Íþróttablaðið - 01.02.1983, Page 14
miklu máli skiptir að vel takist til
þegar undirbúningur liðsins er
jafnmikill og raun ber vitni. Út-
koma íslenska landsliðsins úr
síðustu B-heimsmeistarakeppni
olli miklum vonbrigðum og
varð álitshnekkur fyrir íslenskan
handknattleik út á við. Slök út-
koma að þessu sinni yrði mikið
reiðarslag og myndi hafa slæm
áhrif á þróun handknattleiks-
íþróttarinnar á íslandi. Góður
árangur myndi að sjálfsögðu hafa
gagnstæð áhrif og verða hand-
knattleiknum mikil lyftistöng.
Undirbúningur íslenska lands-
liðsins hófst strax að loknu síð-
asta keppnistímabili og stóð
meira og minna yfir fyrri hluta
sumars og fram á mitt sumar en
þá var farið í 11 daga keppnisferð
til Júgóslavíu og leikið þar gegn
mörgum af sterkustu þjóðum
heims. Ekki unnust margir sigrar
en liðið lék þó alloft mjög góðan
handknattleik, sérstaklega gegn
Svisslendingum og Pólverjum.
Liðið varð að sætta sig við tap
gegn Sovétmönnum, Júgóslövum
(bæði A- og B-liðum þeirra) og
Pólverjum en jafntefli varð í
leiknum við Svisslendinga, en
einmitt þeir verða aðalkeppi-
nautar okkar í komandi
B-heimsmeistarakeppni.
Næsta æfingalota var fyrir
landsleikina gegn Vestur-Þjóð-
verjum og Frökkum, en þeir
leikir fóru allir fram í Reykjavík.
Liðið olli vonbrigðum, sérstak-
lega í leikjunum við Vest-
ur-Þjóðverja en þeir tefldu nán-
ast fram b-liði í leikjunum. Þá
þótti fyrri leikurinn við Frakka
heldur slakur. Úrslitin urðu tvö
töp fyrir V-Þjóðverjum, en tveir
sigrar yfir Frökkum.
Síðast í nóverpfeer tók íslenska
landsliðið svo þátt í sterku móti í
Austur-Þýskalandi og sýndi
nokkra ljósa punkta gegn sterk-
um mótherjum. Sérstaklega var
leikurinn við Ungverja talinn
Kristján Arason — ein helsta stórskytta íslenska liðsins. Á honum mun
mæða íkeppninni íHollandi.
góður. Aðeins náðist að knýja
fram einn sigur í mótinu, gegn
yngra landsliði Austur-Þjóðverja.
Milli jóla og nýárs fengum við
danska landsliðið í heimsókn og
skiptust á skin og skúrir í leikj-
unum tveimur. íslenska liðið
vann annan leikinn, Danir hinn.
Um miðjan janúar hófst síðan
lokaundirbúningur íslenska
landsliðsins fyrir B-keppnina í
Hollandi sem stendur sleitulaust
fram að keppninni sjálfri eða í
sex vikur. í lok janúar fór íslenska
liðið í velheppnaða keppnisferð
til Norðurlandanna, lék þar
samtals sex landsleiki og vann
sigur í fimm þeirra, þar á meðal
vannst sætur sigur í leik gegn
erkifjendum okkar á handknatt-
leikssviðinu, Dönum. 2 sigrar
unnust gegn Finnum og 2 gegn
Norðmönnum.
í þeim 22 landsleikjum sem
leiknir hafa verið síðan undir-
búningurinn fyrir B-keppnina
hófst hafa því unnist 8 sigrar,
einn leikurinn varð jafntefli, en
13 sinnum varð íslenska liðið að
sætta sig við tap.
íslenska landsliðið var fyrst
14