Íþróttablaðið - 01.02.1983, Side 37
landsmeistari í 2. flokki með
KR 1972/73 og byrjaði í
meistaraflokki árið eftir. Við
höfum oft orðið íslandsmeist-
arar m.a. síðustu fjögur árin.
Við ætlum auðvitað að vinna í
vetur líka. Það er allt á góðri
leið, mótið hálfnað og við
höfum ekki tapað leik.
Linda Jónsdóttir hefur lengi
verið sá leikmaður í kvenna-
liði KR sem flest stig hefur
skorað í hverjum leik. Nú upp
á síðkastið hefur Emelía
Sigurðardóttir verið álíka
dugleg að skora. Linda hefur
mest skorað 42 stig í leik. Það
gerðist í síðasta leik KR-liðs-
insfyrir jólin gegn Njarðvík —
rétt áður en kjör körfuknatt-
leiksmanns ársins fór fram.
Linda taldi að kjör sitt sem
„körfuknattleiksmaður árs-
ins“ væri viðurkenning til
allra í kvennaflokkum körfu-
knattleiksins. Hefur þátttaka
kvenna mjög aukist, eftir að
hafa dottið niður á tímabili,
„þegar gleymdist að hugsa um
yngri flokkana“ eins og Linda
sagði. „Árangurinn af þeirri
gleymsku varð að liðum í
meistaraflokki kvenna fækk-
aði úr sex í þrjú. Nú er allt á
betra vegi í kvennaflokknum,
komin mörg lið í 2. flokki og
fimm lið í 1. deild kvenna,“
sagði Linda.
Linda er fjölhæf íþrótta-
kona, enda íþróttakennari.
Hún þjálfaði 2. flokk KR í
körfubolta 1979—80 ásamt
Björgu Kristjánsdóttur. Sjálf
hefur hún tekið þátt í frjálsum
íþróttum, knattspymu og
blaki auk körfuboltans og
unnið afrek í öllum þeim
greinum. Hún er í meistaraliði
Þróttar í blakinu og verður þar
áfram.
Fijálsum íþróttum kynntist
hún lítillega 16 ára gömul hjá
ÍR á Melavelli en lítið var þá
um keppni og hún hætti. Síðar
hóf Linda aftur iðkun fijáls-
íþrótta og nú með KA frá
Akureyri. Var Linda mest
með í hlaupum og 400 metrar
hennar aðalvegalengd. Tví-
vegis hefur hún orðið íslands-
meistari í boðhlaupum innan-
húss með KA.
Loks hefur hún verið í
kvennaliði KR í knattspymu
sl. tvö ár, er þar bakvörður eða
miðvörður. Linda er því
óvenjulega fjölhæf íþrótta-
kona.
— Og hvað er framundan?
— Við ætlum að vinna Is-
landsmótið í körfuknattleik og
síðan bikarkeppni kvenna.
Reykjavíkurtitilinn höfum við
þegar unnið. Hann unnum við
ekki í fyrra, en þá urðum við
íslands- og bikarmeistarar. Þá
gæti hugsast að leið kvenna-
liðs KR lægi til Bandaríkj-
anna, en lið þar hafa lýst
áhuga sínum við þjálfara
Körf uknattleiksmaður
ársins
1973: Kristinn Jörundsson, fR
1974: Kristinn Stefánsson, KR
1975: Kristinn Jörundsson, ÍR
1976: Jón Sigurðsson, Á
1977: Kristinn Jörundsson, ÍR
1978: Jón Sigurðsson, KR
1979: Guðsteinn Ingimarss., UMFN
1980: Toríi Magnússon, Val
1981: Símon Ólafsson, Fram
1982: Linda Jónsdóttir, KR
Linda Jónsdóttir
okkar, Stewart Johnson, á að
við komum vestur. Það er
óráðið.
— Keppni erlendis freistar,
en utanlands hef ég ekki keppt
nema þrívegis. Fyrst með liði
KR 1975 í London, þar sem
við unnum alla leiki okkar.
Síðan hef ég tvívegis farið með
liði ÍR til keppni í Skotlandi.
Hún varð erfiðari og árangur
misjafnari. ÍR-liðið bauð
tveimur utanfélagsstúlkum í
keppnisferðina með sér og var
með í för tvíburasystir mín
Ema auk mín.
— Það sem við körfuknatt-
leikskonumar óskum helst er
að komið verði á landsleikjum
kvenna eins og karla. Það
skapar metnað að komast í
landslið og lyftir íþróttagrein-
inni. Það hefur ekki nema
einu sinni — 1974 — verið
þjálfaður sérhópur til þátttöku
í Polar Cup kvenna. Það var
gert með stuttum fyrirvara og
því lélegum árangri. Nú er
gatan greiðari og meiri geta
hjá íslenska kvenfólkinu.
Vona ég að kvennanefnd
KKÍ takist að hrinda í fram-
kvæmd uppbyggingu lands-
liðs og ákveðnum landsleikja-
fjölda á hverju ári, sagði
Linda Jónsdóttir, „körfu-
knattleiksmaður ársins 1982“.
A.St.
37