Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1983, Page 41

Íþróttablaðið - 01.02.1983, Page 41
Þorstein Bjarnason i, íslenska landsliðið sem gerði jafntefii við Hollendinga á Laugardalsvellinum s.l. sumar. Fremri röð frá vinstri: Arnór Guðjohnsen, Viðar Halldórsson, Karl Þórðarson, Trausti Har- aldsson, Pétur Ormslev. Efri röð frá vinstri: Janus Guðlaugs- son, Lárus Guðmundsson, Atli Eðvaldsson, Þorsteinn Bjarna- son, Sævar Jónsson og Marteinn Geirsson. blik og KA. Hjá okkur var staðan í hálfleik 0:0. Þá frétt- um við af því að Fram væri að tapa fyrir ÍBV. Þá nægði okkur jafntefli til að halda sæti í fyrstu deild. Það var erfiður síðari hálfleikur og æsispennandi barátta nánast við sekúndubrotin í lokin. En það tókst, sagði Þorsteinn, og hann átti ekki minnstan þátt í því að ÍBK hélt velli. — Annað sem vert er að minnast er, að við komumst í úrslitaleik Bikarkeppninnar, en töpuðum þar fyrir Skaga- mönnum. Það var hörkubar- átta, en ég segi bara, betra liðið vann. Þorsteinn byrjaði að leika knattspymu stuttu eftir að hann lærði að ganga, og alltaf frá því hann byrjaði að keppa hefur hann staðið í markinu. Þar nýtur hann sín vel, ræður ríkjum á stóru svæði. Hann er hávaxinn og ógnvekjandi og sóknarmenn er að honum sækja vita vel, að erfið þraut er óleyst, þegar eftir er að koma knettinum fram hjá honum í netið. Þorsteinn er, þrátt fyrir hæð, eldsnöggur og ver oft meistaralega vel. — Ég er ánægður með markvarðastöðuna. Þeir segja að markmaður sé alltaf að læra nýjar kúnstir fram að þrítugu, þá kunni hann allt og byrji að nóta sín. Ég á eftir að reyna, hvort þetta er rétt, segir Þorsteinn. Þorsteinn gerðist atvinnu- maður hjá La Louvrier í Belgíu um jólln 1978 og var í Belgíu fram á mitt ár 1980, eða 18 mánuði. í sama liði lék Karl Þórðarson frá Akranesi. — Þetta var góð reynsla, sagði Þorsteinn, og gaman að kynnast því, hvemig atvinnu- menn hafa það og æfa. Ég lék með liðinu alla leiki þess í 1. deild, en liðið féll í 2. deild. Það ár byrjaði ég ekki nógu vel í æfingaleikjum, komst ekki í liðið og átti eftir það erfitt uppdráttar. Mér var boðinn annar og lakari samn- ingur. Ég hafnaði og hélt heim. Þorsteinn er óvenjulegur knattleikjamaður. Auk fót- boltans byrjaði hann í hand- Knattspynuimaður ársins 1973: Guðni Kjartansson, ÍBK 1974: Jóhannes Eðvaldsson, Val 1975: Ámi Stefánsson, Fram 1976: Jón Pétursson, Fram 1977: Gfsli Torfason, ÍBK 1978: Karl Þórðarson, ÍA 1979: Marteinn Geirsson, Fram 1980: Matthías Hallgrímss., Val 1981: Guðmundur Baldurss.. Fram 1982: Þorsteinn Bjamason, ÍBK bolta og kynntist einnig körfubolta. Eftir veru í 3. flokk í handbolta tók hann körfuboltann fram yfir og komst þar í fremstu röð. Þor- steinn er einn af bestu mönn- um Keflavíkurliðsins, sem unnið hefur frækna sigra í körfunni og var valinn í landslið gegn Dönum í vetur, en því landsliðssæti hafnaði Þorsteinn. — Mér fannst það rangt að taka boðinu um landsliðssæti. Ég hefði ekki leikið nema einn leik með landsliðinu, og þá hefði ég aðeins verið að taka sæti frá öðrum, sem vill æfa körfuboltann. Ég verð að hætta í körfunni og velja fót- boltann, það val er átakalaust. Ein grein er nóg fyrir mig sem alla aðra. — Ég ætla af fullum krafti í knattspyrnuna áfram. Við erum með gott lið í Keflavík, sem getur vel náð 3.—4. sæti. En okkur vantar herslumun- inn, og ég ætla að leggja mig fram um að sá herslumunur náist í sumar. Ég er orðinn langeygur eftir góðum titli með ÍBK-liðinu og á ég þá við íslands- eða bikarmeistara- titil. Ég reyni svo að halda sætinu mínu í landsliðinu. Þar er góður andi þó sjónarsviptir sé að mönnum eins og Mar- teini Geirssyni, sem var stoð og stytta hvers markvarðar, sagði „knattspymumaður árs- ins 1982“ sem nú rekur íþróttavöruverslun í Keflavík. - A.St. 41

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.