Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Qupperneq 48
Einar Andrésson flytur sitt ágæta ávarp.
Fréttaþj álfinn -
til fyrirmyndar
Enn birtist eitt eintak af því ágæta blaði útskriftarnema
Starfsþjálfunarfatlaðra, Fréttaþjálfanum, afbragðsmerki umþað
farsæla starf sem þar er innt af hendi nú sem áður.
Efni blaðsins er allt eftir útskriftarnema: frásagnir, hugleiðingar,
sjónarhorn nemenda, viðtal, ljóðmæli og ýmiss fróðleikur.
Fjölbreytni er mikil og efnistök öll með ágætum. Allir
útskriftarnemar sjá um blaðið í sameiningu.
I ritstjórapistli segir orðrétt: “Okkar tilfinning er sú að hvergi í
öllu kerfinu skili sér fleiri úr endurhæfingu út í atvinnulífið og/eða
nám en frá Hringsjá” og einnig þetta: “Sýnist okkur því að besta
fjárfesting samfélagsins til öryrkja sé að styrkja það starf sem hér er
unnið.” Þetta er vitnisburður byggður á reynslu og rökum.
Ritstjóri getur ekki stillt sig um að birta tvær hugleiðingar í
ljóðformi eftir þau Jón Frey Finnsson og Halldóru Önnu.
Fyrst Halldóra Anna:
Regndropinn
Á milli laufblaðanna
hrynur regndropinn.
Og kannski hann
falli til jarðar.
Tekur þá móðir jörð
hann í faðm sér?
Og svo er það Jón Freyr Finnsson:
Völundarhúsið
Lífið er eins og völundarhús.
Því hvað sem maður gerir
hvert sem maður fer
veit maður aldrei hvað er
handan við hornið.
Til hamingju með myndarlegt og metnaðarfullt blað.
H.S.
Hússjóður
ÖBÍ á
Sléttuvegi 9
Imars s.l. kom saman talsverður
hópur við Sléttuveg 9 í Reykja-
vík. Tilefnið var að fagna nýjum
byggingaráfanga með því að taka
fyrstu skóflustunguna á lóð sem
Hússjóður ÖBÍ hefur átt þar um
árabil en þar ns nú nýtt og glæsilegt )
fjölbýlishús með fullkomnu aðgengi
fyrir alla.
Fyrrverandi formaður Hússjóðs,
Tómas Helgason tók fyrstu skóflu-
stunguna. í tilefni þess lét hann
nokkur orð falla um bygginguna.
“Þessi bygging er fyrsta húsnæðið
sem Hússjóður ÖBI byggir þar sem
hugað er sérstaklega að rými fyrir
ýmsa þjónustu sem væntanlegir íbúar
geta nýtt sér s.s. heimilishjálp og
aðhlynningu”.
Samkvæmt bygginganefndar-
teikningum sem gerðar voru hjá
Teiknistofunni Óðinstorgi verða 30
íbúðir af mismunandi stærðum og
gerðum í húsinu, þar af 3 í raðhúsum
en 27 í fjögurra hæða bogamynduðu
húsi, auk bifreiðageymslu.
Áætlað er að framkvæmdum við
byggingu hússins ljúki á árinu 2000.
Að endingu kom fólk saman til |
kaffisamsætis í sal í Oddshúsi. Helgi
Hjörvar núverandi formaður Hús-
sjóðs tók til máls og þakkaði Tómasi
Helgasyni fyrir óeigingjörn störf í
þágu Hússjóðs Öryrkjabandalagsins,
sem stjórnarmanns frá upphafi og
formanns Hússjóðs í níu ár.
G.Ó.
48