Íþróttablaðið - 01.12.1948, Page 26

Íþróttablaðið - 01.12.1948, Page 26
16 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ riðlum. Evrópumeistarinn Fritze Car- stensen (fædd Nathansen), Danmörku náði bezta undanrásartímanum, 1:06,5 mín., en annars var keppni hvergi veru- lega spennandi nema í 4. riðli, þar sem Ann Curtis varð sjónarmun á undan Gretu Andersen á 1:06,9 gegn 1:07,0 mín. í>á bar það og til tíðinda í 3. riðli, að sigurvegarinn Elisabeth Ahlgren, Svíþjóð fékk lakari tíma en næstu 3, sem á eftir henni voru í riðlinum! Voru úrslit riðils- ins tilkynnt á eftirfarandi hátt (og hafa ekki verið leiðrétt enn): 1. Ahlgren, Svíþjóð, 1:08,7 mín. 2. Harup, Danmörku 1:08,4, 3. McQuade. Ástraliu (aðeins 14 ára) 1:08,5, 4. Tavares, Brazilíu 1:08,6, 5. Nielsen, Bretlandi 1:09,4, 6. Jany, Frakklandi 1:12,1, 7. Duarte, Argentínu 1:14,9 mín. — Hefi ég áður skýrt frá ástæðunum fyrir þessu þótt ósamræmi tímavarða og markdómara hafi aldrei verið eins áberandi eins og i þetta sinn. 1 undanúrslitunum daginn eftir byrj- aði Greta Andersen á því að jafna Olym- píumetið, 1:05,9 min„ og sigraði örugg- lega landa sinn Carstensen, 1:07,5, sem gekk erfiðlega að losa sig við Schumach- er, Hollandi 1:07,7. I síðari riðlinum var ekki eins geyst af stað farið og gat Ann Curtis því sigrað án þess að taka nokkuð verulega á, 1:07,6. Hinsvegar var hörð keppni um næstu 4 sætin. Marie Vaessen varð 2. á 1:08,4, en sænsku stúlkurnar Fredin (sem er sérlega lagleg og vel vaxin) og Ahlgren komu fast á eftir samhliða hinni þekktu dönsku sund- konu, Karen Margarethe Harup, tímarn- ir 1:08,4; 1:08,6 og 1:08,7. Komust þær allar í úrslit þar sem fjórða stúlkan úr fyrri riðlinum, Corridon, USA, hafði að- eins 1:08,9 mín. Þriðja Bandaríkjastúlk- an, hin fagra Brenda Helser, varð síð- ust í síðari riðlinum á 1:10,0 og urðu það mörgum vonbrigði. Mánudaginn 2. ágúst fóru úrslitin fram og urðu mjög spennandi eins og gert hafði verið ráð fyrir. Þarna stóðu þær 8 hæfilega tauga- óstyrkar og biðu eftir skipunarorðunum. 3 danskar, 2 sænskar, 2 hollenzkar og ein bandarísk, sem var höfði hærri en allar hinar. Carstensen var fyrst að vanda og hélt foruztunni fyrri helming leiðarinn- ar. Mér virtist Ann Curtis hafa orðið síðust af stað og synda fyrri helminginn eins og ekkert lægi á. Við 50 metra mark- ið var Andersen búin að ná Carstensen Gréta Andersen, Danmörku, Olympíu- meistari í 100 m. skriösundi og tók nú skarpan endasprett, en Curtis var siðust, 2 •— 3 metrum á eftir. En nú var eins og hún vaknaði af dvala og yrði ljóst hvað í húfi væri, því að á nokkrum sekúndum hafði hún skriðið fram úr öllum keppendum nema Ander- sen. Markið nálgaðist og enn herðir Curtis á sér. Andersen áttar sig á hætt- unni og tekur á öllu sinu og snertir mark- ið 30 cm. á undan hinni ferðmiklu Ann Curtis. Áhorfendur hafa eggjað báðar ó- spart og hylla nú fyrsta danska sigur- vegarann. Hinar eru