Íþróttablaðið - 01.12.1948, Side 94

Íþróttablaðið - 01.12.1948, Side 94
84 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ I fáum orðum r- i Helgi H. Eiríksson forseti Golfsamb. ísl. LANDSKEPPNI í GOLFI 1948 fór fram í Reykjavík 11. — 13. júlí ís- landsmeistari varð Jóhannes Helgason, Rvík, lék 72 holur með 300 höggum. Þessir urðu efstir: 1. Jóhannes Helgason, Reykjavík .. 300 2. Jakob Hafstein, Reykjavík ...... 308 3. Ewald Berndsen, Reykjavík .... 313 4. Helgi Eiríksson, Reykjavík...... 314 5. Þorvaldur Ásgeirsson, Reykjavik 322 6. Björn Pétursson, Reykjavík .... 332 7. Sveinn Ársælsson, Vestm.eyj. .. 335 Meistari í fyrra var Ewald Berndsen með 310 höggum. REYKJAVlKURMÓT I GOLFI fór fram um mánaðamótin ágúst og september. Reykjavíkurmeistari varð Ewald Berndsen. Næstur varð Islands- meistarinn Jóhannes Helgason. GOLFÞING ISLANDS var háð í Reykjavík 10. júlí s.l. daginn fyrir landskeppnina. Auk ársskýrslu sambandsstjórnar, reikninga og fjárhagsáætlunar, var sam- þykkt að skipa lands-forgjafanefnd og ------------------------------ sambandsstjórn falið að mynda hana. Þá var rætt um staði fyrir fleiri golfvelli og einkum stað fyrir 18 holu völl, svo og um útvegn golfkennara, var þeim mál- um vísað til sambandsstjórnar til frek- ari aðgerða. 1 sambandsstjórn voru kosnir Helgi H. Eiríksson forseti, og Georg Gíslason (Ve) endurkosnir og Jóhannes Helga- son (R) og Jóhann Þorkelsson (Ak) i stað Halldórs Hansen og Vernharðar Sveinssonar, sem báðust undan endur- kosningu. Fulltrúar á ársþing ÍSl voru kosnir Kristján Skagfjörð og Gísli Ólafsson, læknir. FYRSTA SKILMINGAMÓT Á ÍSLANDI. I des. fór fram fyrsta skilmingamót, sem haldið hefir verið hér á landi. Var mótið haldið á vegum skilmingarfélags Reykjavíkur, sem stofnað var s.l. sum- ar ai Agli Halldórsyni og 15 nemendum hans. Eftir að undankeppni hafði farið fram kepptu þessir 5 í úrslitum: Sig. Árna- son, Kristján Guðmundsson, Runólfur Halldórsson, Sigurbjörn Hávarðarson og Guðmundur Pálsson. Fóru leikar svo að Sigurbjörn og Guðmundur urðu jafnir og urðu þvi að keppa á ný til úrslita. Bar Guðmundur þá sigur af hólmi eftir harða og spennandi keppni og hlaut þar með verðlaunagrip þann — líkan af skylmingarmanni — sem keppt var um og vinnst til eignar 3svar í röð eða 5 sinnum alls. Mótið fór fram i Iþrótta- húsi Háskólans. Ákveðið er að félagið efni til annars móts síðar i vetur. Félag- ar eru nú um 40. IÞRÓTTABLAÐIÐ vill nota tækifærið til þess að þakka þeim mönnum sem hafa lánað því myndir á liðnu ári. Ber þar sérstaklega að nefna þá Sigurð Norðdahl, Ólaf K. Magnússon, Pétur Thomsen, Friðrik Hjaltason, Ragn- ar Vignir, Einar B. Pálsson, Jónas Hall- dórsson og Guðna Þórðarson. KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRÐ 65 ÁRA. Kristján Ó. Skagfjörð stórkaupmaður og framkvæmdastjóri Ferðafélags Islands og Skíðafélags Reykjavíkur, varð 65 ára 11. október s.l. Þrátt fyrir umsvifamikil kaupsýslu- störf hefir Kristján lagt mikla alúð við félagsstörf, ferðamennsku og íþróttir. Hefir hann verið einn af áhugasömustu og duglegustu félögum í Ferðafélaginu og Skíðafélaginu allt frá stofnun beggja félaganna, enda orðinn samgróinn fjöll- um og firnindum, jöklum og jötunheim- um. Kristján er gott dæmi um þá menn, sem halda uppi merkjum íþrótta og ferðalaga fram á „efri ár“, og ber því aldurinn svo vel að undrun sætir. Iþróttablaðið færir þessum drenglund- aða ferðaviking beztu árnaðaróskir. SKAUTAFÉL. REYKJAVlKUR 10 ÁRA Um mánaðamótin okt.-nóv. s.l. varð Skautafélag Reykjavíkur 10 ára. Ákvað stjórn þess í því tilefni að halda skauta- landsmót í lok janúar 1949 í samráði við stjórn ISÍ. Verður þá keppt í 500, 1500 og 5000 m. skautahraðhlaupi. Enn- fremur hefir félagið í hyggju að halda happdrætti til ágóða fyrir væntanlega skautahöll. Formaður Skautafélagsins er frú Katrín Viðar. í tilefni af 40 ára afmæli Knattspyrnu- félagsins Víkings hefir ISl sæmt félagið heiðursskildi Isl og ennfremur Umf. Stokkseyrar, sem nýlega hélt hátiðlegt 40 ára afmæli sitt.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.