Bændablaðið - 02.04.2020, Side 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 202012
Kristján Þór Júlíusson sjávar
útvegs og landbúnarðar ráð herra
kynnti á föstudaginn aðgerðir á
sviði landbúnaðar og sjávarút
vegs til að bregðast við áhrifum
COVID19 veirunnar á þessar
greinar.
Markmið aðgerðanna er að
lág marka neikvæð áhrif á íslensk
an landbúnað og sjávarútveg til
skemmri og lengri tíma, en um leið
skapa öfluga viðspyrnu þegar þetta
tímabundna ástand er gengið yfir.
Aðgerðirnar eru átta fyrir land
búnað og eru eftirfarandi:
1. Íslensk garðyrkja efld til muna
með auknum fjárveitingum
Nú standa yfir samningavið
ræður stjórnvalda og bænda um
endurskoðun búvöru samnings um
starfsskilyrði garðyrkju ræktar.
Þar er gert ráð fyrir að íslensk
garðyrkja verði efld til muna með
auknum fjárveitingum og með til
heyrandi fjárfestingum í greininni.
Aðgerðin er m.a. fjármögnuð með
fjár festingaátaki ríkisstjórnar innar
á þessu ári. Aukin framleiðsla á
íslensku græn meti er forsenda þess
að íslensk ir garðyrkjubændur nái
að halda í við þá þróun sem aukin
neysla grænmetis hefur í för með
sér og nái að halda við og auka
markaðshlutdeild íslensks græn
metis.
2. Aukin þjónusta og ráðgjöf til
bænda vegna COVID-19
Atvinnuvega og nýsköpunar
ráðuneytið mun í samráði við
Bændasamtök Íslands gera
bændum kleift að fá fjölþætta
ráðgjöf á sviði rekstrar og
nýsköpunar til að takast á við
þær áskoranir sem nú blasa
við vegna COVID19 og til
að tryggja öfluga viðspyrnu
þegar að þessu tímabundna
ástandi lýkur.
3. Tilfærslur á greiðslum sam-
kvæmt gildandi búvörusamn-
ingum innan ársins 2020
Framkvæmdanefnd búvöru
samninga verður falið að
leita leiða til að færa til fjár
muni í samræmi við gildandi
búvörusamninga til að koma
sérstaklega til móts við inn
lenda matvæla framleiðendur
sem nú glíma við tímabundna
erfiðleika.
4. Afurðatjón vegna COVID-19
skráð
Atvinnuvega og nýsköpunar
ráðuneytið, Bændasamtök
Íslands og Rannsóknamiðstöð
landbúnaðarins munu vinna
saman að því að skrá afurða
tjón bænda vegna COVID19.
5. Tryggja greiðslur til einstakl -
inga sem sinna afleysinga-
þjónustu fyrir bændur
Bændasamtök Íslands hafa
sett á fót afleysingaþjónustu
til að aðstoða bændur sem
ekki geta sinnt búum sínum
vegna veikinda af völdum
COVID19. Atvinnuvega og
nýsköpunarráðuneytið vinnur
að því í samstarfi við félags
og barnamálaráðuneytið að
tryggja greiðslur til þeirra
einstaklinga sem sinna þessari
þjónustu.
6. Mælaborð fyrir landbúnaðinn
til að bæta framsetningu
gagna um
landbúnaðar-
framleiðsluna,
birgðir og
framleiðsluspár
Atvinnuvega og
nýsköp unar ráðu
neytið og Bænda
samtök Íslands
munu vinna að gerð
mælaborðs fyrir
landbúnaðinn til að
bæta fram setningu
gagna um landbúnaðar
framleiðsluna, birgð ir og fram
leiðslu spár. Markmiðið er að
búa til nokk urs konar mæla
borð landbúnaðarins þar sem
dregnar eru saman hagtölur
sem snerta framleiðsluna og
þeim haldið við. Slíkt skiptir
máli m.a. til að tryggja fæðu
öryggi til lengri og skemmri
tíma.
7. Óskað eftir liðsinni dýralækna
í bakvarðasveit
Atvinnuvega og nýsköpunar
ráðuneytið, Matvæla stofnun
og Dýralæknafélag Íslands
hafa óskað eftir liðsinni
dýralækna í bakvarðasveit.
Leitað er að fólki sem hefur
aðstæður og er reiðubúið að
vera á útkallslista dýralækna
og getur hlaupið til með
skömmum fyrirvara, eftir því
sem aðstæður leyfa.
8. Ráðstafanir til að stuðla að
ræktun iðnaðarhamps hér á
landi
Atvinnuvega og nýsköpunar
ráðuneytið mun í samstarfi
við heilbrigðisráðuneytið gera
ráðstafanir til að heimila með
skilyrðum ræktun iðnaðar
hamps hér á landi til að auka
verðmætasköpun í íslenskum
landbúnaði.