allar mjög jafnar, en Vaessen tekst að losa sig aðeins við Harup og krækja í 3. verðlaunin. Loks rak Carstensen lestina örstutt á eftir, enda hafði hún eytt allri snerpunni fyrri helming sundsins (til þess að sprengja Curtis?) og var auk þess sögð hafa ver- ið illa fyrir kölluð þennan dag. Greta Andersen er tvítug að aldri og ný af nálinni. Vakti fyrst eftirtekt á Evrópumeistaramótinu í fyrra og hefir verið ósigrandi í 100 — 400 metrum það sem af er þessu ári. Beztu tímar hennar eru 1:05,6 og 5:10,3 mín. í 25 metra laug. Andersen hefir áferðarfallegan og lið- legan stíl og ágætt úthald á endasprett- inum. Hin fræga Ann Curtis er þó enn sterkari á endasprettinum, en er óþarf- lega lengi að koma sér á ferð og t. d. frekar sein í viðbragðinu. Sýndi hún það síðar í boðsundinu að hún getur náð meiri sundhraða en nokkur önnur stúlka í heiminum,þegar keppni og aðstæður leyfa, en keppnisskap hennar er óvenju gott. Og þótt hún fagnaði innilega sigri Andersen og sýndi góðan íþróttaanda býst ég við að hún hafi hugsað sér gott til glóðarinnar í næsta sundi, sem var 400 METRA FRJÁLS AÐFERÐ: Heimsmet: 5:00,1 R. Hveger, Danm. ’lfO Olympsmet: 5:26,4 Mastenbroek, Holl. ’36 1. Ann Curtis, USA ............. 5:17,8 2. Karen M. Harup, Danmörku 5':21,2 3. Cathie Gibson, Bretlandi .... 5:22,5 4. Fernande Caroen, Belgíu .... 5:25,3 5. Brenda Helser, USA .......... 5:26,0 6. Piedaed Tavares, Brazilíu .... 5:29,4 7. Fritze Carstensen, Danmörku 5:29,4 8. Nancy Lees, USA ............. 5:32,9 Það var ekki fyrr en 5. ágúst, sem þetta lengsta kvensund hófst. Urðu undan- rásir þess allsögulegar að því leyti að aðalsigurvonin, Greta Andersen, hafði næstum drukknað á miðri leið. Var hún „illa fyrirkölluð“ eins og það var orð- að, en hóf Þó keppni. En ekki leið á löngu þar til Það kom í ljós að eitthvað var bogið við sund hennar og dróst hún smátt og smátt aftur úr. Skyndilega sökk hún til botns og ef 2 af áhorfendunum (sem voru keppendur á leikunum) hefðu ekki verið eins snarráðir og raun bar vitni, við að bjarga henni uop úr vatn- inu, er ekki að vita hvernig farið hefði Þetta atvik skyggði mjög á spenninginn ; sundinu, þvi Andersen hafði af mörg- um verið talin einna liklegust til sigurs. I fyrsta riðli lenti þeim saman Harup og Curtis og varð sú fyrrnefnda sjónar- mun á undan, tímar 5:31,7 og 5:32,0 min. 1 öðrum riðli náðist mun betri tími. Sigraði hin 17 ára gamla brezka stúlka Cathie Gibson, á bezta undanrásartim- anum, 5:26,9 mín. 2 til 3 metrum á undan þeim Caroen, Carstensen og Lees, sem fengu 5:29,2; 5:29,4 og 5:29,6. Loks var tilkynnt að Brenda Helser og Tavares, Brazilíu hefðu orðið hnifjafnar að marki í 3. og siðasta riðlinum, en tími Brendu var þó gefinn upp 5:30,0, en hinnar 5:30,2! Keppendur voru aðeins 19, en þurftu Þó einnig að synda i 2 milliriðlum fyrir úr- slitin þ. e. a. s. 4 úr hverjum riðli og 4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.