Bændablaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. apríl 2020 55
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is
OKKAR ÆR OG KÝR
— STARTARAR OG ALTERNATORAR —
LÖGGARÐUR EHF.
Almenn lögfræðiþjónusta, erfðaskrár,
skipti dánarbúa, gallamál vegna fasteigna,
vinnuréttamál og slysamál.
Hafðu samband: loggardur.is eða 568-1636.
Stofnað 1985
Byggingarstjórn
Tek að mér byggingarstjórn.
Örn Úlfar Úlfarsson
s. 844-5169
netfang: oulfarsson@gmail.com
Áhugasamir er bent á vegr.is
Netfang: vegr@vegr.is
Vélsmiðja Grundarfjarðar
Flytjum inn iðnaðarhús og skemmur
í öllum stærðum gerðum.
Smiðjuvegur 30, 200 Kópavogur
LESENDABÁS
Fæðuöryggi:
Hvaða breytinga er þörf?
Umræða um fæðuöryggi Íslend
inga hefur vaknað í tengslum við
COVID19 faraldurinn. Viðbrögð
við þeirri umræðu hafa eðlilega
snúist um skammtímasjónarmið,
en mikilvægt er að horfa til lengri
tíma í þeim efnum. Eftirfarandi
eru tíu breytingar sem eru að mínu
mati nauðsynlegar fyrir íslenska
fæðuframleiðslu í ljósi þeirrar
óvissu sem uppi er.
Aukið frjálsræði bænda til
úrvinnslu eigin afurða og
beinnar sölu til neytenda
Möguleika bænda til slátrunar
eigin gripa þarf að auka. Í sam-
tölum mínum við veitingamenn,
bændur og aðra frumkvöðla víða
um land er komið inn á ástæður á
borð við viðhald verkþekkingar,
minni flutninga, bætta dýravelferð
og aukna eftirspurn meðal neyt-
enda, svo ekki sé minnst á gæði
kjötsins. Tilraunaverkefni ráðherra
um heimaslátrun sauðfjár, haustið
2020, er jákvætt skref.
Aukin áhersla á
innlenda fóðuröflun í
stað innflutnings á fóðri
Íslendingar framleiða um 150 þús-
und tonn af mjólk og 30 þúsund
tonn af kjöti á ári. Til að framleiða
þessi 180 þúsund tonn af matvælum
flytjum við inn ríflega 100 þúsund
tonn af soja, maís og öðrum fóð-
urhráefnum. Framleiðsluaukning
mjólkurframleiðslu síðustu ára
hefur haldist í hendur við aukinn
innflutning á fóðurhráefnum. Það
er mögulegt að nýta íslensk hráefni,
íslenskt land og íslenska orku til að
vinna fóðurhráefni og áburð og full
ástæða til að setja aukinn kraft í slíka
þróun.
Stuðningur við
matvælaframleiðslu miði
að auknum viðnámsþrótti
matvælaframleiðslu og
byggðarlaga
Stuðningur við landbúnaðarfram-
leiðslu („landbúnaðarkerfið“) er að
verulegu leyti miðaður við fram-
leiðslu í tveimur greinum landbún-
aðar; sauðfé og mjólkurframleiðslu.
Það er full ástæða til að styðja við
íslenskan landbúnað, en út frá fæðu-
öryggissjónarmiðum væri nær að
skilgreina nauðsynlega lágmarks-
stöðu í helstu greinum framleiðslu
landbúnaðarafurða og miða stuðning
við það. Annar stuðningur við land-
búnað ætti að miðast við sjálfbæra
nýtingu lands og kolefnisbindingu,
auk stuðnings við nýsköpun, t.a.m.
úrvinnslu og vöruþróun og inn-
leiðingu og þróun tæknilausna.
Stöðvum jarðasöfnun sem tekur
landbúnaðarland úr umferð og
ýtir undir neikvæða byggðaþróun
Ríkisstjórnin hefur lagt fram frum-
varp í þessum efnum, sem er jákvætt.
