Orð og tunga - 2020, Page 23
Þóra Björk Hjartardóttir: Orðið hvað sem orðræðuögn 11
beint að orði sem hann hefur gleymt í bili, hann muni ekki hvað þetta
voru margir, þ.e. hrein orðaleit, heldur sé hann ekki alveg viss í sinni
sök um fjöldann. Hann sé því fremur að leita að réttu tölunni, þeirri
sem hann telur að sé sennileg en er þó ekki viss um og gefi það til
kynna með ögninni hvað og treysti svo þá ákvörðun sína með því að
bæta við orðinu örugglega.
Slíkan fyrirvara um fjölda sem látinn er í ljós með ögninni hvað má
skýrt greina í eftirfarandi dæmi þar sem mælandi bætir einnig við
orðunum held ég aftan við tímann sem hann tilgreinir.
(6) Þriðja kryddið: ÍSTAL 0111204
01 A: Asíuhofið er miklu betra (.) annars féllu þeir á prófi sem ég lærði
02 á Holiday Inn að á þessum kínversku stöðum þeir nota þriðja
03 kryddið ótæpilega
04 B: m
05 A: alltaf að (.) segja hvernig maður á að tékka á því ef þú færð súpu
06 B: já
07 A: ((tónlist)) þá geturðu tékkað á þriðja kryddinu með því að þú
08 hrærir svona (x)
09 [...]
→ 10 A: ég tékkaði þetta ég fór með Jóa á Asíuhofið núna (.) hvað
11 síðasta laugardag held ég ((hóstar)) og tékkaði þetta og þetta
12 passaði alveg sko
13 C: m
14 A: það fer svona nokkra millimetra til baka
15 C: m
Hér er rætt um kínversk veitingahús og A segir félögum sínum frá
því að þau mörg hver drýgi súpur með þriðja kryddinu og hvernig
komast megi að því hvort svo sé gert (einni langri lotu er hér sleppt
úr samtalinu þar sem hann lýsir þessu ítarlega, sýnt með […]). Síðan
greinir A frá veitingahúsaferð sinni nýlega þar sem hann hafi at
hug að þetta. Hann þagnar aðeins eins og hann sé að rifja upp með
sér hvaða dag það hafi verið, skýtur þá inn hvað á undan deginum
sem hann svo nefnir sem sennilegan (línur 10 og 11) og bætir síðan
útdráttarorðunum held ég aftan við tímasetninguna (lína 11) eins og til
að styrkja að hann kunni að hafa rangt fyrir sér um réttan dag.
Ögnin hvað er þá merki um fyrirvara mælandans um þann tiltekna
dag sem hann nefnir fremur en hún gefi til kynna hreina orðaleit sem
ljúki með því að hið rétta orð finnist. Ögnin er þá eins konar varnagli
um að ekki sé ranghermt.
Í framangreindum dæmum, (5) og (6), eru ýmis hikmerki á undan
ögninni hvað en í mörgum öðrum dæmum af þessum toga eru ekki
tunga_22.indb 11 22.06.2020 14:03:49