Bændablaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 2020 31
.
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | WWW.VR.IS
VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofs-
íbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína.
Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni fyrir
næsta sumar.
Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 8. apríl 2020.
Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhver fylgi með.
Öllum tilboðum verður svarað.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:
– Lýsing á eign og því sem henni fylgir
– Ástand eignar og staðsetning
– Stærð, öldi svefnplássa og byggingarár
– Lýsing á möguleikum til útivistar og
afþreyingar í næsta nágrenni
VINNUÞJARKUR
Fjórgengis V-Twinmótor, 62 hestöfl, rafmagnstýri, bein innspýting, spil, dráttarkrókur, hátt og lágt drif með
læsingu, 14“ álfelgur, sturtupallur, hleðsla 360 kg. eigin þyngd 625 kg. Traktorsskáður, Orange eða Camo.
2.999.000,-
Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi
sími 557 4848 / www.nitro.is
Lyngás 13 / 700 Egilsstaðir
Sími 471 2299 / www.ab.is
Glerárgötu 7 / 600 Akureyri
Sími 415-6415 / hesja.is
POTTIPUTKI geispur
og burðaráhöld
ásamt fleiri vörum
fyrir skógarfólk
VORVERK.IS
Þverholt 2 – (Kjarni) Mosfellsbær
sími 665 7200 vorverk@vorverk.is
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
GRAFAGRINDUR
GOTT ÚRVAL
Aflvélar ehf. • Vesturhrauni 3 • 210 Garðabær
Sími: 480 0000 • www.aflvelar.is • sala@aflvelar.is
Sugan frá Glutton er hentug fyrir sveitafélög og
fyrirtæki til að auðvelda vinnu við hreinsun
UTAN ÚR HEIMI
Holland:
Öll þök skulu vera græn
Íbúar og yfirvöld í Utrecht í
Hollandi ætla kerfisbundið að
vinna í því að gera borgina grænni.
Ný áætlun gerir ráð fyrir að gera
umhverfið grænna og að á öllum
þökum í miðbæ borgarinnar eigi
að vaxa gróður eða vera með sól-
arsellur.
Hugmyndin, sem kallast engin
þök ónotuð, nær einnig til þaka á
strætisvagnaskýlum. Með því að
rækta gróður af einhverju tagi, gras,
blóm eða mosa á að auka líffræði-
lega fjölbreytni í borginni og um leið
draga úr magni koltvísýrings í and-
rúmsloftinu. Einnig er hugmyndin
að meiri gróður í borginni muni
draga úr æðibunugangi og stressi
íbúanna og auka þannig hamingju
og vellíðan.
Til að auðvelda íbúum að grænka
þökin sín ætla borgaryfirvöld að
styrkja íbúðareigendur í miðborginni
um allt að 50% kostnaðar vegna
framkvæmdarinnar en að hámarki
um 20 þúsund €, eða rúmar þrjár
milljónir króna.
Hátt gróðurhýsi
Til að sýna vilja í verki stendur til
að byggja háhýsi skammt frá aðal-
járnbrautastöð borgarinnar og klæða
það að utan og ofan með 300 ólíkum
tegundum af plöntum, 360 trjám,
9.640 runnum og fjölda smærri
plantna. Alls mun gróðurinn utan á
húsin þekja um einn hektara. Áætlað
er að háhýsið verði tilbúið árið 2022
og samkvæmt útreikningum mun
það binda um 5,4 tonn af koltví-
sýringi og framleiða um 41 tonn af
súrefni á ári.
Hnoðrar á strætóskýlum
Á síðasta ári var lokið við að koma
hnoðrum fyrir á þökum 316 strætis-
vagnaskýla í borginni. Hnoðrarnir
sem eru sígrænir hafa sýnt fram á að
þeir draga úr magni svifryks, hækka
rakastig og auka litadýrð þar sem
þeir vaxa og blómstra. Hnoðrarnir
hafa einnig góð áhrif á skordýralíf
og laða að sér fugla. /VH
Gróðurháhýsið í Utrecht í Hollandi verður klætt með um 300 mismunandi
tegundum af plöntum. Mynd / Stefano Boeri Architetti