Bændablaðið - 02.04.2020, Side 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 202032
Gamanmyndahátíð Flateyrar
hefur í samstarfi við Reykjavík
Foto efnt til 48 stunda gaman
myndakeppni á netinu. Keppnin
gengur út á það að einstaklingar
eða lið geta skráð sig til leiks og
frá og með 27. mars fá liðin 48
klukkustundir til að fullklára
gamanmynd út frá því þema sem
verður gefið upp.
Sýningarhæfum myndum
þarf svo að skila inn til Gam an
myndahátíðarinnar 48 klukku
stundum síðar, þann 29. mars. Í
kjölfarið verður netkosning um
fyndnustu 48 stunda gamanmyndina
og fær sigurmyndin veglega Canon
EOS M50 myndavél frá Reykjavík
Foto að launum.
Fyndnasta kvikmyndahátíð
Íslands
Gamanmyndahátíð Flateyrar er
fyndnasta kvikmyndahátíð Íslands
og verður hún haldin í fimmta
skiptið nú í haust. Á síðustu há
tíð var í fyrsta skiptið keppt í 48
stunda gamanmyndagerð á Íslandi
og var það stuttmyndin Ballarhaf
sem var valin fyndnasta stutt
myndin af áhorfendum þar sem
þemað var Fiskur. Myndina má sjá
á slóðinni: https://www.youtube.
com/watch?v=gvn9T_fkoQM&t=2s
Þörf fyrir gleði og húmor
Það hefur sjaldan eða aldrei verið jafn
mikil þörf á gleði og húmor eins og
nú og því er tilvalið að halda nýja 48
stunda gamanmyndakeppni. Keppnin
verður opin öllum og hægt að taka
þátt hvar sem er. Einstaklingar, fjöl
skyldur eða vinahópar geta skemmt
sér við þetta saman, tekið upp litla
gamanmynd í sínu nærumhverfi. Það
þarf ekki mikinn tækjabúnað til að
setja saman stutta gaman mynd, bara
góða hugmynd og einfalda mynda vél
eða síma.
Á sama tíma og aðstandendur
vonast til að fá margar skemmti
legar myndir frá áhugafólki skora
þeir einnig á kvikmyndagerðarfólk
að taka þátt og leggja sitt af mörk
um við að gleðja landsmenn með
nýjum fyndnum stuttmyndum.
Skráning í keppnina fer fram á vefsíðu
Gamanmyndahátíðarinnar: https://
www.icelandcomedyfilm festival.
com/48stundagaman myndakeppni
„Með gleði og húmor komumst við
í gegnum þessa skrítnu tíma,“ segir
Eyþór Jóvinsson framkvæmda stjóri
Gamanmyndahátíðar Flateyrar. /HKr.
Fjölskyldan í Meðalheimi á
Ásum í Austur Húnavatnssýslu
hefur látið taka saman þónokk
uð af kveðskap Óskars Sigur
finns sonar, bónda í Meðal
heimi. Heiðurinn af þeirri
samantekt og skrá setn ingu á
Árni Geirhjörtur Jónsson.
Vísnasafnið var lesið inn
á geisladiska af Árna og Þór
Sigurðssyni. Eru diskarnir síðan
fjölfaldaðir á Ólafsfirði og seldir
í tveggja diska albúmi sem hann
að er af Ágústi Halldórssyni,
grafískum hönnuði hjá Ásprenti
á Akureyri.
Áhugasamir geta haft sam band
við fjölskylduna í Meðal heimi
á netfangið; medal heim ur@
emax.is, eða í síma: 452 4263
og 895 6866.
MENNING&LISTIR
Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson:
Með ljóðabók á 80 ára afmælinu
Hafsteinn Reykjalín, vélstjóri
og leigubílstjóri, varð áttræður
í gær, 1. apríl. Af því tilefni gaf
hann út sína fimmtu ljóðabók og
nefnist hún Gengin slóð.
Hafsteinn er ekki ósnortinn af
listagyðjunni og hefur sótt mörg
námskeið í olíumálun og haldið 14
sýningar og nokkrar samsýningar,
á vegum Félags tómstundamál
ara. Þá stundar hann ljóðagerð í
Ljóðahóp Gjábakka og hefur gefið
út nokkrar ljóðabækur með þeim
og er nú sjálfur að gefa út sína 5.
ljóðabók, GENGIN SLÓÐ, sem er
með 220 ljóðum, flest gerð 2018.
Hafsteinn fór á nokkur nám
skeið í hljómfræði og píanóleik.
Gaf hann út tvo CD diska, Ljúfar
stundir 2012 og Lífið er dans
2015, með 23 frumsömdum ljóð
um og lögum. Einnig gaf hann út
nótna hefti með 50 lögum og 16
einsöngslög á nótum. Þá semur
hann ljóð á dag og setur flest inn
á Facebook, svo eitthvað sé nefnt.
Fæddur á Hauganesi
við Eyjafjörð
Hafsteinn býr í Kópavogi, en
hann er fæddur og uppalinn
á Hauganesi við Eyjafjörð og
ólst þar upp og bjó þar til 18
ára aldurs. Hann bjó á Akureyri
nokkur ár, lauk þar iðnnámi og
vélvirkjameistaraprófi 1966,
var í Vélskóla Íslands 1968–
1971 og útskrifaðist þaðan vél
fræðingur.
Hann var vélstjóri á fiski
skipum og fossum Eimskips,
átti og rak nokkur fyrirtæki í
Reykjavík og víðar og stund
aði leigubílaakstur í fjölda ára.
Hafsteinn var formaður Sjálf
stæðisfélags Kópavogs um tíma
og sat í nokkrum nefndum hjá
Kópavogskaupstað.Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson.
Hafsteinn Reykjalín hefur gefið út fimm ljóðabækur, tvo geisladiska og
nótnahefti auk þess að halda málverkasýningar. Vísnasafn Óskars í Meðalheimi
gefið út á hljóðdiskum
Húmor og gleði til að létta fólki stundirnar:
Gamanmyndahátíð Flateyrar verður haldin á netinu
– Efnt til 48 stunda kvikmyndagerðarkeppni þar sem allir geta tekið þátt
Frá gamanmyndahátíð Flateyrar á síðasta ári.
Eyþór Jóvinsson og Ársæll Níelsson, forsvarsmenn Gamanmyndahátíðarinnar.
Það er bara gaman á Gamanmyndahátíð.