Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1983, Page 23

Íþróttablaðið - 01.02.1983, Page 23
Frá kvöldveðrðarboðinu í ár. Á myndinni er m.a. Jón Ármann Héðinsson, Gísli Halldórsson, Þorsteinn Bjarnason, Ellert B. Schram, Ólafur Schram (hjá Adidas-Umboðinu Jón Erlendsson og Jóhannes Sæmundsson. f horninu má sjá Þórð Þorgeirsson. ins tvívegis og segir það ef til vill nokkra sögu um breiddina í þessari íþróttagrein. Nú varð fyr- ir valinu Kristján Arason úr FH — einn af lærisveinum Geirs Hallsteinssonar sem varð fyrir valinu fyrir tíu árum. Kristján átti mjög gott keppnistímabil og varð t.d. markahæsti maður íslands- mótsins og drjúgur liðsmaður ís- lenska landsliðsins, þannig að val hans þurfti ekki að koma á óvart. íþróttamaður fatlaðra Það var árið 1977 að fatlaðir íþróttamenn bættust í hópinn við val á íþróttamanni ársins. Fatl- aðir íþróttamenn hafa staðið sig með mikilli prýði á alþjóðlegum vettvangi og má raunar undur heita hve framfarir þeirra hafa orðið miklar ef þess er gætt að skammt er síðan að fatlaðir tóku að stunda íþróttir hérlendis. Amór Pétursson er eini fatlaði íþróttamaðurinn sem valinn hef- ur verið íþróttamaður ársins tví- vegis. Nú varð Elísabet Vilhjálmsdóttir fyrir valinu, en hún hefur náð framúrskarandi árangri í bogfimi undanfarin ár bæði heima og erlendis. Afrek hennar er ef til vill enn meira vegna þess að hún er komin af þeim aldri sem venjulega er kall- aður keppnisaldur og sýnir hvað hægt er að gera ef vilji og dugn- aður er fyrir hendi. Júdómaður ársins Bjarni Friðriksson hefur verið stórtækur á titilinn júdómaður ársins, þar sem hann hlaut hann nú í fjórða sinn. Þetta þarf þó engan að undra sem fylgst hefur með júdó á íslandi undanfarin ár, en þar hefur Bjarni verið fram- úrskarandi og náð geysilega góð- um árangri á mótum erlendis. Segja gullverðlaun frá síðasta Norðurlandamóti og tvenn silfurverðlaun e.t.v. mesta sög- una um afrek hans. Auk Bjama Úr hófi fyrir nokkrum árum. A myndinni eru m.a. Skúli Óskarsson lyft- ingamaður, Þórunn Alfreðsdóttir sundkona, Steinunn Sæmundsdóttir skíðakona og Gísli Þorsteinsson júdómaður. 23

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.