Íþróttablaðið - 01.12.1948, Side 32

Íþróttablaðið - 01.12.1948, Side 32
22 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ Sammy Lee meistari í liáum dýfingum. svo breyttist Þetta nokkuð í úrslitunum. Bruce Harlan er óvenju fríður og vel vaxinn piltur, ljós á brún og brá. Tækni hans er frábær og var hann vel að sigr- inum kominn. DÝFINGAR AF HÁU BORÐI (5-10 m.): 1. Sammy Lee, Bandaríkjunum . . 130,05 2. Bruce Harlan, Bandaríkjunum 122,30 3. Joaquin Capilla, Mexico .... 113,52 4. Lennart Brunnhage, Svíþjóð 108,62 5. Peter Heatley, Bretlandi .... 105,29 6. Thomas Christiansen, Danmörk 105,22 Hér var keppendafjöldi svipaður, en einn Bandaríkjamaðurinn, Anderson for- fallaðist og mætti ekki til leiks. Náði Mexicobúinn þess vegna hinu eftirsótta sæti næst á eftir Bandarikjamönnunum tveimur, sem að þessu sinni var verð- launasæti. Keppnin hófst að morgni 4. ágúst og lauk næsta morgun. Þegar úr- slitin hófust voru Brunnhage og Heatly í 3. og 4. sæti, Capilla í 6. og Christian- sen í 9. (hafði mistekist hrapalega eitt stökk) I úrslitunum breyttist röðin því nokkuð á 3. til 6. manni, en fyrstu 2 voru alltaf öruggir með sigur. Sammy Lee er ættaður frá Filipps- eyjunum, smár vexti en knár. Hann sýndi mjög mikla tækni og fjölbreyttni i dýf- ingum sínum og sigraði örugglega. Lee er læknir að menntun. KONUR DÝFINGAR AF FJAÐURBORÐI 1-3 m. 1. Victoria Draves, Bandaríkj. 108,74 2. Zoe Ann Olsen, Bandarikjunum 108,23 3. Patsy Elsener, Bandarikjunum 101,30 4. Nicole Pellissard, Frakklandi .. 100,38 5. G. Groemer, Austurríki ...... 93,30 6. E. L. Child, Bretlandi ...... 91,63 Þessi keppni hófst 2. ágúst kl. 9 f. h. og lauk næsta morgun. Keppendur voru aðeins 17. — Þótt Bandaríkjameistar- inn Olsen 17 ára, hafi af flestum verið talin sigurvænlegust tókst Draves að halda foruztunni lengst af keppninni. Síðasta stökk Olsen’s tókst hinsvegar svo vel að hún komst uppfyrir Draves, og töldu nú margir (þar á meðal hún sjálf) að sigurinn væri tryggður. En Draves var á öðru máli og náði frá- bæru stökki, sem færði hana aftur að- eins upp fyrir Olsen. Og hvílík von- brigði fyrir Önnu litlu þegar þulurinn tilkynnti úrslitin. Hún tárfelldi fyrst en brosti þó að lokum gegnum tárin þegar verðlaunin voru afhent. DÝFINGAR AF HÁU BORÐI 5-10 m. 1. Victoria Draves, Bandaríkj. . . 68,87 2. Patsy Elsener, Bahdaríkjunum 66,28 3. Birthe Christoffersen, Danm. 66,04 Frá dýfingakeppninni, séö ofan frá. Victoria Draves, milli dýfinga. 4. A. Staudinger, Austurriki .... 64,59 5. Juno Stover, Bandaríkjunum 62,63 6. Nicolle Pellissard, Frakklandi 61,07 Þessi siðasta dýfingakeppni leikanna hófst kl. 9 f. h. 6. ágúst og lauk sama dag kl. 2 e. h. Keppendur voru 15, flestar þær sömu og áður. Háðu þær harða baráttu um sigurinn, eins og tölurnar sýna. Þegar siðasta úrslitastökkið var eftir var hin fallega danska stúlka, Christoffersen, stíghærri en Elsener og réði síðasta stökkið raunverulega úr- slitum milli 3ja fyrstu. Þá kom í Ijós hið mikla öryggi hinna bandarísku, því þær náðu þá báðar sínum beztu stökk- um. Victoria Draves er 23 ára gömul, litil vexti, fríð og sérlega vel vaxin. Hún er írsk í föðurætt, en móðir hennar er ættuð frá Filippseyjum. Draves var mjög vinsæll sigurvegari, enda hjálpaði þar margt til svo sem óviðjafnanlegt öryggi og tækni í sjálfri íþróttinni sam- fara hlýlegri en látlausri framkomu. Elsener er aðeins 17 ára, og því upp- rennandi stjarna á þessu sviði.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.