Íþróttablaðið - 01.12.1948, Side 50
40
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Efst: Torfi stekkur 3,90. 1 miöiö: Rani-
stad í kringluk. Neðst: Veröl.afhending f.
langst. Frá v.: Ström, Finnbj. Langbakke
Spennandi 1500 m. hlaup.
Norðmennirnir tóku fljótt að sér for-
uztuna og fylgdust að. Var hraðinn í
meðallagi, 800 á 2:09,0, og 1000 m. á
2:41,0 mín. Þegar 300 m. voru eftir hóf
Óskar byrjun á endaspretti en Norð-
mennirnir hertu einnig á sér. Náði Ósk-
ar Veiteberg á beinu brautinni, en And-
resen tókst að forðast sömu örlög þrátt
fyrir hraustlega tilraun Óskars. Pétur
gat vitanlega ekki fylgt hinum þrem. en
bætti þó tíma sinn um 6 til 7 sek. Stig:
Noregur 83, Island 60.
Finnbjörn kemur á óvart í langstökki.
Þrátt fyrir meiðslin frá því um vetur-
inn, tókst Finnbirni að vinna þessa
spennandi keppni og setja nýtt ísl. met
og vallarmet. Náði hann strax foruzt-
unni í 1. umferð (6,94), lengdi sig svo upp
i 7,02 og loks 7,16 í 4. umferð. Milli
hinna þriggja mátti lengst af ekki sjá,
en Halldór tapaði á því hve óviss hann
var á plankanum. Voru flest stökk hans
eins löng eða lengri en hinna, frá tánni.
Langbakke var líka nokkuð óviss á plank-
anum, en býr auðsjáanlega yfir miklu.
Ström er nú aðeins skuggi af sjálfum
sér fyrir stríðið, stökk þá 7,46 og 15,82
m. í þrístökki. Stig: Noregur 88, Island
66.
fsland vann síöustu orustuna.
Það fór eins og fyrri daginn að ísland
vann síðustu orustuna — boðhlaupið. Ás-
mundur náði foruztunni strax á 1. spretti
móti Tangen, sá næsti var jafnari (Finn-
björn og Vade), en Örn og einkum Hauk-
ur unnu af keppniautum sínum, Jo-
hansen og Bloch. Kom ísl. sveitin i mark
4 til 5 metrum á undan þeirri norsku á
hinum frábæra tíma 42,1 sek. sem er
nýtt landssveitar- og vallarmet. Boð-
hlaupið var 5. grein Hauks í keppninni
og 5. sigurinn, sem hann vann fyrir Is-
iand. Var hann lang stighæstur allra
einstaklinga í keppninni, hlaut 18% stig.
Heildarúrslit urðu annars þau að Noreg-
ur vann með 92 stigum gegn 73 og var
keppnin því mun jafnari síðari daginn
Um þessa fyrstu landskeppni okkar i
frjálsum íþróttum er það annars að
segja að hún fór vel fram og þótti mönn-
um hún skemmt.ilegri og betur skipulögð
í hvívetna en önnur frjálsíþróttamót,
sem hér hafa verið haldin. Og þó hefði
hún að skaðlausu mátt ganga hraðar,
en þetta stendur vonandi allt til bóta.
Norðmenn unnu verðskuldaðan sigur,
en við Islendingar fengum lærdóms-
ríka reynslu í þessum málum.
Daginn eftir landskeppnina bauð Bæj-
arstjórn Reykjavíkur norsku íþrótta-
mönnunum í skemmtiferð til Þingvalla,
og var farið austurleiðina til baka og
skoðaðir helztu staðirnir. Sama kvöld
var haldinn dansleikur fyrir Norðmenn-
ina,, en á þriðjudag lögðu þeir blómsveig
á leiði faliinna landa sinna, en norski
sendiherrann og frú hans höfðu boð inni
fyrir þá og nokkra ísl. íþróttaleiðtoga
síðar um daginn. Um kvöldið var hald-
in aukakeppni í nokkrum íþróttagrein-
um, en því miður var veður og þátttaka
með lakara móti, hvað svo sem oili því
síðara. Á miðvikudagskvöldið 30. júní
hélt svo Frjálsíþróttasamband Islands
og framkv.nefndin kveðjusamsæti fyrir
norsku gestina. Konráð Gíslason form.
FRl stjórnaði hófinu og þakkaði norsku
íþróttamönnunum fyrir komuna. Afhenti
hann þeim ísl. fánann og áletraða minn-
ispeninga um keppnina, en Ivar Ram-
stad fékk sérstök verðlaun fyrir bezta
afrek mótsins. Þá afhenti Konráð Olav
Tendeland litaða ljósmynd af Heklu,
sem gjöf frá FRl til norska frjálsiþrótta-
sambandsins. Tendeland þakkaði móttök-
ur og allan aðbúnað með hlýjum orð-
um og mælti nokkur hvatningarorð til
ísl. frjálsíþróttamanna. Afhenti hann FRl
norskan borðfána að gjöf frá norska
frjálsíþróttasambandinu með ósk um á-
framhaldandi góða samvinnu á þessu
sviði. Að síðustu mælti forseti ISl nokk-
ur orð til hinna norsku gesta, en afhenti
síðan formanni FRl og framkv.nefnd
merki ISl i viðurkenningarskyni fyrir
góða framkvæmd landskeppninnar.
Um miðnætti flugu Norðmennirnir
héðan með „Heklu“ og voru kvaddir
með hlýhug og árnaðaróskum ísl. íþrótta-
manna.
J. B.
Framkvæmdanefnd landskeppninnar
var þannig skipuð: Jens Guðbjörnsson,
formaður, Jóhann Bernhard, Guðmund-
ur Sigurjónsson, Brynjólfur Ingólfsson
og Ingólfur Steinsson.