Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1999, Side 52
Ásgerður Ingimarsdóttir:
Vorvindur
Hann er kominn, nú kætist hver tindur,
hann er kominn að kasta burt snjó.
Hann er kominn sá vinsæli vindur
sem í vetrinum alls ekki bjó.
Og sjórinn glampar og glitrar,
gárurnar leika um hann.
í loftinu tíbráin titrar
og töfrar hvern einasta mann.
Og veröldin verður svo fögur,
þú veist ekki um neitt sem er Ijótt.
Þú sérð aðeins sólgeislakögur
og svo kemur bjartasta nótt.
Hann er kominn sá kærkomni vindur
hann er kominn um lönd og sjá.
Hann er kominn, nú kætist hver tindur,
hann er kominn að vera þér hjá.
Svæðisráð um málefni fatlaðra
Fulltrúar
• • /
Oryrkjabandalags Islands
Reykjavík: Halldór Gunnarsson, Granaskjóli 15, Reykjavík.
Til vara: Sigurrós M. Sigurjónsdóttir, Gullsmára 9, Kópavogi.
Reykjanes: Hrafn Sæmundsson, Bræðratungu 10, Kópavogi.
Til vara: Magnús Pálsson, Reykjalundi, Mosfellsbæ.
Vesturland: Ingólfur Hafsteinsson, Brekkubraut 15, Akranesi.
Til vara: Skúli Þórðarson, Vallarbraut 15, Akranesi.
Vestfirðir: Sigrún Sigurgeirsdóttir, Tangagötu 21, Isafirði.
Til vara: Anna Torfadóttir, Traðarstíg 6, Bolungarvík.
Norðurland v.: Signý Jóhannesdóttir, Suðurgötu 77, Siglufirði.
Til vara: Sigríður Höskuldsdóttir, Kagaðarhóli, Blönduósi.
Norðurland ey.: Sigmundur Sigfússon, Þórunnarstræti 81, Akureyri.
Til vara: Ingibjörg Sveinsdóttir, Stekkjargerði 1, Akureyri.
Austurland: Anna María Sveinsdóttir, Rjóðri, Stöðvarfirði.
Til vara: Unnur Jóhannsdóttir, Þiljuvöllum 35, Neskaupstað.
Suðurland: Ragnar R. Magnússon, Seljavegi 13, Selfossi.
Til vara: Þórarinn Sigurjónsson, Laugardælum, Selfossi.
Spor í rétta átt
“Spor í rétta átt”, voru orð formanns okk-
ar, Hauks Þórðarsonar um þá reglugerð, sem
heilbrigðisráðherra Ingibjörg Pálmadóttir, gaf
út hinn 15. apríl sl. um breytingar á reglugerð
frá árinu 1987 um þátttöku almannatrygginga
í bifreiðakaupum fatlaðra.
Inn í þetta samhengi er auðvitað rétt að setja
það tvennt að um árabil hafa upphæðir styrkja
til bifreiðakaupa staðið algjörlega í stað svo
og að fyrir nokkrum ámm var styrkjum fækkað
mjög verulega og hefur hvorutveggja skapað
hin verstu vandamál.
Nú eru ýmsir vankantar af sniðnir og ýmsu
til betri vegar breytt, þó best þyki okkur það
ákvæði að þeir sem nú sækja í fyrsta sinn og
lenda ekki í hærri flokknum, fá nú 20 talsins
500 þús. kr. við hverja úthlutun og tekur sú
skipan gildi við næstu úthlutun. Nefnd sú sem
um fjallaði og í áttu sæti fulltrúar Sjálfsbjargar
og Öryrkjabandalagsins hafði einmitt lagt til
verulega hærri upphæð fyrir styrkhafa lægri
styrkja þegar sótt væri um í fyrsta sinn. Spor
í rétta átt utan efa.
Hækkun lægri styrkja úr 235 þús. í 250
þús. þykir okkur býsna nánasarleg, en
þá ber þó þess að geta að í stað 5 ára frests á
úthlutun styrkja færist árafjöldinn í 4 ár.
Styrkjum þar er fjölgað um 40 og þegar tillit
er tekið til hinna 20 áðurnefndu nemur fjölg-
unin í raun 60, en enn vantar þó þriðjung upp
á þá styrkjatölu sem var áður en til fækkunar
kom. Hærri styrkimir til þeirra sem nota hjóla-
stól, hækjur, spelkur eða gervilimi fara úr 700
þús. í 1 millj. kr. en þess þá um leið getið að í
stað mögulegra styrkveitinga á þriggja ára
fresti lengist það nú í fjögur ár, nú er sem sagt
sama áratala alls staðar.
Þeim styrkjum var fjölgað í 60 úr 50 og
veitti sannarlega ekki af og alls óvíst hvort
duga megi.
Þá voru rýmkuð ákvæði um heimild til
greiðslu styrkja til einstaklinga sem ekki
komast af án sérútbúinnar og dýrrar bifreiðar
vegna hreyfihömlunar og heimildir hækkaðar
í prósentum um leið, sem mjög var til bóta.
Hækkanir þessar og styrkjafjölganir má
sem sagt rekja beint til vinnu nefndar undir
stjóm Jóns Sæmundar Sigurjónssonar þar sem
sæti áttu Haukur Þórðarson frá Öryrkjabanda-
laginu og Arnór Pétursson og Ragnar Gunnar
Þórhallsson frá Sjálfsbjörg.
Eins og Haukur formaður greindi frá í
blaðaviðtalinu fyrrgreinda gengu tillögur
þeirrar nefndar mun lengra en hverju spori í
rétta átt er þó skylt að fagna.
H.S.
52