Íþróttablaðið - 01.12.1948, Side 90

Íþróttablaðið - 01.12.1948, Side 90
80 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ gömlu. Lagði hann til að uppkastinu yrði vísað frá nema h-liðnum. Var það samþykkt eftir nokkurar umræður með 40:22. Nú fóru að heyrast raddir um það að bezt væri aö vísa h-liðnum líka í burtu og byrja verkið alveg að nýju. Urðu um þetta miklar og heitar umræður en þeim lauk með því að h-lið var einnig vísað frá með 47:17. Sagði áhugamanna- reglnanefndin þá af sér. Leikreglna- og metanefnd skilaði áliti og mælti m. a. með hinni nýju breyt- ingu á spjótkastsmælingu og ennfremur að sama aðferð yrði einnig höfð við langstökk og þrístökk. Þ. e. a. s. að hin raunverulega lengd kastsins (stökksins) kæmi fram, en ekki að mælt væri horn- rétt frá planka eins og nú er í reglun- um. Þá mælti hún með því að 4. þjóf- start í tugþraut ógilti frekari keppni, og að keppendur mættu ekki styðja hendi á viðbragðslínu, heldur aftan við. Evrópunefnd IAAF mælti meS þvi að næsta Evrópumeistaramót yrði haldið í Brussel í Belgíu 1950 og stæði yfir i 5 daga (karla og kvennakeppni). Þá mælti hún með þeirri uppástungu að árlega yrði haldið þing í Evrópu til þess að ákveða alþjóðamótaskrá næsta árs. Var lagt til að slikt þing yrði næst haldið í Paris í nóvember og þar yrði ákveðin öll meiriháttar alþjóðamót og millirikjakeppnir. Loks var lagt til að Evrópulöndin héldu meistaramót sín á sama tíma. Samkv. tillögum kvennanefndarinnar var samþykkt: a) að semja sérstaka stigatöflu fyrir konur. b) að bæta fimmtarþraut (kúlu, hást., 200 m., 80 m. grind og langstökki) við dagskrá Evrópumeistaramótsins og Ol- ympíuleikanna. c) að læknisvottorð um kynferði yrði að fylgja þátttökuumsókn í EM og OL. d) að bæta 800 m. hlaupi við dagskrá EM 1950 og e. t. v. við Olympíuleikana 1952, ef það reyndist vel þangað til. e) láta fara fram athugun á því hvort kvennaspjótið væri ekki of þungt. Nefndin, sem kosin var til athugunar á nýrri stigatöflu hafði ekki að fullu lokið verkinu, en kvaðst mundu hraða því. Samþykkt var að halda næsta al- þjóðaþing í Brussel í sambandi við næsta Evrópurpeistaramót. BANDARÍKIN GEGN BREZKA IIEIMSVELDINU. Frjálsíþróttakeppni í White-City 12. ág. 7. keppni þessara aðila fór fram á White City-vellinum í London 12. ágúst 1948. Fyrsta keppnin, 1920, hafði orðið jafntefli, en síðan höfðu Bandaríkja- menn alltaf farið með sigur af hólmi og gerðu það einnig að þessu sinni. — Keppt var í 15 greinum og hlutu Banda- ríkjamenn 11% vinning, en Bretar 3%, svo að hér var um ójafna keppni að ræða. Eg hafði hugsað gott til glóðarinnar að sjá þarna flesta beztu íþróttamepn heimsins leiða saman hesta sína, en því miður varð ég fyrir vonbrigðum yfir keppninni. Fyrirkomulagið var nefnilega svo frumlegt, að helmingur keppninnar voru allskonar boðhlaup, flest óþekkt á alþjóðamótum, svo sem 4x800 yards hindrunarboðhlaup! Hinar sigildu grein- ar svo sem 100, 200, 400, 800, 1500 og míluhlaup fyrirfundust ekki í dagskránni en í þeirra stað voru (auk boðhlaupanna) 120 yards grindahlaup, 80 m. grinda- hlaup kvenna (utan stigakeppninnar) og 3ja mílna