Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Qupperneq 49
Glæsileg ganga
og fundur
Síðasta vetrardag, hinn 21. apríl
sl. efndu Félag eldri borgara í
Reykjavík, Landssamband
eldri borgara og Öryrkjabandalag
Islands sameiginlega til kröfugöngu
og baráttufundar. Gengið var frá
Hallgrímskirkju niður á Ingólfstorg
og lék lúðrasveit fyrir göngunni.
A baráttufundinum var Helga
Soffía Konráðsdóttir formaður
Prestafélags íslands fundarstjóri.
Ræðumenn voru þeir Ólafur Ólafs-
son form. Félags eldri borgara í
Reykjavík, Haukur Þórðarson form.
Öryrkjabandalags íslands og Bene-
dikt Davíðsson form. Landssam-
bands eldri borgara. HörðurTorfason
söngskáld söng á milli ræðna.
I lok fundarins var borin upp og
samþykkt eftirfarandi ályktun með
lófataki:
Baráttufundur öryrkja og eldri
borgara, haldinn á Ingólfstorgi
síðasta vetrardag 1999, skorar á
ráðamenn að viðurkenna þann
vanda sem við blasir í lífeyrismál-
um landsmanna og sýna það í verki
þegar á þessu ári.
Til að almannatryggingar
íslensku þjóðarinnar fái risið undir
nafni er óhjákvæmilegt að stórefla
þær, hækka grunnlífeyri svo um
munar, rýmka frítekjumörk og
lækka jaðarskatta. Þá ber brýna
nauðsyn til þess að skattleysismörk
verði leiðrétt til samræmis við
þróun launavísitölu síðustu 10 ára
og hækkuð í 85 þúsund krónur.
I nafni einstaklingsfrelsis og
mannréttinda krefst fundurinn
Hlerað í hornum
Jónas fékk vinnu í kjörbúð yfir
sumarið eftir að hann tók stúdents-
próf. Verslunarstjórinn tók vel á móti
honum, fékk honum kúst og sagði
honum að sópa gólfið. Jónas mót-
mælti sármóðgaður: “Ég er með
stúdentspróf’. “Æ, fyrirgefðu, ég skal
sýna þér hvernig á að sópa”, sagði
verslunarstjórinn.
þess að nýtt Alþingi geri endur-
reisn almannatrygginga að for-
gangsverkefni íslenskra stjórn-
mála. Annað sæmir ekki einni
ríkustu þjóð veraldar.
Mikið fjölmenni var á baráttu-
fundinum, varlega áætlað um 4000
manns og ræðumönnum vel fagnað.
Afl þessara samtaka sameinaðra
er mikið, hafandi yfir 30 þúsund
manns innan sinna vébanda og eins
og Benedikt Davíðsson sagði þá er
allt þetta fólk með kosningarétt.
Ræða Hauks Þórðarsonar er birt hér
í blaðinu.
Samvinnu þessara fjöldasamtaka
ber vissulega vel að fagna og fyrsti
afrakstur hennar einstaklega góður
og glæsilegur. Megi af verða árangur
sem allra bestur á árinu sem og í
náinni framtíð á nýrri öld.
H.S.
Ólöf Stefanía Eyjólfsdóttir:
Tvö Ijóð
Spuni sjómannskonunnar
Tileinkað móður minni, Guðrúnu Stefánsdóttur.
Birta olíulampans lýsti
út á hvítt hjarnið.
Á rúmstokk móðir
æðrulaus sat
og iðin tvinnaði þráð
sem yljað fær smáum fótum.
Hún við hné snældu sló
í geislabaug Ijóssins
er sveipaði svefnloftið.
í vefinn hún óf
hljóða bæn
um blessun skaparans
giftu og góðar heimtur
í vertíðarlok.
Snögg hún snælduna sló
úr lopanum teygði
band í sokk
bráðum snældu fyllti.
Við íshafsins rönd
snáði og snót námu
er þráðinn hún
að brjósti sínu bar
dulmagn hvítagaldurs
hvar móðir aldanna
auðnuþráðinn spinnur.
Birta lampans lýsir
upp hvítt hjarnið.
í álögum.
Við Bárðarbungu
er fjallkonan fönguð
í víramöskva
sem hvíla
eins og álög á herðum
og nit í bláu hári.
Á berangri
leika börnin sér
við megavæddar
landvættir
um varpann feta þau
slóð járnvarðanna.
Selkópur syndir
í ryðgulri röst
kringum hólma og fjörð.
Gullbrydduð skýin
skunda uppveðruð
út við sjónarrönd.
O.S.E.
fréttabréf öryrkjabandalagsins
49