Íþróttablaðið - 01.12.1948, Side 46

Íþróttablaðið - 01.12.1948, Side 46
36 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ kæruleysis, letinnar og óeiningarinnar sýndu þeir í leik sínum fullkomna á- byrgðartilfinningu. Dugnaður, samein- ing þeirra, festa og öryggi sýndi, að landsliðsnefndarmennirnir liöfðu getað fest í huga þeirra að er til landsleiks- ins kæmi, þá væru þeir ekki að keppa fyrir félög sín, og þvi siður væru þeir komnir á völlinn til að vera trúðar fyrir áhorfendur, heldur væru þeir á vell- inum, eins og formaður landsliðsnefnd- arinnar, Guðjón Einarsson, orðaði það, sem fulltrúar íslands til að verja heiður og sóma þjóðarinnar. Frá knattspyrnulegu sjónarmiði held ég að frammistöðu íslendinganna sé bezt lýst með orðum þjálfarans, Joe Divine eftir leikinn, „Eg er fullkom- komlega ánægður með drengina. Hver þeirra var allan tímann á sinum stað, og gætti sins manns til fullnustu, alveg eins og ég hafði lagt fyrir þá. Sér- hver þeirra sýndi fullkominn baráttu- vilja og sigurvilja allt til enda leiks- ins, og síðustu mínúturnar voru bezti kafli leiksins af íslendinganna hálfu.“ Buchloh sagði eftir leikinn eitthvað á þessa leið: „Eg var svo liissa, að ég á ekki orð til að lýsa undrun minni. Menn, sem fyrir þrem vikum léku eins og þeir hefðu aldrei séð eða heyrt um knattspyrnu, og frekar gengu en hlupu síðustu mínútur leiksins, sýndu núna í dag frábæran leik, og það sem meira er um vert, þeir léku bezt síðustu mínúturnar.“ Sænski dómarinn sagði: „Leikurinn var drengilega leikinn af báðum aðil- um, og mjög auðvelt að dæma hann. Eins og sjá má af þvi sem áður er sagt, mun ég ekki fara út í að lýsa landsleiknum við Finna í einstökum atriðum i þessari grein, því að ég tel að það sé meira virði að vekja at- hygli manna á þeim aðilum, er beinlínis gerðu okkur fært að ná þeim árangri, sem raun ber vitni um, þótt við erfiðar aðstæður og áhugaleysi væri að etja. Störf landsliðsnefndarinnar, landsliðs- þjálfarans og manna þeirra, sem í landsliðsæfingunum voru og eigi livað sízt þeirra, sem að lokum urðu fyrir valinu til að leika leikinn, verða seint metin að verðleikum, því að þeir sigr- uðu eigi aðeins Finnanna, heldur það sem meira var, þeir endurreistu álit og virðingu knattspyrnunnar i landinu og gerðu ungum knattspyrnumönnum fært að geta látið sjá sig með knatt- spyrnuskóna sína og knött án þess að vegfarendur þættust hafa ástæðu til að brosa að þeim eða senda þeim tóninn. Þó finnst mér ég ekki geta endað þessa grein án þess að minnast lítil- lega frá eigin brjósti á landsleikinn frá knattspyrnulegu sjónarmiði. í stuttu máli myndi lýsing mín vera þessi: í landsleiknum mættust tvö ólík lið bæði í framkvæmd leiksins og styrk- leika. Finnarnir með framkvæmd og oinkenni miðevrópuknattspyrnunnar og íslendingarnir með framkvæmd og ein- kenni ensku knattspyrnunnar. Knattspyrna Finnanna byggðist á stuttum, lágum og hröðum spyrnum, sem gengu frá manni til manns upp völlinn. En timinn, sem hver sóknarlota tók, skapaði þriggjabakvarðaleikaðferð íslendinganna nægan tima til að loka markinu, svo að Finnarnir komust aldr- ei í gott færi við íslenzka markið. — Knattmeðferð og leikni hvers einstak- lings í finnska liðinu var áberandi betri en okkar manna- Og mýkt þeirra á vellinum minnti mann óþyrmilega á að þarna væru menn á ferðinni, sem ekki æfðu á malarvelli, heldur grasvelli. Aðferð íslendinganna byggðist aft- ur á móti á því að langar spyrnur voru gefnar fram völlinn, annað hvort á miðframherjana eða útherjana, sem svo skiptu viðstöðulaust um stöður, hvorir vio aðra, eða þá að innherjarn- ir koniu einnig til hjálpar í skipting- um út á jaðra vallarins. Uppbyggingu leiksins önnuðust fram- verðir liðsins, sem voru tvímælalaust heztu menn þess. Fyrsta markið í leiknum skoraði Ríkharður Jónsson (Fram) er 9 mín. voru af síðari hálfleik og það síðara kom einnig upp úr skoti frá honum, eftir að hægra bakverði Finnanna hafði mistekizt spyrna. Var mark þetta al- gert klaufamark. Áberandi í leik þessum var frannni- staða sænska dómarans Nilsson, sem dæmdi með þvílíkri röggsemi, háttvísi og festu að slíkt hefir eigi fyrr sézt hér á vellinum. Ef við knattspyrnu- mennirnir færum inn á mállýzku frjáls- iþróttamannanna við að lýsa frammi- stöðu dómarans væri hún áreiðanlega nýtt vallarmet í knattspyrnudómi. í landsleiknum á móti Finnunum var íslenzka landsliðið skipað eftirtöldum mönnum: Hermann Hermannsson, (Val) mark- vörður, Karl Guðmundsson, (Fram) h. bakvörður, Hafsteinn Guðmundsson (Val) v. bakvörður, Sæmundur Gisla- son (Fram) h. framvörður, Sigurður Ólafsson (Val) miðframvörður, Gunn- laugur Lárusson (Víking), v. framv. Ólafur Hannesson (KR) h- útherji, Ein- ar Halldórsson (Val) h. innh., Sveinn Helgason (Val) miðframherji, Ríkharð- ur Jónsson (Fram) v. innherji og Ell- ert Sölvason (Val) v. útherji. Eins og áður er sagt stóðu allir þessir menn sig með ágætum og í landsleiknum sönnuðu þeir að íslensk- ir knattspyrnumenn eru fullkomlega færir um að mæta þjóðum með svipað- an styrkleika og Norðurlandaþjóðirn- ar i milliríkjakeppni, og ég tala nú ekki um ef ytri aðstæður til knatt- spyrnuiðkana yrðu lagfærðar til hins betra. Þvi gæti ég trúað að ef hið opin- bera vildi á einhvern hátt sýna þakk- læti sitt til ísl. knattspyrnumanna fyr- ir þeirra fyrsta sigur Islands i milli- ríkjakeppni, færi vel á þvi að það geng- ist fyrir þvi að sem fyrst yrði komið upp fullkomnum grasvelli hér i Reykja- vík, og jafnvel að knattspyrnumönnum yrði gefinn kostur á að vinna næsta milliríkjaleik sinn hér heima á grasvelli. Auk landsliosins kepptu Finnarnir tvo leiki hér, annan við úrval úr K. R. og Fram og hinn við úrval úr Val og Víking. Leikir þessir voru báðir vel leiknir á háða bága, fjörugir og mjög skemmtilegir. K. R.-Fram liðið vann sinn leik með 4:1, en Valur-Víkingur meo 2:0. Knattspyrnubúningur í milliríkja- keppni hefir verið staðfestur samkvæmt ósk KSl. Hvit peysa með íslenzka fánan- um í vinstra barmi. Dökkbláar buxur, rauðleitir sokkar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.