Íþróttablaðið - 01.12.1948, Síða 80
70
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
ÁRSÞIN6 KNATTSPYRNUSAMBANDSINS
Konráð Gíslason, Baldur Möller og Sig-
urður S. Ólafsson.
I sambandi við umræður um önnur
mál voru eftirfarandi tillögur einróma
samþykktar:
1) Ársþing FRl 1948 skorar á stjórn
sambandsins að gera sitt ítrasta til
að bæta úr því vandamáli, sem verð-
launapeningaöflun er orðin, t. d. með
því að láta steypa erlendis ódýra pen-
inga og hafa þá svo til sölu fyrir fé-
lög, ráð og bandalög innan FRÍ. Enn-
fremur skorar þingið á stjórn FRl að
athuga möguleika á öflun ódýrra
verðlaunagripa erlendis.
2) Ársþing FRl 1948 skorar á Bæjar-
stjórn Reykjavíkur að láta fyrirhug-
aða leikvangsgerð í Laugardalnum
ekki dragast lengur en orðið er.
3) Ársþing FRl 1948 lýsir ánægju sinni
yfir þeirri samþykkt síðasta ársþings
ISl að löggilding frjálsíþróttadómara
heyri undir FRÍ, en ekki ISl, — sem
þar með batt endi á óþarfa deilu
um lögboðna verkaskiptingu milli
sambandanna.
4) Ársþing FRl 1948 lýsir ánægju sinni
yfir því að fyrsta landskeppni Islend-
inga í frjálsum Iþróttum hefir verið
háð á þessu ári, og felur sambands-
stjórninni að halda áfram á þessari
braut, þannig að Isl. heyi að minnsta
kosti eina landskeppni í frjálsum í-
þróttum árlega. Þingið álítur að æski-
legt sé að viðhalda sambandinu við
Norðmenn á þessu sviði og einnig
að taka upp viðræður um landskeppni
við Dani í áframhaldi af þeim um-
ræðum, sem fram fóru s.l. ár.
5) Ársþing FRl 1948 lýsir yfir fylgi sínu
við ráðningu landsþjálfara í frjáls-
íþróttum. Felur þingið sambands-
stjórninni að vinna að þessu máli
og sækja um fjárstyrk til Iþrótta-
nefndar ríkisins, fyrir milligöngu ISÍ,
til að hrinda því í framkvæmd.
6) Ársþing FRl 1948 skorar á stjórn sam-
bandsins að herða eftirlit með því að
hinir ýmsu aðilar FRl sendi móta-
og metaskýrslur tímanlega.
7) Ársþing FRl 1948 skorar á alla virka
frjálsíþróttamenn að kaupa og kynna
sér hinar nýútkomnu leikreglur í
frjálsum iþróttum.
8) Ársþing FRl 1948 skorar á stjórn
Annað ársþing Knattspyrnusambands
íslands hófst 13. nóv. s.l. en síðan var
þinginu frestað til 23. nóv. og lauk
því þá.
Jón Sigurðsson. form. K. S. 1.
Formaöur KSÍ, Agnar Kl. Jónsson,
setti þingið, en fundarstjóri var kos-
inn Ólafur Jónsson, form. KRR og rit-
ari Árni Ágústsson, Hafnarfirði.
Á þinginu voru mættir 12 fulltrúar
frá fimm héraðssamböndum, en alls
sambandsins að leita fyrir sér með
útvegun nauðsynlegra íþróttaáhalda.
Að lokum tók hinn nýkjörni formaður
til máls og þakkaði hann traust það,
sem honum hefði verið sýnt. Ennfrem-
ur þakkaði hann fulltrúum góðar og
fjörugar umræður og fráfarandi stjórn
og formanni fyrir ánægjulegt samstarf.
Hin nýja stjórn FRÍ hefir nú skipt
þannig með sér verkum: Formaður: Lár-
us Halldórsson (kosinn á ársþingi). —
Varaformaður: Jóhann Bernhard, Rvík.
Bréfritari: Guðm. Sigurjónsson, Rvík.
Gjaldkeri: Sigurpáll Jónsson, Rvík.
Fundarritari: Sig. S. Ólafsson, Rvik.
(í stað Sig. Sigurjónssonar, sem lét af
störfum nú um áramótin).
höfðu rétt til þess að sitja þingið 17
fulltrúar frá 8 héraðssamböndum.
Á þinginu voru rædd mörg mál, og
var þar m. a. samþykkt áskorun til
Alþingis um að lögleiða knattspyrnu
sem skyldunámsgrein í skólum lands-
ins. Þá var og skorað á Alþingi að sam-
þykkja frumvarp Hermanns Guðmunds-
sonar um slysatryggingu iþróttamanna.
Fyrir þingið voru lagðar tillögur um
tilhögun knattspyrnudómararmála frá
liriggja manna nefnd, er stjórn KSÍ
hafði skipað, en i lienni áttu sæti
Gunnar Akselson, Guðjón Einarsson og
Sigurjón Jónsson. Var tillögum þessum
vísað til stjórnarinnnar og henni falið
að sjá um framkvæmd þeirra. Þá var'
samþ. að landsliðsnefnd skyldi skipuð
þremur mönnum úr Reykjavík, einum
úr Hafnarfirði og einum frá Akranesi.
Einnig var skorað á ISI að endurskoða
áhugamannareglurnar og samræma þær
alþjóðareglum.
Form. KSÍ var kosinn Jón Sigurðs-
son, slökkviliðsstjóri, en Agnar Kl.
Jónsson baðst eindregið undan endur-
kosningu. Meðstjórnendur voru kosn-
ir Árni Ágústsson, Hafnarfirði og Jón
Eiríksson, Reykjavík, i stað Jóns Sig-
urðssonar læknis, sem baðst undan
endurkosningu. Fyrir í stjórninni voru
Björgvin Schram, Reykjavík og Guð-
mundur Sveinbjörnsson, Akranesi.
í varastjórn voru cndurkosnir: Guð-
jón Einarsson og Ragnar Lárusson.
Endurskoðendur voru kosnir: Sigurjón
Jónsson og Ólafur Jónsson.
Kosningu í knattspyrnudómstólinn
hlutu: Brandur Brynjólfsson, Rvik,
Agnar Kl. Jónsson, Rvík og Óðinn S.
Geirdal, Akranesi.
Þakkarbréf hafa forseta ISl borist frá
finnsku knattspyrnumönnunum (landslið
inu) og sænsku knattspyrnumönnunum
(Djurgaarden Idrottsforening) er hingað
komu í sumar. Þakka þeir fyrir góðar
móttökur og viðkynningu og ánægjulega
Islandsför. Vænta þeir góðrar samvinnu
við íslenzka íþróttamenn, og biðja að
bera Þeim beztu íþróttakveðju.