Fyrir sjávarútveginn og
fiskeldi eru aðgerðirnar fimm:
1. Komið til móts við grásleppu-
sjómenn sem lenda í sóttkví
eða
einangrun varðandi lengd
veiðitímabilsins
Ráðherra hefur undirritað
breytingu á reglugerð um
hrognkelsaveiðar 2020 sem
heimilar hlé á grásleppu veið
um ef skipstjóri eða áhöfn
þurfa að fara í sóttkví eða
ein angr un.
2. Afgreiðslu rekstrarleyfa
í fiskeldi flýtt og eftirlit og
stjórnsýsla styrkt
Fiskeldi hefur vaxið mikið
á undanförnum árum og var
útflutningsverðmæti fisk
eldis 25 ma.kr. í fyrra eða sem
nemur tæplega 2% af heildar
útflutningi. Sam hliða miklum
vexti grein arinnar undanfar
in ár hefur málsmeðferð
rekstrar leyfis veitinga vegna
fiskeldis þyngst umtalsvert.
Því er mikilvægt í samráði
við Matvælastofnun að flýta
afgreiðslu leyfa til fiskeldis
enda gæti það á þessu ári og
til framtíðar haft í för með
sér mikla fjárfestingu hér
á landi og ráðningu á fleira
starfsfólki.
3. Aukið fjármagn í hafrann-
sóknir
Öflugar hafrannsóknir eru
meginforsenda þess að gera
megi verðmæti úr sjávar
auðlindinni og nýta hana með
sjálfbærum hætti. Í sam ræmi
við samstarfs sáttmála ríkis
stjórnarinnar verður veitt
viðbótar fjármagn til að efla
hafrannsóknir við Ísland. Við
ráðstöfun þessa viðbótar
fjármagns verður sérstaklega
litið til þess að auka rann
sóknir á loðnu en um mikla
þjóð hags lega hagsmuni er að
ræða en útflutningsverðmæti
loðnu árin 20162018 var að
meðaltali um 18 milljarðar
króna. Aðgerðin er fjármögn
uð með fjárfestingaátaki ríkis
stjórnarinnar á þessu ári.
4. Aukið svigrúm til að flytja
aflaheimildir milli fiskveiði-
ára
Aðgerðin miðar að því að
stuðla að sveigjanleika við
veiðar og vinnslu en slíkt er
mikilvægt í því tímabundna
ástandi sem nú gengur yfir.
5. Árskvótar deilistofna
uppsjávarfisks gefnir út
Atvinnuvega og nýsköpunar
ráðuneytið mun hraða vinnu
við útgáfu árskvóta til veiða
úr þremur deilistofnum
uppsjávar fisks, þ.e. síldar, kol
munna og makríls. Með því
er stuðlað að auknum fyrir
sjáanleika við þessar veiðar.
Tvær aðgerðir
eru svo almenns eðlis:
1. Fallið frá áformum um
2,5% hækkun á gjaldskrá
Matvælastofnunar til
1. september 2020
Fyrirséð er að eftirspurn eftir
íslenskum matvælum mun
dragast saman á næstu misser
um, m.a. í ljósi fækk unar ferða
manna til Íslands, og mun slíkt
hafa áhrif á rekstur íslenskra
matvæla framleiðenda. Vegna
þessa verður fallið frá áform
um um 2,5% hækkun á gjald
skrá Matvælastofnunar til 1.
september á þessu ári.
2. Ráðstafanir til að tryggja
áframhaldandi starfsemi
fyrirtækja í matvælafram-
leiðslu vegna samkomu banns
o.fl.
Hertar kröfur um samkomur
fólks, fjarvera starfsmanna
frá vinnu vegna sóttkvíar og
einangrunar og aðrar ráð
stafanir yfirvalda geta haft
neikvæð áhrif á fyrirtæki
sem sinna íslenskri matvæla
framleiðslu. Heilbrigðis
ráðherra hefur, eftir samráð
við sóttvarnalækni, almanna
varnadeild ríkislögreglustjóra
og Matvælastofnun, ákveðið
að veita fyrirtækjum í þess
um greinum undanþágu frá
tilteknum ráðstöfunum að upp
fylltum ströngum skilyrðum.
Atvinnuvega og nýsköpun
arráðuneytið mun áfram fylgj
ast með þessari þróun í sam
vinnu við heilbrigðisyfirvöld
og atvinnulífið.
Í tilkynningu úr sjávarútvegs og
landbúnaðarráðuneytinu kemur fram
að eðli málsins samkvæmt breytist
staðan hratt og mun ráðuneytið því
áfram fylgjast náið með þróun mála
og grípa til frekari aðgerða sem
nauðsynlegar verða. /smh
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
FRÉTTIR
Sjávarútvegs- og landbúnaðar ráðherra:
Aðgerðarpakki vegna áhrifa COVID-19
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Mynd / sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið