Spássían - 2012, Blaðsíða 27
27
Huginn segist hafa byrjað mikið til
á þessu því honum fannst mikil værð
yfir barnabókamarkaði yngstu
lesenda. „Áslaug Jónsdóttir hitti
reyndar naglann á höfuðið með
Skrímslabækurnar. Þær eru feikilega
góðar og það eru stöku aðilar að
gera flotta hluti en í heildina fannst
mér ekkert spennandi að gerast.“
Huginn segist hafa veitt því
eftirtekt hvernig börn bregðast
við bókunum hans. „Það eru börnin
sem velja yfirleitt á bókasöfnunum
en í búðunum velja fullorðnir. Á
bókasöfnunum segjum við „veldu
þér bók“ og þar hafa bækurnar
mínar farið.“
Huginn skrifar sjálfur stóran hluta
þeirra bóka sem Óðinsauga gefur
út en hann segist einnig vilja gefa
nýjum höfundum tækifæri. Flestir
eru þeir leikskóla- eða grunn-
skólakennarar og segir Huginn það
samræmast þeirri stefnu sem hann
hefur tekið í útgáfu. Hann leggi ríka
áherslu á að gefa út bækur með
boðskap. „Sumir segja að það eigi
ekki að vera boðskapur. Það sé svo
leiðinlegt. En það er hægt að gera
það á hressan og kátan hátt. Ég hef
alltaf eitthvað að segja. Ég nenni
ekki að koma bara með eitthvað
grín og svo er enginn tilgangur með
því. Ekkert sem hægt er að hugsa
um eða veltir upp spurningum eða
vangaveltum. Vissulega má alltaf
finna einhvern boðskap í flestum
barnabókum, það er auðvitað alltaf
boðskapur í því sem maður segir, en
þegar ég hóf útgáfu var það mín
tilfinning að það væri hálfgert tabú
að viðurkenna það.“
Huginn hefur líka gaman af
því að leika sér með öfga og
dregur fram bókina Og þau lifðu
hamingjusöm allt til æviloka... eða
hvað? Hún fjallar um prins sem
upplifir erfiðleika í hjónabandi.
„Þessi bók fer svolítið yfir gráu
línuna og er ekki fyrir alla. Hún er
fyrir fullorðna og ákveðinn hóp af
börnum og er þá útskýrt fyrir þeim
hvernig þetta er á léttu nótunum.
Þessi fór ekki síður í brúðkaupsgjafir
til fullorðinna því fólki fannst þetta
svolítið fyndið. Flestar bækurnar
eru mjög hefðbundnar en maður má
ekki vera þannig að maður sé alveg
laus við að fara ótroðnar slóðir,
og svo sjálfsgagnrýninn að maður
geti ekki aðeins sleppt fram af sér
beislinu.“
SUMIR
SEGJA AÐ
ÞAÐ EIGI EKKI AÐ
VERA BOÐSKAPUR.
ÞAÐ SÉ SVO
LEIÐINLEGT. EN ÞAÐ
ER HÆGT AÐ GERA
ÞAÐ Á HRESSAN
OG KÁTAN
HÁTT.
6
GuðjónÓ prentsmiðja notar tækjakost sem er í fremstu röð.
Þar má til að mynda nefna nýja Heidelberg Speedmaster
52. Vélin ræður við allt að 400gr pappír með vatnslakki
sem skilar prentörkinni þurri úr prentvélinni. Með þessu
má stytta vinnslutímann á vörunni verulega þar sem
prentgripurinn getur farið beint í frágang og skurð að
prentun lokinni. Lakkið á prentvélinni er vistvænt og er
fáanlegt í silkimöttu, möttu, glansi og háglansi. Allar
þessar lakktegundir skapa fallega áferð á prentgripinn.
Í raun má segja að stór hluti prentvinnslu hjá GuðjónÓ
sé stafrænn. Aðsend hönnuð gögn eru send beint á
stafrænan plötuskrifara (sem býr til prentplöturnar).
Með þessum fullkomnu tækjum getum við unnið þau
verk sem okkur berast hratt og örugglega og þannig
hjálpað viðskiptavinum að standa við skuldbindingar sínar.
UMHVERFISMÁL
GuðjónÓ, vistvæna prentsmiðjan, er fyrsta og eina prentsmiðja
landsins sem merkt getur prentgripi sína með umhverfi smerkinu
Svaninum. Prentsmiðjan fékk Svaninn fyrst árið 2002 og endurnýjun
árið 2008, en ströng skilyrði eru sett fyrir því að fá að taka
upp Svaninn. Stærstur hluti framleiðslu prentsmiðjunnar er á
umhverfi smerktum pappír eða á pappír sem viðurkenndur er af
umhverfi s merkinu Svaninum. Svansmerktur pappír þarf að upp-
fylla ströng skilyrði. Krafa er gerð um að 50% hráefnis séu
endurnýtt og einnig er þess krafi st að öll þau efni sem notuð eru við
pappírsframleiðsluna séu niðurbrjótanleg í nátturunni. Með ákveðnum
aðgerðum í prentsmiðjunni hefur nýtingarhlutfall á pappír hækkað
og góður árangur hefur náðst í að minnka afskurð á pappír. Að auki
gerir Svanurinn kröfu um að öll fl okkun pappírs sé mjög nákvæm.
Þess vegna ætti GuðjónÓ að vera fyrsti valkostur þeirra fyrirtækja sem
vilja að allir þættir rekstursins séu umhverfi svænir.
GuðjónÓ prentsmiðja hefur í áratugi
stutt margs konar menningarstarf-
semi. Þar má nefna tónlistarhátíðir,
myndlistarsköpun og aðrar listir.
Við viljum leggja okkar af mörkum til
að menning nái að vaxa og dafna í
samfélaginu.
Krafan um að fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög
taki upp ábyrga stefnu við innkaup og notkun vara
hefur vaxið á undanförnum árum. Í Staðardagskrá
21, sem mörg sveitarfélög hafa skrifað undir, er ætlast
til að innkaup taki mið af umhverfi nu. Í þessum svo-
kölluðu grænu innkaupum er eitt einfaldasta skrefi ð
að nota umhverfi smerktar vörur, ekki síst pappír og
prentgögn. Prentsmiðjan GuðjónÓ hefur hlotið vottun
hjá Norræna umhverfi smerkinu Svaninum og getur
því umhverfi smerkt allar vörur sínar.
Hjá GuðjónÓ leggjum við mikla áherslu á persónu-
lega þjónustu og komum til móts við allar óskir
viðskiptavina með faglegum metnaði. Við gætum
þess að hvert verkefni hafi einn ábyrgðarmann sem
fylgist með öllum þáttum verksins og geti upplýst
um gang mála á öllum stigum framleiðslunnar. Þeir
starfsmenn sem sjá um samskipti við viðskipta vini
hafa áratugareynslu í faginu og veita fúslega góða
ráðgjöf.
TÆ
KN
IN
Umhverfisvænn valkostur
Prentgripir frá GuðjónÓ eru umhverfismerktir
Persónuleg þjónusta – alla leið
Eina umhverfisvottaða prentsmiðjan
Tækjabúnaður af bestu gerð
VIÐ STYÐJUM
MENNINGU OG
MANNLÍF
ÞJÓNUSTAN
Prentsmiðjan fékk svansvottun árið 2000
Áratuga reynsla segir allt!
Persónuleg þjónusta alla leið!
Göngum hreint til verks!
www.gudjono.is · sími 511 1234
www.gudjono. s