Orð og tunga - 2020, Page 135
Eiríkur Rögnvaldsson: clarinmiðstöð á Árnastofnun 123
fræðingur í fullu starfi. Meginverkefni miðstöðvarinnar hafa verið
tvö: Annars vegar þátttaka í samstarfi CLARIN ERIC, og hins vegar
upp bygging varðveislusafns (e. repository) sem komst í gagnið síðla
árs (https://repository.clarin.is/). CLARINmiðstöðin hefur einnig
ver ið skráð sem lýsigagnamiðstöð (e. CLARIN CCentre).
Í júní 2019 voru ný lög um samtök evrópskra rannsóknarinnviða
samþykkt á Alþingi. Í framhaldi af því ákvað mennta og menningar
málaráðherra snemma árs 2020 að Ísland sækti um fulla aðild að
CLARIN ERIC. Umsóknin var samþykkt í lok febrúar og Ísland er
full gild ur aðili að CLARIN ERIC frá 1. febrúar 2020 en gengið var frá
undir ritun aðildarsamnings 10. mars. CLARINmiðstöðin, sem hafði
verið í húsnæði Árnastofnunar á Laugavegi 13, er nú flutt í Þingholts
stræti 29 þar sem máltæknihópur Árnastofnunar hefur aðsetur.
5 Starfsemin fram undan
Þótt megintilgangurinn með stofnun CLARIN ERIC hafi verið að
styðja rannsóknir í hug og félagsvísindum nýtast þau gögn sem
komið hefur verið upp á ýmsum öðrum sviðum, ekki síst í mál
tækni sem er í örum vexti víðast hvar. Eins og áður segir er aðild
Íslands að CLARIN ERIC fjármögnuð af máltækniáætlun stjórn
valda og í samningum Almannaróms f.h. ríkisins við SÍM – sam starf
um íslenska mál tækni, sem vinnur að framkvæmd mál tækni áætl
unarinnar, eru ákvæði um að allar afurðir mál tækni verkefnisins,
bæði gögn og hugbúnaður, verði lagðar inn í varð veislu safn ís
lensku CLARINmiðstöðvarinnar.
Þetta er grundvallaratriði. Ein meginforsenda máltækni áætlunar
innar er að afurðir hennar verði öllum aðgengilegar og ókeypis,
þann ig að fyrirtæki og stofnanir sem vilja nýta þær við þróun mál
tæknibúnaðar geti gengið að þeim sér að kostnaðarlausu. Því er mjög
mikilvægt að hægt sé að ganga að þeim á einum stað, ítarleg lýsing á
þeim liggi fyrir, og þær séu á þekktu og vel skilgreindu sniði. Innlögn
í CLARINmiðstöðina tryggir þetta allt saman.
Fyrstu afurðum máltækniverkefnisins hefur þegar verið skilað og
þær skráðar í safnið. Þar geta CLARINnotendur hvar sem er fundið þær
gegn um áðurnefnt sýndarsafn málfanga, og sótt þær þangað. Skrán ing
gagna Árnastofnunar í varðveislusafnið er einnig hafin og verð ur unnið
að henni á næstunni. Að því loknu verður farið að huga að skrán ingu
gagna annarra þátttakenda í íslenska landshópnum í varð veislu safnið.
tunga_22.indb 123 22.06.2020 14:03:54