Það kann vel að vera að það frum-
varp þurfi lagfæringa við, en það er
í öllu falli jákvætt að málið sé komið
á dagskrá. Það er flókið að setja fram
hina einu „réttu“ uppskrift í þessum
efnum, en hægt að benda á reynslu
nágrannaþjóða okkar og umræðu
sem á sér stað þar.
Eftirlitskostnaður við
matvælaframleiðslu miðist
við raunverulega áhættu
Eftirlitskostnaður hamlar umtalsvert
starfsemi minni matvælaframleið-
enda. Nýlegt dæmi um hundruð
þúsunda eftirlitskostnað við minni-
háttar bleikjueldi sýnir ágætlega
hversu miklar hindranir geta verið í
veginum fyrir frumkvöðla sem vilja
byrja smátt og prófa hlutina. Það þarf
að taka rækilega til í þessum efnum
og beita nýjum lausnum. Væri ekki
t.d. tilvalið að læra af fjarfundum
sem við höfum þurft að halda vegna
Covid-19 og beita rafrænum lausnum
við eftirlit í auknum mæli?
Efling iðnnáms og virðing
fyrir starfsfólki í framleiðslu
Stór hluti af starfsfólki í framleiðslu
matvæla er af erlendu bergi brotinn.
Í sumum tilvikum er um að ræða far-
andverkamenn sem koma til landsins
á álagstímum (um 500–600 manns
koma í sláturtíð). Hvernig ætlum við
að haga málum ef ekki verður mögu-
legt að flytja inn ódýrt vinnuafl? Við
þurfum að bera meiri virðingu fyrir
handverki, hvetja ungt fólk til að læra
iðngreinar tengdar framleiðslu og
matreiðslu og greiða samkeppnishæf
laun fyrir slík störf.
Borgum meira fyrir matvöru
Matvælaverð hefur farið hratt
niður síðustu áratugi. Á sama tíma
er upp undir þriðjungi af matvælum
sóað, sem skapar umhverfisáskorun
og sóar verðmætum auðlindum. Við
neytendur þurfum að sýna í verki að
við séum tilbúin að greiða meira fyrir
matvöru og versla beint við bændur
og matvælaframleiðendur sem sýna
að þeim sé annt um langtíma fæðu-
öryggi.
Veljum íslenskt og
framleitt í nágrenninu
Besta vörnin gegn röskun á fæðu-
framboði er staðbundin framleiðsla.
Við getum öll aukið okkar mat-
vælaframleiðslu, hvort sem það er úti
í garði eða úti á svölum auk þess að
styðja matvælaframleiðendur í okkar
nágrenni, til sjávar og sveita. Gott
fyrir fæðuöryggi, gott fyrir þróun
okkar eigin nærsamfélags og gott
fyrir umhverfið.
Leyfum eðlilega þróun
varðandi hráefnaval
Matvælaframleiðsla á Íslandi hefur
á margan hátt verið íhaldssöm, þó
vissulega hafi komið fram öflugir
frumkvöðlar sem hafa látið reyna á
ný hráefni og nýjar aðferðir til rækt-
unar. Það er full ástæða til þess að
fjarlægja hindranir sem eru í vegi
nýsköpunar. Nýlegt dæmi um slíka
hindrun er kæra á hendur frum-
kvöðlum vegna ræktunar og nýtingar
iðnaðarhamps.
Jöfnum aðstöðu
matvælaframleiðenda og
stóriðju varðandi orkuverð
Það er hægt að framleiða mun meira
af matvælum á Íslandi, til hagsbóta
fyrir fæðuöryggi, lýðheilsu og um
leið lágmarka áhættu í utanríkis-
verslun. Stórt skref í þá átt er að
lækka orkukostnað garðyrkjunnar.
Samfara lækkun á orkukostnaði
væri tilvalið að ráðast í átak varð-
andi frekari úrvinnslu á hráefnum úr
garðyrkju og vöruþróun á íslenskum
áburði og öðrum nauðsynlegum hrá-
efnum til ræktunar.
Sveinn Margeirsson,
sjálfstæður ráðgjafi.
Bænda
22. apríl
Sveinn Margeirsson.