Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1983, Page 17

Íþróttablaðið - 01.02.1983, Page 17
bjöm Jensson, „varnarsérfræð- ing“ til að lappa upp á vömina og auka hæð liðsins á vallarmiðj- unni. Raunhæfir möguleikar að verða í einu af sex efstu sætunum Hverjir eru svo raunhæfir möguleikar íslenska landsliðsins í B-keppninni sem framundan er? Eitt er víst að ef riðlamir þrír eru vandlega skoðaðir kemur í ljós að íslenska landsliðið hafði heppn- ina með sér þegar dregið var. Til að mynda hefði róðurinn orðið enn þyngri og raunar mun þyngri ef ísland hefði lent í riðli með Ungverjum og Svíum eða þá Vestur-Þjóðverjum og Tékkum. í fljótu bragði sýnist mér einn- ig að ieikjaröð íslenska landsliðs- ins sé afar hagstæð. Fyrsti leik- urinn er gegn Spánverjum sem telja verður sigurstranglegasta í þessum riðli. Spánverjar verða mjög taugaóstyrkir í þessum leik, því að hjá þeim kemur ekkert annað til greina en sigur og víst er að þeir óttast íslenska liðið. ís- lendingar ættu því að geta leikið nokkuð óþvingað í þessum leik. Þeir hafa allt að vinna og engu að tapa. Með þessu hugarfari og toppleik af hálfu íslenska lands- liðsins gætu óvænt úrslit litið dagsins ljós. Annar leikur fslend- inganna er gegn Svisslendingum. Bæði liðin gera sér fulla grein fyrir að um úrslitaleik í riðlinum verður að ræða fyrir þau og sigur í þessum leik mun tryggja sæti í sex liða úrslitunum. Ég er þeirrar skoðunar að íslenska landsliðið sé um þessar mundir sterkara en það svissneska. Það hafa orðið miklar mannabreytingar hjá þeim frá síðustu heimsmeistara- keppni. í vetur hefur þeim ekki vegnað vel og varla unnið lands- leik gegn sér sterkari þjóðum. í sumar þegar þjóðimar léku sam- an varð jafntefli, en íslenskur sigur hefði verið sanngjam. Gáfu júgóslavneskir dómarar Sviss- Tel að íslenska liðið eigi raunhæfa mögu- leika í 4. sæti lendingum vítakast á silfurbakka í lok leiksins. Síðasti leikur ís- lendinga í undankeppninni verð- ur gegn Belgíumönnum og eru þeir tvímælaiaust slakasta liðið í keppninni. í þeim leik kemur aðeins íslenskur sigur til greina. Ef við gerum því skóna að ís- lendingar komist áfram í sex liða úrslitin, eigum við að segja með Spánverjum, þá eru reglur keppninnar þannig að stigin í innbyrðisviðureign þjóðanna gilda. Ef Spánverjar sigra í leikn- um við íslendinga fara þeir með tvö stig í aðalkeppnina, verði jafntefli skiptast stigin og ef ís- lendingar sigra Spánverja fá þeir vitanlega tvö stig í sarpinn. í sex liða úrslitunum leikur hvert lið fjóra leiki. íslendingar léku (ef þeir komast áfram) sennilega við Ungverja, Svía, Vestur-Þjóðverja og Tékka. Komist íslenska liðið á annað borð áfram er það til alls líklegt og ég leyfi mér að vera svo bjart- sýnn að spá liðinu fjórða sæti, en það er sami árangur og það náði í forkeppni fyrir síðustu Ólympíu- leika,en þá fór keppnin fram á Spáni. Ef svo færi að íslenska liðið kæmist ekki áfram í sex liða úr- slitin yrði það að leika um sætin 6—12. Sömu reglur gilda um þá keppni og keppnina um sex fyrstu sætin. Fjórir leikir á lið og stigin gilda áfram úr riðlunum. íslendingar myndu þá væntan- lega leika við ísraela, Búlgari, Frakka og Hollendinga. Umfram allt yrði íslenska liðið að gæta þess að lenda ekki neðar en í átt- unda sæti, því ella fellur það úr B-hópnum niður í C-hóp. Jafnvel svartsýnustu menn trúa því ekki að svo geti farið. Það er kunnara en frá þarf að segja að margir þættir stórir og smáir eiga eftir að ráða því hvemig útkoma íslenska lands- liðsins verður. Hér mætti nefna: Hvemig verður dagsform íslenska liðsins í leikjunum við Spánverja og Svisslendinga? Hvemig dæma dómaramir? Nær íslenska liðið upp réttri baráttu? Ræður liðsheild eða einstakl- ingsframtak ríkjum? Smellur vörn liðsins saman? Nær liðið að leika agaðan og beittan sóknar- leik? Verður liðið andlega í góðu jafnvægi, spennustig rétt og leik- menn ekki of taugaóstyrkir? Hvemig bregst Hilmar landsliðs- þjálfari við í erfiðum stöðum í leikjunum? Verður rétt „taktik“ lögð upp? Hvað er rétt „taktik“? Heppni? Verður heppnin með ís- lenska liðinu og á mikilvægum augnablikum? Það er oft sagt að heppnin fylgi góðu liðunum. Við skulum svo sannarlega vona að hún fylgi íslenska liðinu. Þá er aðeins eftir að spá Framhaldábls. 81 17

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.