Íþróttablaðið - 01.12.1948, Page 28
18
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Kolbrún Ölafsdóttir, Á.
slitin á tímanum 1:21,2 og skorti Kol-
brúnu Því 4,4 sek. til að ná því marki.
1 2. riðli var keppni allhörð, enda höfðu
2 beztu baksundskonurnar lent I þeim
riðli. Harup hélt foruztunni alla leið í
mark og syntu á nýju Olympsmeti,
1:15,6, en Zimmerman fékk 1:16,8 mín.
1 þriðja riðli synti hin efnilega Davies
frá Ástralíu á 1:16,4 eða einnig undir
fyrra Olympsmetinu, en Novak var rét.t
á eftir, 1:17,3. Loks vann Galliard 4.
riðilinn á 1:18,2 mín.
1 undanúrslitunum kvöldið eftir, komu
yfirburðir Harups enn betur í Ijós. Vann
hún fyrri riðilinn með yfirburðum eftir
óvenju fallegt og stílhreint sund, og setti
enn nýtt Olympíumet, 1:15.5 mín. Novak
varð önnur, 1:17,6, Mellon 3. á 1:18.2 og
Ekris 4. á 1/10 úr sek. betri tíma en
Mellon! — 1 hinum riðlunum urðu úr-
slit þessi: 1. Zimmerman 1:16,8; 2. Davies
1:17,8; 3. Horst 1:18,7 og 4. Yate, Bret-
landi á 1:18,6! eða 1/10 betri tíma en
næsta á undan! En nú komust dómar-
arnir í vandræði, því auk þriggja fyrstu
úr hvorum riðli áttu 2, sem höfðu bezta
tímana að komast í úrslit. Nú hafði sú
5. í fyrri riðlinum 1:18,4 og fór því í
úrslitin í stað Yate, sem hafði þó að
áliti tímavarðanna orðið 3. hvað tíma
snerti í síðari riðlinum.
Að kvöldi næsta dags, 5. ágúst, fóru
úrslitin fram. Voru menn ekki á eitt
sáttir hvernig þau færu, því þótt Harup
hefði til þessa synt' bezt og náð betri
tíma en hinar, var hún nýbúin að
heyja einvigi við Curtis í undanrás 400
m. sundsins og stóð því ver að vígi en
keppinautar hennar. En það var fleira
sem hjálpaði til að torvelda Harup sig-
urinn, því 10 mínútum áður en sundið
skyldi hefjast var hún ókominn til Wem-
bley. Landar hennar voru yfir sig spennt-
ir og taugaæstir því þetta var sama dag
og Andersen hafði orðið að hætta í 400
metrunum. Þeir drógu andann léttar þeg-
ar Harup birtist í baðkápunni fáeinum
mínútum áður en sundið átti að hefjast.
Húrt hafði misst af áætlunarbílnum og
orðið að taka sér ,,taxi“. En nú var hún
ekki fyrr komin ofan í vatnið, en hún
rauk upp aftur og inn í búningsklefann.
Hvað var nú að? Síðar fréttist að
hnappur hefði bilað í sundbolnum og
hún fengið lánaða öryggisnælu í hans
stað. Eftir allt sem á undan var gengið
var ekki að undra þótt a. m. k. Danirnh'
væru taugaóstyrkir og spenntir yfir því
hvernig Harup vegnaði í þessu mikils-
verða úrslitasundi. Skotið reið af og 8
velþjálfaðar sundmeyjar spyrntu sér aft-
urábak út í laugina. 1 fyrstu var lítinn
mun hægt að sjá, en brátt fór Harup
að mjakast fram úr og var greinilega
fyrst eftir 50 metra. Snúningur hennar
var slöngumjúkur og endaspretturinn
sérlega fallegur og hnitmiðaður. Hinar
Karen M. Harup, Danmörku, Olympíu-
meistari í 100 m. baksundi.
7 börðust kröftuglega um næstu sætin,
en nálægt Harup komust þær aldrei. —
Þegar Harup snerti bakkann góðri lengd
sinni á undan Zimmerman kváðu við
mikil fagnaðarlæti, enda voru dönsku
stúlkurnar og þá ekki sízt Harup, vin-
sælustu keppendur Wembley-laugarinn-
ar. Tíminn reyndist vera betri en áður
eða 1:14,4 min. sem var rúmum 2 sek.
betri en gamla Olympíumetið frá 1936.
Það var álit flestra sundsérfræðinga
að Harup og Bandaríkjamaðurinn Stack
hefðu beztu sundtækni eða sundstíl á
leikunum, en Harup hafði það þó fram-
yfir að sigra með yfirburðum. Harup
er Evrópumeistari í 100 m. baksundi og
400 m. frjálsri aðferð og þekktasta og
fjölhæfasta sundkona Dana síðustu árin.
Bezti tími hennar á 100 m. baksundi er
1:14,0 frá því í fyrra.
200 METRA BRINGUSUND:
Heimsmet: 2:lf9,2 N. v. Vliet, Holl. ’lf7
Olympsmet: 3:01,9 H. Maehata, Jap. ’36
1. Nelly van Vliet, Hollandi .... 2:57,2
2. Nancy Lyons, Ástralíu ....... 2:57,7
3. Eva Novak, Ungverjalandi . . 3:00,2
4. Eva Szekely, Ungverjalandi .. 3:02,5
5. Adriana de Groot, ITollandi .. 3:06,2
6. Elisabeth Church, Bretlandi ..* 3:06,2
7. Antonia Hom, Hollandi ....... 3:07,5
8. Jytte Hansen, Danmörku .... 3:08,1 •
Þetta var fyrsta kvennasund leikanna
og hófst fyrsta keppnisdaginn, 30. júlí,
strax á eftir 100 m. frjáls aðferð karla.
Keppendur voru 22 og syntu í 3 riðlum.
Var höfð sama aðferð og í 400 m. sundinu.
þannig að 4 fyrstu úr hverjum riðli
komust í undanúrslit auk 4 með beztu
tímana. Voru möguleikar ísl. stúlknanna,
Önnu Ólafsdóttur og Þórdísar Árnadótt-
ur, á því að komast upp úr riðlunum
því allmiklir. Anna dró 1. braut og harð-
asta riðilinn, því meðal hinna 7 keppenda
hennar voru hvorki meira né minna en
4 „stjörnur“, sem allar komust i úrslit-
in. Anna lét þetta litt á sig fá og reyndi
að hanga í þeim fyrstu 50 metrana. En
þær Lyons, Novak og de Groot, sem
*) Tímaverðir fengu 3:06,1, en hér er
þeim tíma breytt í 3:06,2 samkvæmt þeim
úrskurði yfirmarkdómara, að de Groot
hafi verið á undan Church.