Spássían - 2012, Blaðsíða 2
2
BÓKASAFN
NORRÆNA HÚSSINS
– SAFN NORRÆNNAR MENNINGAR
Norrænar bókmenntir
Tímarit
Kvikmyndir
Rafbækur
Hljóðbækur
Barnadeild
Artótek
Við erum á facebook og upplýsum þig um allt það nýjasta dag frá degi.
Opið alla virka daga og um helgar
frá kl. 12–17.
Sími 5517090, nordlib@nordice.is
AFREK
DAGSINS
FJÖLBREYTT UMRÆÐA lifandi menning
ÞAKKIR
Sífellt fl eiri börn taka þátt í skipulögðum íþrótt um og
afreksfólkið okkar í íþrótt um er sannkallaðar stjörnur í
augum okkar. Samfélagið allt virðist reyndar stundum
heltekið af íþrótt aanda og þar er menningin engin
undantekning. Áherslan á samkeppni í jólabókafl óðinu
verður þó oft fullmikil að mati margra. Metsölubækur og
verðlaunahöfundar vekja mestu athyglina og fj ölmiðlar
fylgjast grannt með því hver trónir efst á hvaða afrekslista
hverju sinni. Hinir falla í skuggann og sýnir það skuggahlið
þess að leggja ætí ð áherslu á afrek og sigra. Í þannig
samfélagi eru alltaf fáir sem vinna en margir sem tapa.
Íþrótt ahreyfi ngin nýtur almennt mikils stuðnings
og velvildar, enda virðast fl esti r á einu máli um að
íþrótti r sé hollt að stunda, ekki síður fyrir sál en líkama.
Íþrótt afólk lærir aga, skipulag og einurð; að setja sér
markmið og vinna ötullega að þeim. En það getur ekki
síður verið hollt að rísa stundum upp gegn markmiða-
og afrekamiðaðri hugsun. Þegar við erum alltaf með
skeiðklukkuna á loft i gefst ti l dæmis líti ll tí mi fyrir
yfi rvegaða menningarumfj öllun. Eins og Sigurbjörg
Þrastardótti r bendir á í aðalviðtali Spássíunnar verður fólk
aðeins að fá að draga andann inn á milli og setja það sem
er efst á baugi í víðara samhengi. Líkt og þegar Reinhard
Hennig tók sér tí ma ti l að setja Jarðnæði Oddnýjar Eirar
Ævarsdótt ur í samhengi við umhverfi sverndarbókmennti r
aft ar í þessu blaði. Aðeins þannig náum við því
gagnrýna sjónarhorni sem gerir okkur kleift að kljást
við grundvallarhugmyndafræði og velta upp nýjum
möguleikum, eins og Gunnar Theodór Eggertsson gerir
þegar hann tekur nútí ma mannmiðjuhugsun ti l athugunar
og neitar að samþykkja gagnrýnislaust sti gveldið þar sem
maðurinn trónir á toppnum sem sigurvegari en aðrar
dýrategundir þurfa að lúta í lægra haldi. Það getur líka
verið mikilvægt að staldra við reglulega og endurskoða
hefðina, ti l dæmis áherslur bókmenntasögunnar. Það
tekur Bókmenntaborgin Reykjavík nú þátt í að gera með
því að setja Vögguvísu eft ir Elías Mar í brennidepil á fyrstu
lestrarhátí ð sinni og gefa höfundinum þannig meira vægi
í bókmenntaumfj öllun samtí mans, eins og fram kemur í
grein Ástu Kristí nar Benediktsdótt ur.
Því fer þó fj arri að Spássían láti ekki hrífast með af
spennuþrungnu andrúmsloft inu í kringum kapphlaup
jólabókavertí ðarinnar. Við munum m.a. leggja okkar
af mörkum með því að birta reglulega bókaumfj öllun á
heimasíðunni www.spassian.is. Nú á haustmánuðum
munu ritdómar birtast þar vikulega en á lokaspretti num í
desember gefum við í og birtum þá annan hvern dag. Hins
vegar látum við það okkur í létt u rúmi liggja hvort einhvers
staðar er marklína – og hvort við komumst nokkurn tí ma
yfi r hana.