Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1983, Page 34

Íþróttablaðið - 01.02.1983, Page 34
Glímumaður ársins Sjónvarpið og kennsla í skól — segir Pétur Yngvarsson „glímumaður ársins” „Ætli það hafi ekki verið sigur minn í Íslandsglímunni, sem mestu hefur ráðið um valið,“ sagði Mývetningurinn Pétur Yngvason, sem stjóm Glímusambandsins tilnefndi sem „glímumann ársins 1982.“ Þetta er í þriðja sinn sem Pétur hlýtur „árstitilinn“. Hann var glímumaður ársins 1975 og aftur 1980. í fyrra hlaut tvíburabróðir hans, Ingi titilinn. Það var heldur dauft hljóð- ið í Pétri varðandi gang mála með glímuíþróttina, er við ræddum við hann símleiðis. — Við sem í þessu höfum staðið erum að letjast og því miður má þá segja að dautt sé á bak við okkur. Glímu- kennslu í skólum hér hefur verið hætt, en það var m.a. hún sem kom okkur á sporið. Glíman virðist eiga mjög í vök að veijast fyrir öðrum grein- um íþrótta, eins og hópíþrótt- unum. Einnig virðist t.d. judó hafa meira aðdráttarafl, þó slíkt sé vonandi tímabundið tískufyrirbrigði. Pétur kvaðst ekki af eigin raun hafa kynnst öðrum íþróttum, aðeins séð þær t.d. í sjónvarpi. Að hans dómi er karate áhugaverðara en judó. — Þingeyingar muna tím- ana tvenna um vinsældir glímunnar. Hér áður fyrr glímdu nánast allir. Okkur strákunum voru sagðar sögur af bændunum hér í kring, sem dorguðu á Mývatni hópum saman á vorin. Þeir gerðu sér það til daglegrar skemmtunar að fara í land og taka bænda- Tvíburabræðurnir Pétur (t.v.) og Ingi Yngvarssynir hafa skipt titlinum ,,glímumaður ársins“ bróðurlega á milli sín á und- anförnum árum. glímu. Alls staðar var glímt og hvergi mannamót án glímu. Eins og fyrr segir eru þeir tvíburabræður Pétur og Ingi sem verið hafa glímumenn ársins 1980 og 1981 og Pétur aftur tilnefndur nú. Þeir hafa mjög haldið glímunni á lofti í Þingeyjarsýslu ásamt Krist- jáni bróður þeirra. Faðir þeirra bræðra Yngvi Kristjánsson var góður glímu- maður en keppti tiltölulega lítið. Frægð og ljómi er hins vegar um nafn afa þeirra Kristján Helgason og bróður hans Stefán frá Haganesi. Þeir voru nafntogaðir þegar vegur glímunnar var sem mestur í Þingeyjarsýslu. — Ég er ráðinn í að verða með á mótum í vetur, sagði Pétur. — Ég hef þó ekki kom- ist á neina æfingu ennþá. Æf- ingamar eru nýlega skipu- lagðar og rétt að hefjast. Ég held að við verðum með í vetur bræðumir þrír, svo og

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.