Orð og tunga - 2020, Page 69
Einar Sigurðsson og Heimir Viðarsson: Um líka í fornu máli 57
með ástands sögnum í nútímamáli í dæmum eins og Ég er ekki að skilja
þetta, sjá Krist ínu M. Jóhannsdóttur 2015 og Theódóru A. Torfadóttur
2017)? Við veltum þessum spurningum fyrir okkur hér fyrir neðan.
Þórhallur Eyþórsson og Jóhanna Barðdal (2005) skoða samband
stýrisagna og samhverfra sagna. Þrátt fyrir að falla í geð sé samhverf
sögn (þar sem þágufallsliðurinn, rétt eins og nefnifallsliðurinn, getur
verið frumlag) benda Þórhallur og Jóhanna á að eingöngu setningin í
(30b), en ekki (30a), sé tæk. Í báðum setningum er stýrisögnin reyna —
í adæminu samsvarar ósagða frumlagið FOR þágufallslið en nefni
fallslið í bdæminu (dómarnir í (30) eru Þórhalls og Jóhönnu).
(30) a. *Ég reyndi að FOR(þgf.) falla þessar konur(nf.) í geð.
b. Ég reyndi að FOR(nf.) falla þessum konum(þgf.) í geð.
(Þórhallur Eyþórsson og Jóhanna Barðdal 2005:851)
Þórhallur og Jóhanna halda því fram að stýrisögnin reyna dragi fram
merkingu sambærilega við please í ensku og því sé (30a) ótæk setn
ing þar eð falla í geð hefur þar merkingu sambærilega við like í nú
tíma ensku og sú merking samræmist illa sögninni reyna.15 Það er með
öðrum orðum hægt að reyna að þóknast eða gera einhverjum til geðs
en síður hægt að reyna að (láta sér) falla eitthvað í geð.
Hins vegar hlýtur það að vera frumskilyrði að viðkomandi rök
lið ur, hvort heldur sem er þágufalls eða nefnifallsliðurinn, geti yfir
höf uð færst í frumlagssæti, svo sem í öðrum setningum en stýri nafn
háttum. Þannig getur notkun reyna ekki þröngvað fram merk ing una
‘gera til geðs, þóknast’ með sögninni líka í nútímamáli þar eð nefni
fallsliður hennar í t.d. aðalsetningum getur ekki færst í frumlagssæti.
Eftirfarandi dæmi er því einfaldlega ótækt.
(31) * Ég reyni alltaf að FOR(nf.) líka ókunnugum(þgf.).
Við teljum því að skiptisagnareðli líka í fornu máli hafi verið forsenda
fyrir því að hún hafi yfirleitt getað birst í eða haft þá orsakarmerkingu
sem rætt var um hér að ofan (sbr. dæmi (29)).
Ýmislegt hefur verið ritað um setningafræði samhverfra og ósam
hverfra sagna sem veitir nánari innsýn í eðli breytileikans og hvernig
15 Um þetta segja Þórhallur og Jóhanna (2005:851): „The reason [30b] is unacceptable
in Icelandic is that the matrix verb reyna ‘try’, with its strong semantic component
of intentionality, in fact forces a ‘please’reading on its controlled infinitive and
excludes the ‘like’reading.“ Sjá einnig umfjöllun um mögulegan merkingarmun
með samhverfum sögnum hjá Jóhönnu Barðdal (2001).
tunga_22.indb 57 22.06.2020 14:03:51