sveitahlaup! Loks var þó keppt í öllum köstum og stökkum nema þrí- stökki. Eins og við var að búast báru Bandaríkjamenn mjög af í köstunum og stangarstökki, en í hástökki og lang- stökki voru þjóðirnar svipaðar. Vakti það athygli að Olympíusigurvegarinn Winter frá Ástralíu, sem keppti fyrir brezka heimsveldið, skyldi endurtaka sig- ur sinn yfir Bandarikjamönnum. Stökk hann 1,98 m. en þeir 1,96 m. I 120 yards grindahlaupi sigraði Olym- píusigurvegarinn Porter með yfirburð- um á 14,0 sek. Scott varð aftur 2. á 14,3 og Dixon 3. á 14,4 mín. Hinn vin- sæli og stílfallegi gamli grindahlaup- ari, Donald Finley, varð 5. á 14,9 sek. og virtist alveg hafa náð sér eftir fallið á Olympíuleikunum. 1 IfXllO yards boðhlaupi urðu þau ó- væntu úrslit, að Brezka heimsveldið (Corquodale, Bartram, Treloar, Archer) sigraði Bandaríkin (Ewell, Wright, Dill- ard og Patton) með 41,8 sek. gegn 42,1 sek. Var auðséð að Bandaríkjamennirn- ir tóku hlaupið ekki alvarlega. T. d. fór Ewell svo hægt af stað að Corqu- dale vann af honum 4 til 5 m., en síðan stoppuðu þeir Ewell og Wright í skipt- ingunni (virtust vera að sýna hvar þeir skiptu!) og þar með komst brezka sveit- in strax langt á undan. Brezka íþrótta- blaðið „Sporting Life“ gat þess líka dag- inn eftir að Bandaríkjamennirnir hefðu hlaupið eins og Þeir væru í sumarleyfi. lfXlflfO yards boðhlaupið var hinsvegar talsvert spennandi og fyrsti spretturinn hnifjafn. Síðan fóru Bandaríkjamennirn- ir að vinna á og fékk Whitfield á síðasta sprettinum um 10 m. forskot móti Mc Kenley, sem reyndist alltof mikið fyrir heimsmethafann þótt hann drægi greini- lega á. Urslit: 1. Bandaríkin (Harnden, Bourland, Cochran, Whitfield) 3:13,4 m. 2. Br. heimsveldið (Rohden, Farlane, Shore, Kenley) 3:14,2 mín I 80 m. grindahlaupi kvenna beið Maureen Gardner ósigur fyrir Shirley Strickland, en tími beggja var sá sami 11,3 sek. En kvennakeppnin reiknaðist ekki til stiga. Hertoginn af Edinborg, eiginmaður Elísabetar prinsessu, afhenti verðlaun mótsins og m. a. fékk McKenley sérstök verðlaun fyrir hið nýstaðfesta heimsmet á 400 m. (45,9 sek.). Áhorfendur voru í færra lagi um 20 þús., og virtust flest- ir taka eftir þeim afturkipp, sem keppnin bar vott um. NORÐURLANDARÁÐSTEFNAN í STOKKHÓLMI. 10. og 11. des. s. 1. héldu fulltrúar allra Norðurlanda frjálsíþróttasambandanna ráðstefnu í Stokkhólmi. Voru þar teknar mikilsverðar ákvarðanir varðandi sam- eiginleg áhugamál Norðurlandanna svo sem keppni við Bandaríkin, Norrænu keppnina (Svíþjóð gegn hinum Norðurl.) Norðurlandameistaramót I tugþraut og maraþonhlaupi o. fl.. Eftirfarandi var m. a. samþykkt á ráðstefnunni. a) Að í keppni Bandaríkjanna gegn Norðurlöndunum í Osló 27. - 29. júlí 1949 verði auk hinna olympísku greina keppt í 4x1500 m. boðhlaupi^ og 3 keppendur keppi frá hvorum aðila í hverri grein nema boðhlaupinu, ein sveit. b) Bo Ekelund, Svíþjóð, heiðursævi- forseti Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins var falið að stjórna vali Norðurlanda- liðsins, en í því munu verða um 60 manns. Ber sérhverju landi að senda honum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.