Íþróttablaðið - 01.02.1983, Page 25
Verðlaunahafar árið 1977. Gísli Torfason, Berglind Pétursdóttir, Þórunn
Alfreðsdóttir, Kristinn Jörundsson, Valdemar Jónasson, Gústaf Agnars-
son, Hörður Barðdal, Stefán Konráðsson, Sigurður Haraldsson, Björg-
vin Þorsteinsson, Guðmundur Freyr Halldórsson, Gísli Þorsteinsson og
Hreinn Halldórsson.
hérlendis um þessar mundir og
margir fræknir siglingakappar
komið fram á sjónarsviðið —
enginn þó snjallari en Gunn-
laugur Jónasson sem var valinn
siglingamaður ársins í þriðja
sinn. Gunnlaugur átti einkar ár-
angursríkt keppnistímabil sl.
sumar og safnaði mörgum ís-
landsmeistaratitlinum auk þess
sem hann stóð sig með miklum
sóma á Norðurlandameistara-
móti siglingamanna á Laser bát-
um.
Skotmaður ársins
Skotsamband íslands var
stofnað árið 1979 og síðan hefur
skotmaður ársins jafnan verið
valinn. Carl Eiríksson varð nú
fyrir valinu í annað sinn, hann
hlaut titilinn einnig árið 1980.
Carl er einn elsti keppandinn í
skotfimi á íslandi, en aldurinn
hefur ekki unnið á móti honum,
nema síður væri, þar sem hann
hefur náð frábærum árangri og
varð t.d. fjórfaldur íslandsmeist-
ari á keppnistímabilinu 1982.
Skíðamaður ársins
Ungur göngugarpur frá ísa-
firði, Einar Ólafsson, var valinn
skíðamaður ársins 1982 og hafði
titilinn með sér vestur á ísafjörð
Er það raunar ekki í fyrsta sinn
sem titillinn fer þangað þar sem
félagi Einars, Sigurður Jónsson
varð fyrir valinu 1976 og 1977.
Þótt Einar sé ekki enn kominn á
þann aldur sem ætla má að sé
besti aldur skíðagöngumanna
hefur hann vakið óskipta athygli
fyrir ágæt afrek sín, eins og t.d. í
15 km skíðagöngu á HM í Osló
1982, en hann náði mjög góðum
árangri og í 4X 10 km boðgöngu
sama móts gekk hann fyrsta
sprett íslensku sveitarinnar og
gekk sennilega betur en íslend-
ingur hefur gert í stórmóti til
þessa.
Sundmaður ársins
Þriðja árið í röð var það Akur-
nesingur sem valinn var sund-
maður ársins. Titilhafi nú er Ingi
Þór Jónsson sem einnig var val-
inn árið 1980. Það er annars Þór-
unn Alfreðsdóttir úr Ægi sem
oftast hefur orðið fyrir valinu,
eða fjórum sinnum alls. Ingi Þór
á óvenjulega glæsilegan feril að
baki, þótt hann sé aðeins tvítugur
að aldri og hefur sett alls 51 ís-
landsmet til þessa og hann vann
bestu sundafrek íslendinga á ár-
inu 1982, ef metið er út frá stiga-
töflu. Þá má heldur ekki gleyma
því að Ingi Þór var fyrirliði
sundfólksins frá Akranesi sem
vann frækinn sigur í bikarkeppni
Sundsambands íslands árið 1982.
25