Orð og tunga - 2020, Síða 133

Orð og tunga - 2020, Síða 133
Eiríkur Rögnvaldsson: clarin­miðstöð á Árnastofnun 121 3 Gögn í CLARIN ERIC Áður en gögn eru skráð í miðlægan gagnagrunn CLARIN ERIC þarf í fyrsta lagi að útbúa lýsigögn þar sem innihaldi gagnanna er lýst og upplýsingar gefnar um ýmis atriði sem þau varða – höfunda, tungu­ mál, gagnasnið, notkunarskilmála o.s.frv. Þessi lýsigögn þurfa að vera á samræmdu sniði til að auðvelda notkun þeirra og leit í þeim. CLARIN ERIC hefur útbúið sniðmát fyrir lýsigögn til að leiðbeina notendum um hvaða upplýsingar þurfi að fylgja gögnunum. Í öðru lagi þarf að ákveða notkunarskilmála gagnanna – hvort þau eru öllum opin og aðgengileg án takmarkana, eða hvort einhverjar tak­ markanir eru á aðgengi og notkun, og þá hverjar. Það er t.d. algengt að óheimilt sé að nýta gögn í hagnaðarskyni eða breyta þeim á einhvern hátt. Til eru ýmsir staðlaðir leyfisskilmálar sem hægt er að velja á milli, t.d. svonefnd Creative Commons­leyfi (https://creativecommons. org/), en einnig er hægt að gera gögn aðgengileg með sérsniðnum leyfum. Í þriðja lagi getur þurft að breyta gagnasniðinu. Ýmis samræmd snið hafa verið sett fram fyrir mismunandi tegundir mállegra gagna – textasöfn, orðasöfn, handrit, uppskriftir hljóðskráa o.s.frv. Þar má ekki síst nefna margvísleg snið frá Text Encoding Initiative (https://tei­c. org/). Æskilegt er að gögn séu á einhverju slíku þekktu sniði eftir því sem kostur er, en lágmarkskrafa er að sniði gagnanna sé nákvæmlega lýst þannig að auðvelt sé fyrir notendur að átta sig á því. Í fjórða lagi þarf að gera gögnin aðgengileg, ásamt lýsigögnum. Það er hægt að gera á ýmsan hátt. Að sumum gögnum er eingöngu leitaraðgangur gegnum ákveðið leitarviðmót. Notendur geta þá leitað að orðum og orðasamböndum en það er misjafnt eftir gagna­ sniði og leitarviðmóti hversu nákvæm leitin getur verið, og eftir hvaða atriðum er hægt að leita. Í öðrum tilvikum er hægt að sækja gögnin í heild, stundum með ákveðnum skilyrðum sem kveðið er á um í leyfisskilmálum sem þarf að samþykkja áður en gögnin eru sótt. Miðlægt tölvukerfi CLARIN ERIC skannar reglulega allar lýsi­ gagna skrár sem vistaðar eru á öllum CLARIN­miðstöðvum. Upp lýs­ ingar úr þessum skrám fara inn í miðlægan gagnagrunn, sýndarsafn mál fanga (e. Virtual Language Observatory, https://vlo.clarin.eu/) og þar er hægt í einni leit að leita í lýsigögnum meira en milljón málfanga um alla Evrópu. Öllum gögnum sem eru lögð inn til einhverrar CLARIN­ miðstöðvar er gefið varanlegt auðkenni (e. Persistent Identifier, PID). tunga_22.indb 121 22.06.2020 14:03:54
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154

x

Orð og tunga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.