Íþróttablaðið - 01.12.1948, Qupperneq 93
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
83
Eins og getið er um hér að framan,
hafa íþróttaflokkar úr Ármanni ■—- bæði
konur og karlar — farið margir sýn-
ingarferðir til annarra landa á und-
anförnum árum. Var sú fyrsta farin
til Danmerkur árið 1926 og sú síðasta
til Finnlands 1947. En alls hafa Ár-
menningar farið 9 slíkar ferðir til Norð-
urlanda og Þýzkalands og lialdið sam-
tals milli 90 og 100 sýningar. Kven-
flokkarnir hafa sýnt leikfimi en karl-
flokkar glímu og leikfimi. Þar að auki
hafa svo íþróttaflokkar félagsins ferð-
ast viðsvegar um landið og sýnt iþrótt-
ir á 65 stöðum. Það munu fáir gera sér
Ijóst, fyrir utan þá, sem beinlínis taka
þátt í slíkum förum, live mikið starf
liggur á bak við þær. Þrotlaus vinna
svo vikum og mánuðum skiptir er und-
anfari þessara ferða, fyrst og fremst
við þjálfun íþróttamannanna svo og
allan undirbúning bæði heima fyrir og
á sýningarstöðum. Hjá Ármanni hefir
þetta starf aðallega hvílt á tveimur
mönnum, þeim Jóni Þorsteinssyni í-
þróttakennara og' Jens Guðbjörnssyni
formanni félagsins. Þessi ferðalög Ár
manns með íþróttaflokka, bæði utan
lands og innan hafa haft ómetanlega
þýðingu til að glæða áhuga manna á
íþróttum almennt og auk þess sem
utanfarirnar hafa verið góð kynning á
islenzku iþróttalífi.
Eg átti nýlega tal við formann fé-
lagsins og talið barst að framtíðinni.
Mér skildist á honum að stærsta á-
hugamál Ármanns væri að koma sem
allra fyrst upp íþróttahúsi og félags-
heimili hér i bænum. Hefir félagið sótt
um lóð undir slíka byggingu, og þegar
lóðin er fengin trúi ég ekki öðru en
að Jens hafi einhver ráð með að sjá
um það, sem á vantar, því að hann virð-
ist hafa ráð undir hverju rifi, a. m. k.
þegar Ármann á í hlut. Jens hefir nú
verið formaður Ármanns í yfir 20 ár og
jafnframt lífið og sálin í öllum störf-
um þess. Eg get ekki annað en dáðst
að þeirri fórnfýsi og þeim óþrjótandi
áhuga, sem hann hefir sýnt Ármanni
og jafnframt íslenzkum iþróttamálum
á þessu tímabili. Öllum sinum fristund-
um liefir hann fórnað í þágu iþrótt-
anna um aldarfjórðungsskeið án nokk-
urs endurgjalds ■— nema ánægjunnar
af því að vera gefandi en ekki þiggj-
andi. Og þau laun eru vafalaust far-
sælli þegar til lengdar lætur, heldur
en hin, sem mölur og ryð fá grandað.
Eg vil nota þetta tækifæri til að þakka
— fyrir hönd allra Ármenninga —
Jens Guðbjörnssyni fyrir hans mikla
og óeigingjarna starf í þágu félagsins.
Glímufélagið Ármann liefir nú um
1200 félagsmenn, og eins og að likum
lætur, mun þurfa allstórt kennaralið
til að sjá þeim mönnum — konum og
körlum —• fyrir kennslu, sem þess
Jens Guðbjörnsson form. Ármanns
síöastliðin 22 ár.
óska, enda hefir félagið nú tylft kenn-
ara á að skipa. Eru það þeir: Þorgils
Guðmundsson (glima), Hannes Ingi-
bergsson (fimleikar karla), Guðrún
Nielsen (fimleikar kvenna), Guðrún
Norðdahl (fimleikar telpna), Sigurður
Norðdahl (handknattleikur karla) Stef-
án Kristjánsson (handknattl. og skíða-
íþróttir), Einar Ingvarsson (handknatt-
leikur kvenna), Þorsteinn Hjálmarsson
(sund og sundknattleikur) Gucm. Þór-
arinsson (frjálsar íþróttir), Lúðvík
Ziemsen (róður), Jóel B. Jakobsson og
Þorkell Magnússon (hnefaleikar).
í stjórn félagsins eiga sæti: Jens Guð-
hjörnsson, form., Sigurður Norðdahl,
varaform., Tómas Þorvarðsson gjald-
keri, Gunnl. J. Briem féhirðir, Inga
Árnadóttir ritari, Sigrún Stefánsdótt-
ir bréfritari, Baldur Möller álialdav.
og ennfremur Þorsteinn Bjarnason for-
maður skíðadeildar og Loftur Bjarna-
son form. róðrardeildar.
Að endingu vil ég þakka Glimufélag-
inu Ármanni vel unnin störf á undan-
förnum 60 árum og óska félaginu giftu-
drjúgrar og starfssamrar framtiðar.
Konráð Gíslason.
HANDKNATTLEIKSMEISTARAMÓT
REYKJAVÍKUR, INNANHÚSS.
fór fram í íþróttahúsi IBR við Háloga-
land í nóvember og desember.
1 meistaraflokki karla urðu 3 félög,
Ármann, Fram og Valur, jöfn að stigum
(6 stig) og urðu að keppa aftur innbyrð-
is. Skildu þau enn jöfn og urðu því að
keppa saman í þriðja sinn. Vann Ármann
þá Val með 7:4 og Fram með 8:5, en Val-
ur vann Fram með 8:5.
Víkingur varð nr. 4 með 4 stig og KR
nr. 5 með 2 stig.
Varð Ármann þar með handknattleiks-
meistari Reykjavíkur 1948, og hlaut
Langvadsstyttuna, sem um var keppt
öðru sinni.
1 meistaraflokki kvenna vann Ármann
Fram eftir framlengdan leik með 2:1.
1 1. fl. karla sigraði Fram með 6 stig-
um, IR og Valur fengu 5, Ármann 3 og
Víkingur 1.
1 2. fl. karla vann Víkingur með 9
stigum. 2. — 3. urðu IR og Valur 7 stig,
4. KR. 5 stig 6. Ármann 2 og 7. Fram 0.
I 3. fl. karla sigraði KR Val með 4:3 í
umkeppni um 1. sætið . 3. varð IR 5
stig 4. Ármann og Fram 4. stig og 6.
Vikingur 1 stig.
OLYMPlUSIGURVEGARAR
I FIMLEIKUM TIL ÍSLANDS.
Á aðalfundi Ármanns tilkynnti Jens
Guðbjörnsson, form. félagsins, að næsta
vor ætti Ármann von á finnskum fim-
leikaflokki, þeim sama og sigraði á
Olympiuleikunum í sumar. Hugsa ísl.
iþróttamenn gott til komu þessa flokks
því ekki veitir af að hleypa einhverju
fjöri í þessa fögru og sjálfsögðu undir-
stöðuíþrótt.