig færi í annan geim.
Ljúfa er skáldanafn Mundu Pálínar,
sem yrkir af tilfinningu og heitu særðu
hjarta.
Megi henni vistin verða sem best.
40