Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Qupperneq 46
Fjarska lofsvert
framtak
Sannarlega er það þess vert
að geta um það, þegar gott
framtak fæðir af sér mæta
menningarviðburði.
Sá ágæti baráttumaður, Albert
Jensen, hafði lengi alið með sér
þann draum að efnt yrði til tón-
leikahalds þar sem fatlaðir væru
sérstaklega boðnir velkomnir, ekki
síst þá þeir sem eru í hjólastól, og
auðvitað aðrir. Þannig yrði þeim
veitt verðug hlutdeild í þeirri dýru
list, sönglistinni sem alla hrífur
þegar af snilli er iðkuð.
Þessi draumur Alberts rættist
svo sannarlega laugardag einn í
mars, nánar tiltekið hinn 13. mars
sl.
Þá var haldin mikil söngveisla í
Langholtskirkju sem í hvívetna
heppnaðist frábærlega. Aðgangur
var ókeypis og öllum heimill, þó
sér í lagi væri til fatlaðra höfðað
um aðsókn, enda var sannarlega
margt um manninn og kórunum sjö
sem komu fram og glöddu geð
okkar svo ágætlega lof í lófa
klappað.
Albert er félagi í Arnesinga-
kórnum og til hans og söngfélaga
hans í þeim ágæta kór má upphafið
rekja, en til liðs við sig fengu þau
hvorki meira né minna en sex aðra
kóra. Þeir voru: Borgarkórinn í
Reykjavík, Kór Ármúlaskólans,
Kór Kvennaskólans í Reykjavík,
Samkór Kópavogs, Selkórinn á
Seltjarnarnesi og Karlakórinn
Stefnir í Mosfellsbæ.
Sumir kóranna skörtuðu hinum
ágætustu einsöngvurum og af
öllu var hrífandi eyrnayndi, ein-
róma mál allra er notið fengu.
Albert Jensen
I stuttu samtali við Albert var
hann eðlilega ánægður með svo
góðan afrakstur af hugmynd sinni,
en honum þótti þó sem ekki hefðu
nógu margir hjólastólsneytendur
skilað sér á tónleikana og má það
eflaust til sanns vegar færa. Hann
sagðist um leið vera að vinna að því
að kórarnir yfirleitt tækju meira
tillit til fatlaðra hvað varðaði
tónleikahald sitt og hans eindregnu
tilmæli þau að fötluðum yrði
tryggður ókeypis aðgangur að
söngskemmtunum kóranna. Hann
sagðist vera vongóður í þessu sam-
bandi.
En í lokin var ekki hvað síst
unaðslegt að heyra frumflutning
kórverks fagurs þar sem allir kór-
amir sameinuðust í voldugri hljóm-
kviðu.
Bestu þakkir fyrir góða og gjöf-
ula stund, Albert og öll hin. Slík
stund fær manni í hæðir lyft og
hnfandi stundarinnar endist lengi
hið innra.
H.S.
Hlerað í hornum
Tveir karlar voru á kránni og voru að
metast á um sjónaukana sína, en annar
átti þýskan sjónauka og hinn
amerískan. Sá sem átti þann ameríska
sagði: “Minn dregur nú bærilega
langt. I gær sá ég svo greinilega inn
um gluggann hjá þér sem er nú í
nokkur hundruð metra fjarlægð og sá
þig kasta kerlu þinni upp í rúm og svo
segi ég ekki meira af því sem ég sá”.
Þá sagði hinn: “Ja, ef þú hefði verið
með þann þýska minn, þá hefðirðu séð
að þetta var bara alls ekki mín
kerling”.
Fjárhagsaðstoð
Reykjavíkur-
borgar hækkar
Eins og fram hefur komið hér áður
í Fréttabréfi ÖBÍ þá hafa við-
miðunarupphæðir vegna fjárhags-
aðstoðar hjá Reykjavíkurborg staðið
í stað frá 1995, en þá hafði orðið vem-
leg hækkun á tölunum.
Að tillögu félagsmálaráðs borgar-
innar hefur nú verið samþykkt hækk-
un upp á 8.3% eða þannig að viðmið-
unampphæð fyrir einstaklinga fer úr
53.896 kr. á mánuði upp í 58.044 kr.
og fyrir hjón eða sambúðarfólk fer
upphæðin úr 96.477 kr. í 104.408 kr.
Þetta mun reynast mörgum góð bú-
bót, þeim sem þurfa á slrkri fjárhags-
aðstoð að halda og það eru í raun
miklu fleiri en vera ættu.
Og áfram segjum við hér á bæ:
Hvert spor í réttlætisátt er auðvitað af
hinu góða. Ekki síst er réttarbót fagn-
að fyrir þetta lakast setta fólk sem
vegna erfiðleika á ekki önnur ráð. Á
því skal hins vegar vakin athygli að
þrátt fyrir allt hafa bætur almanna-
trygginga hækkað allnokkru meira og
því mun hætt við að enn fari ýmsir
bónleiðir til búðar sem þó eiga ekki
auðvelt með að láta enda ná saman
fjárhagslega. En margir eiga þarna
aukinn rétt og betri aðstoð og því er
fagnað vel.
H.S
Gátur
1. Hvað er það sem forvitinn vill
ekki vita?
2. Hvað er það sem enginn óskar að
hafa og þó óskar enginn eftir að
missa það?
3. Hver talar öll tungumál?
4. Hvaða skegg er án hára?
5. Sá sem á það er fátækur. Sá er
hamingjusamur sem vantar það.
Sá sem veit það er heimskur og
sá sem gerir það er latur. Sá sem
heyrir það er heyrnarlaus og sá er
blindur sem sér það?
6. Hvað stendur, en gengur ekki,
hefur líf en engan anda?
Svör við gátum á bls. 53
46