Íþróttablaðið - 01.02.1983, Page 36
Körfuknattleiksmaður ársins
Linda Jónsdóttir— fyrsta konan sem hlýtur titilinn „körfuknattleiksmaður ársins.
Körfuknattleiksmaður ársins
keppir líka í blaki og fót-
bolta og hefur orðið íslands-
meistari í frjálsum íþróttum
— Það kom mér og öðrum í
kvennaliðum körfuknattleiks-
ins alveg á óvart að kona
skyldi verða fyrir valinu er
stjóm KKÍ valdi „körfuknatt-
leiksmann ársins 1982“, sagði
Linda Jónsdóttir, 26 ára gam-
all íþróttakennari við
Varmárskóla í Mosfellssveit.
Hún er fyrst kvenna til að
hljóta titilinn í kprfuknattleik.
— Að ég skyldi verða fyrir
valinu hlýtur að vera af því að
stjómarmennimir telja mig
eins góða eða betri en aðrar og
mér þykir vænt um viður-
kenninguna.
Linda Jónsdóttir byrjaði
körfuboltaiðkun á Patreks-
firði. Þá var það tíska þar að
allir unglingar fóru í körfu-
bolta. Allir voru í Herði og
allir æfðu í litlum sal á staðn-
um, sem var nógu stór fyrir
körfuknattleik. Linda komst
snemma í kapplið, sem tapaði
fyrst eins og gengur, en vann
síðar sinn riðil og komst í úr-
slitakeppni fyrir sunnan. Það
var spennandi. En úrslitaleik-
urinn gegn KR tapaðist. „Þá
strengdi ég þess heit að fara
ekki í KR,“ sagði Linda.
— En það voru frægir karl-
ar sem sáu um körfuknatt-
leikinn á Patró í þá daga, bæði
Guðni Kolbeinsson sem
þjálfaði og læknirinn á staðn-
um Þórir Arinbjamarson. Þeir
fengu ýmsa flokka KR vestur
til keppni. Þær heimsóknir
milduðu hug minn til KR og
þegar ég flutti til Reykjavíkur
með foreldrum mínum lá
leiðin beint í KR. Ég varð ís-
36